
Í árslok Í árslok
2023 2022
2,58% 1,47%
Samtals 10 stærstu
1) Stefnir - Innlend hlutabréf hs., Stefnir - Innlend hlutabréf vo, Stefnir - ÍS 5 hs., Stefnir - Samval hs.
2) Landsbréf - Úrvalsbréf hs., Landsbréf - Hekla hs., Landsbréf - Öndvegisbréf hs.
3) IS EQUUS Hlutabréf, IS Hlutabréfasjóðurinn, IS Eignasafn, IS Einkasafn B, IS Einkasafn C, IS Einkasafn D, IS Einkasafn E
4) Kvika banki hf., Kvika - IHF hs., Kvika - Hlutabréfavísitala, Kvika - Innlend hlutabréf
Kvika eignastýring hf.
4)
................................................................................
TM tryggingar.......................................................................................................
Á aðalfundi félagsins sem haldinn var þann 29. mars 2023, var stjórn veitt heimild, á grundvelli 55. gr. laga um hlutafélög, nr. 2/1995,
til kaupa á allt að 381.727.646 hlutum í félaginu, eða sem samsvarar allt að 10% hlutafjár félagsins. Byggt á þessari heimild tók stjórn
félagsins í maí ákvörðun um gerð og framkvæmd áætlunar um endurkaup eigin bréfa fyrir allt að 550 m.kr., og skv. þeirri áætlun voru
á árinu 2023 keyptir alls 122,5 milljón hlutir fyrir alls 505 m.kr., eða sem nemur 3,2% af heildarhlutafé félagsins. Meðalgengi í
endurkaupunum nam 4,12 kr. pr. hlut.
Skráð hlutafé félagsins nam í árslok 2023 3.817.276.464, en félagið átti eigin hluti í árslok að nafnverði 122,5 m.kr. Hlutaflokkur er
einn og er hlutaféð skráð í Kauphöll Íslands. Allir hlutir njóta sömu réttinda.
Fjárhagsleg áhætta, rekstraráhætta og áhættustýring
Vísað er til skýringar 21 varðandi upplýsingar um fjárhagslega áhættu, rekstraráhættu og áhættustýringu. Um engar sérstakar aðrar
áhættur er að ræða í rekstri félagsins.
Landsbréf hf.
2)
................................................................................................
Íslandssjóðir hf.
3)
............................................................................................
Stefnir hf.
1)
..................................................................................................
Birta lífeyrisjóður..................................................................................................
Lífeyrissj. starfsm. rík. A-deild og B-deild.............................................................
Stapi lífeyrissjóður................................................................................................
Lífsverk lífeyrissjóður...........................................................................................
Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra
Á aðalfundum í mars varð breyting á stjórn félagsins og Nova hf. þegar þrjú ný voru kjörin til stjórnarsetu í félögunum ásamt þeim
Hrund Rudolfsdóttur og Jóni Óttari Birgissyni sem áður sátu í stjórn. Ný í stjórn voru kjörin Sigríður Olgeirsdóttir, Jóhannes
Þorsteinsson og Magnús Árnason. Í stjórn félagsins og Nova hf. sitja því fimm einstaklingar, þrír karlar og tvær konur og uppfyllir
félagið því ákvæði laga um kynjahlutföll í stjórn.
Samkvæmt endurskoðuðum rekstrarreikningi og yfirliti um aðra heildarafkomu námu heildartekjur ársins 2023 12.993 milljónum
króna, samanborið við 12.641 milljónir kr. á fyrra ári. EBITDA var 3.979 milljónir króna, samanborið við 3.636 milljónir kr. á fyrra ári.
Hagnaður ársins nam 728,8 milljónum króna samanborið við 539,3 milljónir á fyrra ári. Eigið fé í lok árs nam 9.277 milljónum króna
samkvæmt efnahagsreikningi, en var 9.053 milljónir kr. árið á undan. Eiginfjárhlutfall er 40,04%, samanborið við 39,8% árið á undan.
Vísað er til eiginfjáryfirlits varðandi upplýsingar um breytingar á eigin fé á tímabilinu.
Nova Klúbburinn hf. er móðurfélag Nova hf., en meginstarfsemi þess er fjarskiptarekstur og skyld starfsemi. Ársreikningur þessi
samanstendur af ársreikningi Nova Klúbbsins hf. (félagið) og dótturfélags þess Nova hf., saman nefnt „samstæðan“.
Stjórn leggur til að hagnaði ársins verði bætt við óráðstafað eigið fé og arður ekki greiddur út á árinu 2024.
Í framkvæmdastjórn félagsins sitja nú tvær konur og tveir karlar, þau Margrét Tryggvadóttir, forstjóri, Þórhallur Jóhannsson,
framkvæmdastjóri Frammistöðu, Ólafur Magnússon, framkvæmdastjóri Tækni- og nýsköpunar og Þuríður Guðnadóttir,
framkvæmdastjóri Nova Upplifunar. Það fjölgar í framkvæmdastjórn frá og með 1. mars nk., þegar þriðja konan, Renata Blöndal,
bætist við í nýja stöðu framkvæmdastjóra Stefnumótunar.
Meðalfjöldi starfsmanna Nova hf. (FTEs) á árinu 2023 var 151, sem er óbreyttur fjöldi frá á árinu 2022. Kynjahlutföll voru 60%
karlmenn og 40% konur.
Í árslok 2023 voru hluthafar í Nova Klúbbnum hf. um 2.300 talsins, samanborið við um 3.200 í ársbyrjun. Tíu stærstu hluthafar í
félaginu í árslok 2023 voru eftirfarandi (samanborið við árslok 2022):
Festa lífeyrissjóður...............................................................................................
Nova Klúbburinn hf. Ársreikningur samstæðu 2023