
Stjórn leggur áherslu á að fylgja sem ítarlegast Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja og hafa reglulegar úttektir á
stjórnarháttum félagsins staðfest að svo sé. Síðasta úttekt var gerð í júlí 2025. Félagið fékk endurtekna viðurkenningu sem
fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum í ágúst 2025 og stefnir stjórnin á að fá hana endurtekna á þessu ári.
Stjórn og starfshættir stjórnar
Stjórn Reita fasteignafélags hf. („Reitir“ eða „félagið“) leggur ríka áherslu á að viðhalda góðum stjórnarháttum og taka
stjórnarhættir félagsins mið af lögum nr. 2/1995 um hlutafélög, lögum um ársreikninga nr. 3/2006, og Leiðbeiningum um
stjórnarhætti fyrirtækja (6. útgáfa) sem finna má á heimasíðunni www.leidbeiningar.is, gefnum út af Viðskiptaráði Íslands,
Nasdaq Iceland hf. og Samtökum atvinnulífsins. Félagið er með hlutabréf sín og skuldabréf skráð í kauphöll og fylgir þeim
reglum sem gilda um skráð félög, auk þeirra ákvæða sem fram koma í samþykktum félagsins, starfsreglum stjórnar og
starfsreglum undirnefnda. Hægt er að nálgast samþykktirnar, starfsreglur stjórnar og starfsreglur undirnefnda á vefsíðu
félagsins. Ekki hefur verið úrskurðað um nein brot félagsins á lögum og reglum af viðeigandi eftirlits- og/eða
úrskurðaraðilum.
Í stjórn Reita eru fimm stjórnarmenn, allir kosnir á aðalfundi félagsins. Þau eru Þórarinn V. Þórarinsson, stjórnarformaður,
fyrst kosinn í stjórn árið 2009, Elín Árnadóttir, varaformaður stjórnar, sat í stjórn 2010- 2019 og kosin á ný í stjórn 2023,
Kristinn Albertsson, fyrst kosinn í stjórn árið 2017, Anna Kristín Pálsdóttir, fyrst kosin í stjórn 2024 og Guðmundur Ingi
Jónsson, fyrst kosinn í stjórn 2025.
Allir stjórnarmenn eru óháðir félaginu og stórum hluthöfum þess eins og það er skilgreint í lið 2.5 í Leiðbeiningum um
stjórnarhætti fyrirtækja. Stjórn félagsins er skipuð tveimur konum og þremur körlum. Félagið uppfyllir því ákvæði laga um
kynjahlutföll í stjórnum hlutafélaga.
Menntun, reynsla og þekking stjórnarmanna Reita er víðtæk. Í stjórninni sitja tveir viðskiptafræðingar, annar með víðtæka
reynslu úr atvinnulífinu sem stjórnandi og stjórnarmaður og hinn hefur gegnt stöðu fjármálastjóra í umsvifamikilli samstæðu
um árabil. Einn hæstaréttarlögmaður situr í stjórninni en hann er með umfangsmikla reynslu af þátttöku í stjórnum ólíkra
fyrirtækja. Einn stjórnarmanna er verkfræðingur með yfirgripsmikla reynslu af stefnumótun og markmiðasetningu, auk þess
að hafa mikla þekkingu á sviði samfélagsábyrgðar. Einn stjórnarmanna er hagfræðingur og framkvæmdastjóri
fjárfestingafélags og dótturfélags þess sem er í íbúðabyggingu og öðrum verkefnum tengdum uppbyggingu fasteigna.
Nánari upplýsingar um stjórnarmenn er að finna á heimasíðu félagsins.
Stjórn hefur skipað tvær undirnefndir, endurskoðunarnefnd og starfskjaranefnd. Endurskoðunarnefnd samanstendur af
fjórum nefndarmönnum. Þrír nefndarmanna eru stjórnarmenn félagsins, kjörnir af stjórn, en sá fjórði er utanaðkomandi aðili,
skipaður af stjórn og staðfestur af aðalfundi, og hefur fagþekkingu sem löggiltur endurskoðandi. Starfskjaranefnd er skipuð
tveimur nefndarmönnum úr röðum stjórnarmanna. Nánari upplýsingar um nefndarmenn og starfsemi undirnefnda er að
finna á vefsíðu félagsins. Tilnefningarnefnd hefur verið starfandi síðan í október 2018. Nefndin er skipuð þremur
utanaðkomandi óháðum fagaðilum sem tilnefndir eru af stjórn félagsins og staðfestir af hluthafafundi. Starfsreglur
nefndarinnar eru staðfestar af hluthafafundi og eru þær og aðrar upplýsingar um nefndina og nefndarmenn að finna á
vefsíðu félagsins.
Um hlutverk, skyldur og helstu verkefni stjórnar
Um hlutverk og skyldur stjórnar fer skv. samþykktum félagsins. Þeim til viðbótar hefur stjórn sett sér ítarlegar starfsreglur þar
sem helstu verkefni og valdsvið stjórnar, formanns stjórnar og forstjóra eru skilgreind. Gildandi starfsreglur er að finna á
vefsíðu félagsins. Þar er m.a. að finna reglur um hæfi stjórnarmanna til þátttöku í afgreiðslu mála, um boðun funda, gögn,
fundarsköp og fundargerðir, undirnefndir, reglur um þagnarskyldu, upplýsingagjöf gagnvart stjórn, innra eftirlit og
áhættustýringu, samskipti milli stjórnarmanna og við stjórnendur, samskipti við hluthafa og ákvörðunarvald stjórnar.
Meginhlutverk stjórnar er að stýra félaginu milli hluthafafunda og tryggja að rekstur þess og starfsemi sé í samræmi við lög,
samþykktir og stefnur félagsins. Stjórn tekur meiriháttar ákvarðanir í rekstri félagsins, hefur eftirlit með að bókhald félagsins
sé í samræmi við lög og að fjárreiður þess séu með tryggum hætti. Stjórn hefur metið það svo að eftirgreind verkefni skuli
njóta sérstakrar athygli hennar næstu misseri:
Samstæðuársreikningur Reita fasteignafélags hf. 2025