
____________________________________________________________________________________________
Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra, frh.:
Áhrif Covid-19 á rekstur Origo hf.
Mannauður
Persónuvernd
Allt frá fyrsta ársfjórðungi 2020 hafa stjórn og stjórnendur undirbúið félagið undir þær aðstæður sem sköpuðust vegna
Covid-19 veirufaraldursins og efnahagslegar afleiðingar hans. Félagið er vel í stakk búið til að takast á við þessar
fordæmalausu aðstæður, hvort sem litið er til högunar þjónustu við viðskiptavini, fjárhags- eða lausafjárstöður. Aðgerðir
stjórnenda hafa miðað í fyrsta lagi að því að tryggja rekstrarsamfellu þannig að sem minnst truflun verði á þjónustu
Origo við viðskiptavini. Félagið þjónar í dag fyrirtækjum og stofnunum sem mörg hver gegna samfélagslega mikilvægu
hlutverki, m.a. tengt íslenska heilbrigðiskerfinu, almannavörnum, samgöngum, fjármálaþjónustu og verslun. Í öðru lagi
hefur verið gætt sérstakrar varúðar hvað varðar styrk efnahags- og lausafjárstöðu til að mæta ófyrirséðum aðstæðum
sem vísað er til hér að ofan.
Þrátt fyrir Covid-19 veirufaraldurinn þá hefur rekstur félagsins gengið vel á árinu. Töluverðar breytingar hafa verið
gerðar á skipulagi til að mæta minni eftirspurn frá fyrirtækjum í ferðaþjónustu og tengdum atvinnugreinum. Einn þáttur í
viðlagaáætlun Origo, sem er hluti af ISO 27001 stjórnunarkerfi upplýsingaöryggis, snýr að sjúkdómum og er í þremur
skrefum: Viðbúnaðarstig, Hættustig, Neyðarstig. Áætlunin tekur mið af viðbúnaðarstigum WHO og Almannavarna auk
þess sem hún fylgir tilmælum Landlæknis/Sóttvarnarlæknis. Vegna faraldursins var viðbúnaðarstig Origo virkjað í lok
janúar 2020, hættustig var virkjað 28. febrúar og neyðarstig þann 8 mars. Origo hefur frá því á fyrsta fjórðungi 2020 fylgt
því viðbúnaðarstigi sem almannavarnir hafa gefið út og fylgt tilmælum Landlæknis/Sóttvarnarlæknis vegna Covid – 19
hverju sinni. Starfsmenn Origo eru upplýstir reglulega um viðbragðsáætlun og tilmælum komið til þeirra í samræmi við
áætlun. Skilgreindir voru hópar starfsmanna sem vinna ekki á sama tíma í starfstöðvum Origo og gert ráð fyrir að hluti
starfsfólks sinni vinnu í fjarvinnu. Slíkt er gert til að lágmarka hættu á hópsmiti.
Upplýsingaöryggi verður æ mikilvægari þáttur þegar kemur að verðmætum, áhættu og viðkvæmum innviðum fyrirtækja
og opinberra aðila og einnig fyrir Origo. Afar mikilvægt er að fyrirtæki leiti allra leiða til að lágmarka ógnir og áhættur sem
kunna að steðja að upplýsingatækniumhverfi og noti við það viðurkenndar og vottaðar aðferðir. Origo rekur ISO 27001
vottað stjórnkerfi upplýsingaöryggis auk þess sem hjá fyrirtækinu starfa um 30 einstaklingar sem hafa fengið vottun um
ITIL Foundation Certificate in IT Service Management. Origo gerir reglulega áhættumat og til grundvallar liggja helstu og
verðmætustu eignir (assets/verðmæti) sem falla innan umfangs vottunar. Markmið með framkvæmd áhættumats er að
koma auga á þær áhættur sem kunna að vera til staðar í umhverfinu, skilja tilvist þeirra og lágmarka áhættu sem af
þeim setðja með skilgreindum og skráðum aðgerðum.
Áhættumat og áhættustýring skilar stöðugum umbótum jafnt í þjónustu og rekstri og tryggir rétta stjórnun, byggir upp
traust hagsmunaaðila á stjórnunarkerfi upplýsingaöryggis, áhættustýringu, lágmarkar áhættu í umhverfi, styrkir
stjórnkerfi og bregst við breytingum á réttan hátt auk þess að vernda félagið.
Hjá Origo starfar öflugur hópur fólks sem trúir því að góð tækni breyti öllu. Allt sem við gerum er unnið af fólki, í
samvinnu við fólk og fyrir annað fólk. Í mannauðsmálum leggjum við áherslu á fyrsta flokks starfsumhverfi sem ýtir undir
vellíðan og nýsköpun starfsfólks. Við leggjum áherslu á að bjóða starfsfólki upp á frábært tækniumhverfi, þar sem fólk
fær tækifæri til að vinna með nýja tækni í bland við rótgróna. Við erum sífellt að þróa vinnustaðinn, starfsumhverfið,
tækin og tólin sem starfsfólk nýtir í starfi og ýtum undir stöðugar umbætur. Við bjóðum upp á frábært tækifæri til þróunar
og vöxt í starfi. Við byggjum á liðsheild og leggjum áherslu á að ýta undir styrkleika hvors annars.
Það er markmið Origo að auka fjölbreytileika í starfahópi sínum með því að fjölga konum í upplýsingatækni og fjölga
ráðningum ungra upprennandi einstaklinga.
Persónuvernd verður sífellt mikilvægari þáttur í áhættumati fyrirtækja. Hjá Origo er lögð rík áhersla á vernd og öryggi
persónuupplýsinga. Markmið Origo er að öll meðferð persónuupplýsinga hjá félaginu sé í samræmi við lög um
persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 og að til staðar séu viðeigandi verklagsreglur og ferlar til að
lágmarka áhættu. Origo hefur skipað persónuverndarfulltrúa sem hefur eftirlit með því að fyrirtækið uppfylli skyldur sínar
samkvæmt lögum.
Ráðstefnum, kynningum og ferðalögum hefur verið frestað tímabundið til þess að verja starfsmenn og starfsemi.
Mikilvægt er að allir starfsmenn sameinist um að lágmarka hættu á smiti og því nauðsynlegt að draga sem allra mest úr
samgangi á milli starfssvæða innan húsnæðis. Frá því á fyrsta ársfjórðungi 2020 hafa margir starfsmenn unnið í
fjarvinnu. Starfsfólk, sem getur ekki verið í fjarvinnu, hefur verið hvatt til að halda sig á sínum vinnusvæðum eins og
kostur er. Fjarlægð milli starfsmanna og viðskiptavina sem sækja þjónustu í verslun, lager og verkstæði er samkvæmt
tilmælum sóttvarnalæknis. Lögð er áhersla á að samskipti verði sem mest með rafrænum hætti í stað hefðbundinna
funda. Starfsmönnum sem koma frá útlöndum ber að hafa samband við sinn næsta yfirmann áður en mætt er á
starfsstöð. Heimsóknir frá birgjum hefur verið frestað eða lágmarkaðar eins og kostur er. Áhersla er á að viðhalda
þjónustu. Þrátt fyrir krefjandi aðstæður hefur félaginu tekist að halda uppi góðri þjónustu við sína viðskiptavini og
reksturinn í heildina gengið vel.
Samstæðuársreikningur Origo hf. 2021
4