
________________________________________________________________________________________________
Ábyrgar fiskveiðar
Umhverfismál
Mannauður og öryggismál
Siðferði, spilling, mútur og mannréttindi
Gagnsæi og innleiðing löggjafar tengt ófjárhagslegri upplýsingagjöf
Brim stóð að þróun eigin umhverfiskerfis, sem nú er þróað áfram undir merkjum fyrirtækisins Stika solutions ehf.
Brim er hluthafi í fyrirtækinu. Kerfið kortleggur heildar kolefnisspor Brims og streyma upplýsingar frá helstu þáttum í
rekstri þess með rafrænum hætti inn í umhverfisgagnagrunn. Helstu mæliþættir, svo sem olíu- og raforkunotkun,
eru birtir í mælaborði og nýtast sem mikilvægar stjórnendaupplýsingar.
Lögð er áhersla á að tengja umhverfismál við fjárhagslegan ávinning af fjárfestingum og aðgerðum, með mati á
tekjumöguleikum og lækkun kostnaðar. Þannig styður umhverfiskerfið vegferð Brims í átt að sjálfbærri þróun og
nýtist til að birta upplýsingar samkvæmt GRI staðlinum í ársskýrslu og lykilmælikvarða umhverfis samhliða birtingu
upplýsinga úr fjárhagslegum árshlutauppgjörum.
Ófjárhagslegar upplýsingar frh.
Brim hf. tekur virkan þátt í samstarfi sem stuðlar að sjálfbærri nýtingu fiskistofna, gæðum og ábyrgð gagnvart
umhverfi og samfélagi. Markmiðið með þátttöku félagsins er að stuðla að framþróun þess og atvinnugreinarinnar,
auka samvinnu og tryggja markaðsaðgengi. Áhersla er lögð á samstarf við Ábyrgar fiskveiðar (Iceland Responsible
Fisheries) sem stendur fyrir upprunamerki fyrir íslenskar sjávarafurðir og vottun á ábyrgum fiskveiðum Íslendinga. Í
desember 2016 gerðist félagið bakhjarl samtakanna Global Sustainable Seafood Initiative (GSSI). Markmiðið með
starfsemi GSSI er að auka gagnsæi í vottunum um sjálfbærni í sjávarútvegi og fiskeldi. Fyrirtæki með aðild að GSSI
hafa skuldbundið sig til að viðurkenna öll þau vottunarverkefni sem standast GSSI úttekt, þegar kemur að sölu
sjávarafurða. Þá er Brim aðili að vottun FISH Standard for Crew sem Ábyrgar fiskveiðar ses. heldur utan um, í
umboði Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og Landssambands smábátaeigenda. Staðall FISH Standard for Crew
byggir á ILO 188, sem er eini alþjóðasamningurinn sem tekur til vinnuaðstæðna sjómanna á heimsvísu. Brim er
með vottuð gæðastjórnunarkerfi, IFS (International Food Standard), FEMAS (Feed Material Assurance Scheme) og
HACCP (Hazard Analysis and Critical Control Points).
Umhverfisvitund hefur lengi verið stór partur af starfseminni og virðing fyrir umhverfinu og lífríki sjávar er grundvöllur
í starfsemi Brims hf. Félagið leitar stöðugt leiða til að lágmarka áhrif starfseminnar á umhverfið á sjó og í landi og
hefur sett sér markmið í umhverfis- og loftslagsþáttum sem eru mikilvægir í rekstri félagsins. Þau markmið eru
kynnt í ársskýrslu. Losun gróðurhúsalofttegunda m.v. verðmæti seldra vara uppsjávar- og botnfisksviðs er einn
lykilmælikvarða félagsins og hefur hún dregist saman um ríflega fjórðung m.v. viðmiðunarárið 2015. Losun
gróðurhúsalofttegunda á árinu 2025 dróst saman frá fyrra ári og vegur þar þyngst minni olíunotkun
fiskmjölsverksmiðju á Vopnafirði, en skerðingar á afhendingu raforku höfðu ekki áhrif á rekstur hennar á liðnu ári
eins og raunin hefur verið á síðustu árum. Enn frekar hefði dregið úr losun ef ekki hefðu komið til miklar hækkanir á
flutningskostnaði raforku til fiskmjölsframleiðslu á Akranesi.
Félagið virðir almenn mannréttindi og rétt allra til félagafrelsis og kjarasamninga og hefur sett sér skrifleg viðmið um
siðferði, spillingu, mannréttindi og mútur. Áhersla er lögð á að verktakar og undirverktakar fari eftir gildandi lögum í
landinu er varðar alla sína starfsmenn.
Brim hf. starfrækir þrjár sorpflokkunarstöðvar, í Reykjavík, á Akranesi og Vopnafirði. Allur úrgangur sem fellur til í
starfseminni er flokkaður með það að markmiði að finna leiðir til endurnotkunar og stuðla þannig að hringrás
hráefna.
Ábyrgð á öryggismálum er á herðum stjórnenda og eru starfandi öryggisnefndir á öllum sviðum félagsins.
Mannauðssvið félagsins fer með umsjón og eftirlit með málaflokknum.
Langflest störf á sjó eru unnin af karlmönnum, en meirihluti starfa í fiskiðjuverum er unninn af konum. Félagið leitast
við að fá jafnt karla og konur til starfa í hinum ólíku starfahópum vinnustaðarins og er bannað að mismuna
starfsmönnum hjá félaginu vegna kyns, kynhneigðar eða ólíks uppruna. Félagið fékk fyrst jafnlaunavottun 2019 og
var slík vottun í gildi á liðnu ári.
Önnur verkefni sem tengjast umhverfismálum eru m.a. bætt orkunýting og nýting glatvarma í fiskmjölsframleiðslu,
vöruþróun kolmunnaafurða, raftenging skipa við hafnir, þróun veiðarfæra, hvatning til starfsfólks um að nýta sér
umhverfisvænar samgöngur í og úr vinnu og frekari uppbygging umhverfisstjórnunarkerfis sem heldur utan um
ófjárhagslega mælikvarða, með það að markmiði að lágmarka sóun og losun gróðurhúsaloftegunda í virðiskeðjunni.
Verkefni þessi eru mörg hver unnin í samstarfi við nýsköpunarfyrirtæki, háskóla og rannsóknarstofnanir.
Á árinu 2025 voru að meðaltali 655 stöðugildi hjá samstæðunni miðað við heilsársstörf, en þau voru 661 á árinu
2024. Um 73% starfsmanna hjá samstæðunni eru karlar og 27% konur, en 87% stjórnenda eru karlar og 13%
konur.
Samstæðuársreikningur Brims hf. 2025
44
Fjárhæðir eru í þúsundum evra