
Sýn er vottað samkvæmt alþjóðlega staðlinum ISO27001:2022. Vottunin staðfestir að unnið sé í samræmi við
kröfur staðalins og staðfestir að Sýnar fylgir verklagi sem tryggir vernd gagna, minnkar áhættur og minnkar
líkur á áföllum eða ófyrirséðum truflunum á starfsemi félagsins.
Hluti af starfsemi Sýnar telst til rekstrarlega nauðsynlegrar þjónustu fyrir Ísland og tryggir stjórnkerfi
félagsins m.a. fylgni við lög og reglur um öryggi net og upplýsingakerfa mikilvægra innviða. Sýn lýtur eftirliti
Fjarskiptastofu. Net- og upplýsingakerfi félagsins eru vöktuð allan sólahringinn af starfsfólki Stjórnborðs
Sýnar þar sem unnið er eftir skilgreindu verklagi ef upp koma bilanir eða þjónusturof. Til staðar er viðbragðs-
og neyðaráætlun sem er virkjuð ef upp koma atvik eða atburðir sem ógna öryggi starfsemi félagsins eða net-
og upplýsingakerfum þess. Þar eru hlutverk og ábyrgð skýr og skilgreindar hafa verið aðgerðir og boðleiðir í
samræmi mismunandi atvik og atburði.
Lykiláhættur félagsins hafa m.a. verið skilgreindar á eftirfarandi hátt þar sem tekið er tillit til
sjálfbærniáhætta (áhættur ekki settar fram í neinni sérstakri röð):
Áhrif loftslagsbreytinga,ófyrirséð náttúruvá og orkuskortur
Eldgos, flóð, snjóflóð, aurskriður, eldingar og almennt óveður eru allt hluti af því að búa á Íslandi. Allir þessir
atburðir geta haft áhrif á þjónustu Sýnar, valdið auka álagi á þjónustuna og jafnframt valdið þjónusturofi á
ákveðnum svæðum í ákveðinn tíma. Félagið vaktar þessar mögulegu áhættur og bregst við m.a. með
sólarhingsvöktun á net og upplýsingakerfum og hafa starfsfólk á bakvöktum ef virkja þarf viðbragðs- eða
neyðaráætlun Sýnar. Sýn vinnur náið með Almannavörnum og Neyðaröryggissveit Íslands, CertIS er upp
koma alvarlegir atburði.
Ófjárhagslegar upplýsingar frh.:
Upplýsingaöryggi frh.
Netógnir eða netárásir
Árás óprúttinna aðila er áhætta sem getur haft alvarleg áhrif á net eða upplýsingakerfi og tiltækileika þeirra
auk öryggis þeirra upplýsinga sem þau geyma. Sýn bregst við þessu með því að vera stöðugt að fylgjast
með og byggja upp netvarnir félagsins þannig að skaðinn sem netárásir geta valdið sé lágmarkaður. Samstarf
félagsins við Vodafone Group gerir félaginu kleift að samþætta tækni, högun og þekkingu á netvörnum.
Vöktun og öryggiseftirlit er til staðar á umferð mikilvægra neta og upplýsingakerfa. Gerðar eru reglulegar
innri og ytri úttektir, veikleikaskönnun og öryggisprófanir framkvæmdar af innri og ytri
netöryggissérfræðingum. Regluleg fræðsla til starfsfólks er til staðar um netógnir og félagið er í góðu
samstarfi við Cert-IS Netöryggissveit Íslands.
Félagslegar áhættur í starfseminni
Truflun á starfsemi Sýnar vegna starfsfólksveltu, veikinda, álags, þekkingarleysis eða slysa getur haft neikvæð
áhrif á félagið og virðiskeðju þess. Slíkar áhættur eru vaktaðar og markvisst er unnið að því að byggja upp
heilbrigt vinnuumhverfi þar sem hlúð er að vellíðan starfsfólks, fjölbreytileika og inngildingu. Sterk liðsheild,
ástríða fyrir starfinu, metnaður og fagmennska er forsenda góðs árangurs í starfi. Að fólki líði vel í vinnunni,
það fái útrás fyrir sköpunarþörf sína og takist á við verkefni sem þroska það í leik og starfi. Truflanir geta hins
vegar orðið á starfseminni ef starfsfólksvelta, veikindi, álag eða þekkingarleysi verða of mikil. Óhöpp og slys
geta einnig haft neikvæð áhrif á starfsemina. Félagið bregst við þessari áhættu með því að rækta sterka
menningu meðal starfsfólks, tryggja að starfsfólki líði vel, það þróist í starfi og sé metið að verðleikum. Haldið
er úti skipulögðu fræðslustarfi til að auka hæfni starfsfólks og viðhalda markvisst þekkingu innan félagsins.
Stuðlað er að jafnrétti og jafnvægi milli vinnu og einkalífs auk þess að undirgangast þær skyldur sem lagðar
eru á fyrirtækið.
Áföll í fjarskiptaneti, fjarskipta- og/eða upplýsingakerfum
Upplifun viðskiptavina af þjónustu félagsins skiptir máli. Mikilvægi þjónustunnar eykst sífellt og viðskiptavinir
treysta á áhyggjulausa notkun og að starfsemin uppfylli þeirra væntingar. Einstaklingar og fyrirtæki treysta
því að kerfin veiti þeim umsamda þjónustu og öll áföll sem leiða til neikvæðrar þjónustuupplifunar geta
skaðað orðspor og jafnvel aukið brottfall. Mistök starfsfólks eða þjónustuaðila geta valdið óþarfa álagi og
rekstrartruflunum. Áhættan getur hlutgerst á öllum þeim stöðum sem félagið hefur starfsemi, hvort sem er í
tækjarýmum, hýsingarsölum, verslunum, þjónustuveri, sendastöðum eða skrifstofum. Skilvirkir innri ferlar
félagsins geta dregið úr hættunni á því að rangar ákvarðanir um innkaup og jafnvel högun kerfa og
uppbyggingu til framtíðar séu teknar. Áhættan hefur meiriháttar staðbundin áhrif ef hún hlutgerist, en getur í
verstu útföllunum valdið sambandsleysi á landsvísu. Félagið bregst við þessari áhættu með því að skilgreina
öll fjarskiptakerfi innan umfangs upplýsingaöryggisvottunar á staðlinum ISO 27001. Kröfur um afritun og
afkastagetur kerfa er innbyggt í kerfislega högun. Varaleiðir sambanda eru hluti af uppbyggingu netkerfa auk
þess sem vöktun er til staðar allan sólarhringinn alla daga ársins. Mikilvægustu innviðir starfseminnar eru
varðir fyrir óheimiluðum raunlægum aðgangi. Öll netkerfi, kjarnabúnaður og stoðeiningar eru tengd
áætlunum um rekstrarsamfellu.
Ársreikningur Sýnar hf. 2025 46 .