Sýn hf.
Samstæðuársreikningur
2022
.
Bls.
Skýrsla og áritun stjórnar og forstjóra 3
Fjárhagslegar lykiltölur 7
Áritun óháðra endurskoðenda 8
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu 12
Efnahagsreikningur 13
Eiginfjáryfirlit 14
Sjóðstreymisyfirlit 15
Skýringar 16
Viðaukar:
Ársfjórðungsyfirlit 38
Ófjárhagslegar upplýsingar 40
Stjórnarháttayfirlýsing 48
Efnisyfirlit
.
Efnahagsreikningur
Fastafjármunir hækka um 409 millj. kr. á milli ára. Leigueignir hækka um 571 millj. kr. Veltufjármunir
lækka um 3.548 millj. kr á milli ára sem skýrist af háu handbæru fé árið 2021 vegna innviðasölu og
viðskiptakröfu vegna virðisaukaskatts af innviðasölu en krafan var greidd 2022. Hluti af handbæru fé
var nýtt í kaup í eigin bréfum á árinu.
Langtímaskuldir hækka um 64 millj. kr. á milli ára. Leiguskuldbindingar í heild aukast um 516 millj. kr.
sem skýrist að mestu af vísitöluhækkunum í leigusamningum. Vaxtaberandi langtímaskuldir lækka um
164 millj. kr. á milli ára. Skammtímaskuldir lækka um 1.573 millj. kr. sem skýrist helst af skuld á árinu
2021 vegna virðisaukaskatts af innviðasölu sem endurspeglaðist á móti í hærri viðskiptakröfum.
Áhrif af hlutdeildarfélögum batna á milli ára um 251 millj. kr. sem skýrist að miklu leyti af tapi á sölu á
færeyska hlutdeildarfélaginu P/F 20.11.19 (áður Hey) árið 2021.
Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði var 1.592 millj. kr. samanborið við 3.286 millj. kr. árið áður en ef
leiðrétt er fyrir söluhagnaði vegna sölu óvirkra farsímainnviða árið 2021 þá er rekstrarhagnaður fyrir
fjármagnsliði um 858 millj. kr. hærri árið 2022 en árið 2021.
Samkvæmt rekstrarreikningi námu tekjur samstæðunnar af seldum vörum og þjónustu 22.983 millj.
kr. samanborið við 21.765 millj. kr. á árinu 2021 sem er aukning um 6%. Helstu ástæður aukningar í
tekjum á milli ára eru hærri farsímatekjur, þar sem reiki og IOT spila stórt hlutverk, ásamt aukningu í
áskrifta- og auglýsingatekjum. Framlegð félagsins á árinu 2022 var 34,9% á móti 32,6% á árinu 2021.
Framlegð hækkar á milli ára vegna betri nýtingar á fastafjármunum félagsins og breyttri
vörusamsetningu. Rekstrarkostnaður helst nánast óbreyttur á milli ára.
Fjármagnsgjöld hækka um 385 millj. kr. á milli ára sem skýrist annars vegar af hærri
leiguskuldbindingu vegna langtímaleigusamnings sem gerður var í lok ársins 2021 samhliða sölu
innviða og hins vegar vegna hækkunar stýrivaxta en vaxtagjöld vegna langtímalána hækka á milli ára
þrátt fyrir lægri skuldsetningu. Gengistap var 70 millj. kr. árið 2022 vegna veikingar krónunnar á
tímabilinu samanborið við 18 millj. kr. gengishagnað árið 2021.
Skýrsla og áritun stjórnar og forstjóra
Ársreikningur samstæðu Sýnar hf. fyrir árið 2022 samanstendur af ársreikningi Sýnar hf. (Sýn eða
félagið) og dótturfélags þess (Endor ehf.) ásamt hlutdeild í sameiginlegum rekstri í Sendafélaginu
ehf., sem vísað er til í heild sem ,,samstæðunnar".
Um Sýn hf.
Sýn hf. veitir einstaklingum, fyrirtækjum og opinberum aðilum alhliða fjarskipta-, fjölmiðla- og
tækniþjónustu í gegnum vörumerkin Vodafone, Stöð 2, Stöð 2+, Stöð 2 Sport, Vísi, Bylgjuna, FM957,
X977 og dótturfélagið Endor ehf. Félagið á í fjölþættu alþjóðlegu samstarfi við Vodafone Group sem
er eitt stærsta og útbreiddasta fjarskiptafyrirtæki heims.
Stefna félagsins er að vera nútímalegt þjónustufyrirtæki þar sem viðskiptavinurinn er í fyrirrúmi.
Innviðir félagsins eru skipulagðir og nýttir til að veita viðskiptavinum virðisaukandi þjónustu og til að
bæta arðsemi. Lögð er áhersla á að rækta langtíma viðskiptasamband sem byggir á virðingu og
trausti. Kjarninn í stefnunni er upplifun viðskiptavina og er einfaldleikinn þar í fyrirrúmi. Einnig er lögð
áhersla á að einfalda reksturinn ásamt ferlum og kerfum innanhúss. Stefna félagsins endurspeglast í
nálgun þess á sjálfbærni í rekstri, góða stjórnarhætti, áhættustýringu, ánægju starfsmanna og
menningu.
Rekstur ársins 2022
Hagnaður ársins var 888 millj. kr. samanborið við hagnað upp á 2.100 millj. kr. árið áður. Innifalið í
hagnaði ársins 2021 var 2.552 hagnaður fyrir skatta vegna innviðasölu. Þýðingarmunur af
dótturfélaginu Endor ehf. er færður yfir eigið fé og var heildarafkoma ársins 889 millj. kr. Rekstur
félagsins heldur því áfram að styrkjast.
Eiginfjárhlutfall samstæðunnar var 27,9% í árslok samanborið við 28,9% árið áður.
Fjöldi ársverka á árinu voru 460 samanborið við 462 árið 2021.
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 3 Fjárhæðir eru í millj. kr.
Sjóðstreymi
Handbært fé frá rekstri var 5.628 millj. kr. samanborið við 5.017 millj. kr. árið áður. Fjárfestingar ársins
voru 3.992 millj. kr. en árið 2021 voru fjárfestingahreyfingar jákvæðar sem skýrðist af sölu á óvirkum
innviðum og sölu á eignarhlut í færeyska félaginu P/F 20.11.19 (áður Hey). Fjárfestingar í varanlegum
rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum árið 2022 voru 1.681 millj. kr á móti 1.214 millj. kr. á árinu
2021, hækkun á milli ára skýrist að mestu af fjárfestingu í 5G uppbyggingu. Fjárfestingar í
sýningarréttum lækkuðu um 250 millj. kr. á milli ára. Greiðsla vegna leiguskuldbindinga hækkaði um
220 millj. kr. á milli ára, aðallega vegna langtíma leigusamningsins sem gerður var samhliða
innviðasölu í lok árs 2021. Á árinu voru keypt eigin bréf fyrir andvirði 1.955 millj. kr.
Hins vegar var með sama frumvarpi leidd í lög heimild til gjaldtöku vegna endurnýjun tíðniheimilda á
þessu ári. Til viðbótar hefur Fjarskiptastofa birt áform um hertar hraða og útbreiðslukröfur í tengslum
við endurnýjun tíðniheimilda. Sýn hefur bent á að verkefni við að ná fram 100% útbreiðslu á öllum
stofnvegum er óraunhæft og mikil sóun falin í því að gera alla vegkafla 100% dekkaða og slitlausa.
Hafa ber í huga að fjármagni sem verður varið í að uppfylla þessar kröfur mun draga úr
fjárfestingargetu á öðrum svæðum. Þær kvaðir sem til stendur að leggja á Sýn vegna útgáfu
tíðniheimilda og fyrirhugaðra uppbyggingarkvaða eru verulega íþyngjandi og ná yfir 20 ára tímabil.
Til viðbótar þessum kvöðum eru almennar útbreiðslukröfur. Jafnframt eru kvaðir sem lagðar hafa
verið á Sýn vegna uppbyggingu í 5G.
Sýn er jafnframt fjölmiðlafyrirtæki sem rekur m.a. streymisveituna Stöð 2+. Þrátt fyrir endurteknar
yfirlýsingar stjórnvalda um nauðsyn þess að jafna samkeppnisstöðu innlendra fjölmiðla og erlendra
streymisveitna hafa stjórnvöld enn sem komið er ekki gripið til neins konar aðgerða í þá veru, svo sem
með því að leggja skatt á erlendar streymisveitur eins og tíðkast víða í Evrópu, þ.m.t. á
Norðurlöndum. Á sama tíma hafa stjórnvöld leitt í lög endurgreiðsluheimildir úr kvikmyndasjóði til
erlendra framleiðenda af kvikmyndum og sjónvarpsefni sem leiða munu til endurgreiðslu á um 3.600
millj. kr. vegna eins verkefnis. Sama löggjöf girðir fyrir að Stöð 2 geti sótt með beinum hætti um
endurgreiðslur í kvikmyndasjóði vegna eigin framleiðslu á sjónvarpsefni. Þá ber að nefna að framlög
úr ríkissjóði til Ríkisútvarpsins voru hækkuð um 430 millj. kr. milli áranna 2021 og 2022, en sú fjárhæð
er hærri en sem nam styrkjum til allra einkarekinna fjölmiðla, þ.e. ljósvakamiðla og dagblaða, á sama
tímabili.
Óvissuþættir og ytra umhverfi
Með frumvarpi sem varð að fjarskiptalögum nr. 70/2022 var ákveðinni óvissu eytt varðandi möguleg
inngrip stjórnvalda í tengslum við val Sýnar hf. á birgjum við uppbyggingu farneta. Þannig getur
ráðherra heimilað með reglugerð notkun búnaðar frá öðrum ríkjum en þeim sem Ísland á í
öryggissamstarfi við.
Þann 20. desember 2022 undirrituðu Sýn hf. og Ljósleiðarinn ehf. kaupsamning um kaup Ljósleiðarans
á stofnneti Sýnar og langtíma þjónustusamning milli félaganna. Umsamið kaupverð er 3.000 millj. kr.
Kaupsamningsgreiðsla verður innt af hendi í áföngum og verður kaupverðið að fullu greitt eigi síðar
en 12 mánuðum frá afhendingu hinna seldu eigna. Hinar seldu eignir eru bókfærðar á 564 millj. kr. og
nemur söluhagnaður því 2.436 millj. kr. og mun bókfærast að fullu við afhendingu.
Samhliða kaupsamningi hefur verið gerður þjónustusamningur milli félaganna til 12 ára um
heildsöluaðgang og þjónustu yfir burðar- og aðgangsnet Ljósleiðarans, sem og þjónustu um
internettengingar til útlanda.
Gert er ráð fyrir að viðskiptin hafi jákvæð áhrif á rekstrarkostnað Sýnar um 100 millj. kr. nettó á ári. Þá
lækki árleg fjárfestingaþörf í kringum 120 millj. kr. yfir samningstímann.
Viðskiptin eru með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins en samrunatilkynning verður send til
Samkeppniseftirlitsins innan skamms.
Sala á stofnneti
Skýrsla og áritun stjórnar og forstjóra frh.:
Efnahagsreikningur frh.:
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 4 Fjárhæðir eru í millj. kr.
Nafn
Fjöldi
hluta
31.12.2022
(´000)
hlutur %
31.12.2022
hlutur %
31.12.2021
Gavia Invest ehf.
42.147 15,7% 0 0,0%
Gildi - lífeyrissjóður
37.641 14,0% 33.441 11,3%
Kvika banki hf.
21.561 8,0% 23.696 8,0%
Lífeyrissjóður verzlunarmanna
18.822 7,0% 30.822 10,4%
Arion banki hf.
17.977 6,7% 21.885 7,4%
Lífeyrissj.starfsm.rík. A-deild
17.820 6,6% 18.600 6,3%
Birta lífeyrissjóður
13.727 5,1% 15.701 5,3%
Íslandsbanki hf.
9.335 3,5% 2.353 0,8%
Fossar fjárfestingarbanki hf.
8.900 3,3% 0 0,0%
Tækifæri ehf.
6.160 2,3% 0 0,0%
194.090
72,3%
146.499
49,4%
Aðrir hluthafar
72.674
27,1%
149.942
50,6%
Sýn - eigin hlutir
1.613
0,6%
0
0,0%
Samtals útistandandi hlutir
268.377
100,0%
296.441
100,0%
Skýrsla og áritun stjórnar og forstjóra frh.:
Hlutafé og samþykktir
Félagið átti 1.612.886 eigin bréf í árslok 2022. Nánari upplýsingar um atriði tengd hlutafé er að finna í
skýringu 20. Viðbótarupplýsingar um hluthafa má nálgast á vefsíðu Sýnar hf. www.syn.is
Stjórn leggur til að greiddur verði arður til hluthafa að fjárhæð 300 millj. kr. vegna rekstrarársins
2022.
Hluthafar í árslok 2022 voru 368 (2021: 326) Eftirfarandi tafla sýnir 10 stærstu hluthafa við árslok
2022 og breytingar á atkvæðahlutdeild þeirra á árinu.:
Útgefið hlutafé félagsins nam í árslok 2.684 millj. kr. Hver hlutur er 10 krónur að nafnverði. Hlutaféð er
í einum flokki sem skráður er á hlutabréfamarkað Nasdaq Iceland. Allir hlutir njóta sömu réttinda.
Eigendur hluta í félaginu eiga rétt til arðs í hlutfalli við eign sína við arðsúthlutun.
Á aðalfundi félagsins þann 18. mars 2022 var samþykkt arðgreiðslustefna fyrir félagið. Stefnt er að því
að greiða hluthöfum arð og/eða framkvæma endurkaup eigin hluta sem nemur 30-60% af hagnaði
eftir skatta í samræmi við gildandi lög og reglur hverju sinni. Við mótun tillagna um arðgreiðslu
og/eða kaup á eigin hlutum skal stjórn taka tillit til; markmiða fjárstýringastefnu félagsins,
markaðsaðstæðna og fjárfestingarþarfar félagsins.
Félagið hefur heimild til að kaupa allt að 10% af hlutafé félagsins í þeim tilgangi að koma á
viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun. Í ársbyrjun
2022 ákvað stjórn að setja í gang endurkaupaáætlun í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé
félagsins. Endurkaupaáætlunin hófst með öfugu útboði þann 7. janúar sem lauk 9. janúar. Til viðbótar
voru sett í gang regluleg endurkaup sem stóðu yfir frá 13. janúar til 3. mars. Félagið keypti í heild
28.064.512 hluti eða 9,47% af útgefnu hlutafé fyrir 1.860 millj. kr. Á aðalfundi félagsins þann 18. mars
var samþykkt tillaga stjórnar um að lækka hlutafé í samræmi við fjölda eigin hluta. Lækkunin var
framkvæmd þann 12. apríl og eru útgefnir hlutir í félaginu 268.376.962 eftir lækkunina. Þann 7.
nóvember hófst önnur endurkaupaáætlun sem stendur enn yfir. Endurkaupin munu að hámarki nema
4.958.678 hlutum, eða um 1,85% af útgefnum hlutum félagsins, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna
fari ekki yfir 300 millj. kr. Í lok árs 2022 átti félagið 1.612.886 eigin bréf.
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 5 Fjárhæðir eru í millj. kr.
Yfirlýsing
Í stjórn
Rannveig Eir Einarsdóttir, varaformaður
Hákon Stefánsson
Páll Gíslason
Salóme Guðmundsdóttir
Forstjóri
Yngvi Halldórsson
Reykjavík, 15. febrúar 2023
Skýrsla og áritun stjórnar og forstjóra frh.:
Stjórn og forstjóri Sýnar hf. hafa í dag fjallað um og afgreitt samstæðuársreikning félagsins fyrir árið
2022 og staðfesta hann með undirritun sinni.
Stjórnarhættir og ófjárhagsleg upplýsingagjöf
Stjórn Sýnar hf. leitast við að viðhalda góðum stjórnarháttum og fylgja leiðbeiningum um
stjórnarhætti fyrirtækja sem gefnar eru út af Viðskiptaráði Íslands, Nasdaq Iceland og Samtökum
atvinnulífsins og voru endurútgefnar árið 2021.
Starfsemi Sýnar hf. fellur undir ákvæði laga um ársreikninga um ófjárhagslegar upplýsingar þar sem
m.a. eru gerðar kröfur um að fjallað sé um stöðu og áhrif félagsins í tengslum við umhverfismál,
félagslega þætti og stjórnarhætti. Þær upplýsingar ásamt upplýsingum um áhættustefnu og stjórn
má finna í viðaukum með ársreikningnum. Á síðastliðnu ári hófst innleiðing á Global Reporting
Initiative (GRI) sjálfbærnistaðlinum. Markmiðið er að kortleggja enn frekar snertifleti starfseminnar við
samfélag og umhverfi með tilliti til helstu hagaðila félagsins. Stefnan er að efla sjálfbærni á öllum
sviðum starfseminnar þannig að hún sé hluti af ferlum og ákvörðunartöku félagsins.
Sýn varð fyrst skráðra félaga á hlutabréfamarkaði á Íslandi til að koma á fót tilnefningarnefnd og
starfsreglum fyrir hana haustið 2014. Hlutverk nefndarinnar er að tilnefna frambjóðendur til
stjórnarsetu í félaginu fyrir aðalfund þess og við þá vinnu taka mið af heildarhagsmunum hluthafa.
Markmiðið er að stuðla að aukinni fagmennsku, gagnsæi og skilvirkni við myndun stjórnar Sýnar hf.
hverju sinni. Félagið er með skráð hlutabréf í Kauphöllinni og ber því að fylgja leiðbeiningum um
stjórnarhætti samkvæmt reglum Kauphallarinnar sem hægt er að nálgast á vef hennar. Stjórn Sýnar
leggur áherslu á að endurskoða ávallt stjórnarhætti félagsins til bregðast við breytingum á lögum og
þróun hér á landi og erlendis.
Í árs- og sjálfbærniskýrslu félagsins má finna stefnu Sýnar í samfélagsábyrgð. Þar eru ítarlegar
upplýsingar um ófjárhagslega mælikvarða byggðar á GRI staðlinum, sem endurspegla áhrif
starfseminnar á helstu málaflokka samfélagsábyrgðar, ásamt umhverfisuppgjöri félagsins. Í skýrslunni
er einnig að finna lýsingu á viðskiptalíkani félagsins, aðgerðum gegn spillingu og mútumálum, ásamt
lýsingu á virðiskeðju félagsins.
Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra er ársreikningur samstæðunnar í samræmi við
alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu og
viðbótarkröfur sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um ársreikninga skráðra félaga. Er það
álit stjórnar og forstjóra að ársreikningurinn gefi glögga mynd af eignum, skuldum og fjárhagsstöðu
samstæðunnar 31. desember 2022 ásamt rekstrarafkomu hennar og breytingu á handbæru fé á árinu
2022. Jafnframt er það álit stjórnar og forstjóra að ársreikningurinn og skýrsla stjórnar fyrir árið 2022
gefi glöggt yfirlit um árangur af rekstri samstæðunnar, stöðu hennar og þróun og lýsi helstu
áhættuþáttum sem samstæðan býr við.
Jón Skaftason, stjórnarformaður
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 6 Fjárhæðir eru í millj. kr.
* Búið er að leiðrétta EBITDA samstæðunnar 2021 fyrir söluhagnaði vegna innviðasölu og kostnaði við söluna.
Fjárhagslegar lykiltölur
**Frjálst fjárflæði samanstendur af handbæru fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt að frádregnum
fjárfestingahreyfingum.
22.983
21.765
2022 2021
HEILDARTEKJUR
6.644
6.432
2022 2021
AÐLÖGUÐ EBITDA OG
AÐLAGAÐ EBITDA
HLUTFALL*
28,9%
29,6%
888
2.100
2022 2021
AFKOMA
3.111
1.474
2022 2021
HREINAR VAXTABERANDI
SKULDIR ÁN
LEIGUSKULDBINDINGAR
1.681
1.214
2022 2021
FJÁRFESTINGAR
(ÁN SÝNINGARÉTTA)
2.291
2.541
2022 2021
FJÁRFESTINGAR Í
SÝNINGARÉTTI
5.628
5.017
2022 2021
HANDBÆRT FÉ FRÁ REKSTRI
2.493
9.835
2022 2021
FRJÁLST FJÁRFLÆÐI**
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 7 Fjárhæðir eru í millj. kr.
Til stjórnar og hluthafa Sýnar hf.
Álit okkar er í samræmi við þær upplýsingar sem koma fram í endurskoðunarskýrslu okkar til
endurskoðunarnefndar Sýnar hf. í samræmi við 11. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 537/2014.
Við teljum að við endurskoðunina höfum við aflað nægilegra og viðeigandi gagna til að byggja álit okkar á.
Endurskoðunaraðgerðir okkar voru miðaðar að því að
leggja mat á hönnun, innleiðingu og virkni viðeigandi
tölvueftirlitsþátta sem tengjast tekjuskráningu ásamt því
að beita gagnaendurskoðunaraðgerðum með það að
markmiði að sannreyna tilvist, nákvæmni og heild
tekjuskráningar. Í þessari vinnu fólst m.a. eftirfarandi:
Frekari upplýsingar um tekjustrauma félagsins
má sjá í skýringu 3 með
samstæðuársreikningnum.
Prófanir á tekjuskráningu félagsins með greiningartóli
þar sem tekjufærslur eru greindar og óvenjulegar færslur
teknar til frekari skoðunar.
Megináherslur við endurskoðun
Hvernig við endurskoðuðum megináherslur
Tekjuskráning
Tekjuskráning félagsins er umfangsmikil og
byggir á miklu magni færslna úr ýmsum kerfum.
Af þessum ástæðum er tekjuskráning ein af
megináherslum í endurskoðuninni.
Yfirferð á innra eftirliti félagsins vegna tekjuskráningar
og prófanir á eftirlitsþáttum í upplýsingakerfum ásamt
prófunum á öðrum mikilvægum eftirlitsþáttum tengdum
tekjuskráningu.
Skoðun á flæði milli tekju- og fjárhagskerfa og
afstemmingum á milli kerfanna.
Skoðanir á aðgangsheimildum starfsmanna í
fjárhagskerfi og ferlinu í kringum breytingar á kerfinu.
Grundvöllur fyrir áliti
Endurskoðað var í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Ábyrgð okkar samkvæmt þeim stöðlum er
nánar lýst í kaflanum um ábyrgð endurskoðanda hér að neðan. Við erum óháð Sýn hf. í samræmi við alþjóðlegar
siðareglur fyrir endurskoðendur sem og aðrar siðareglur sem eru viðeigandi við endurskoðun á Íslandi, og
höfum við uppfyllt ákvæði þeirra reglna. Þar með talið, í samræmi við okkar bestu þekkingu, höfum við ekki
veitt Sýn hf., eða þar sem við á, móðurfélagi þess eða dótturfélögum innan Evrópusambandsins, óheimilaða
þjónustu sem um getur í 1. mgr. 5. gr reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 537/2014.
Megináherslur við endurskoðunina
Megináherslur við endurskoðunina eru þau atriði, sem að okkar faglega mati, hafa mesta þýðingu fyrir
endurskoðun okkar á samstæðuársreikningi félagsins árið 2022. Þessi atriði voru yfirfarin við endurskoðun á
samstæðuársreikningnum og höfð til hliðsjónar við ákvörðun á viðeigandi áliti á honum. Í áritun okkar látum við
ekki í ljós sérstakt álit á hverju þeirra fyrir sig.
Áritun óháðra endurskoðenda
Álit
Það er álit okkar að samstæðuársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins á árinu 2022, efnahag þess
31. desember 2022 og breytingu á handbæru fé á árinu 2022, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins
og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur í lögum um ársreikninga.
Við höfum endurskoðað meðfylgjandi samstæðuársreikning Sýnar hf. fyrir árið 2022. Samstæðuársreikningurinn
hefur að geyma rekstrarreikning, yfirlit um heildarafkomu, efnahagsreikning, yfirlit um breytingu á eigin fé, yfirlit
um sjóðstreymi, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar.
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 8 Fjárhæðir eru í millj. kr.
Megináherslur við endurskoðun
Hvernig við endurskoðuðum megináherslur
Viðskiptavild
Yfirferð á forsendum fyrir áætluðum framtíðarvexti að
loknu spátímabili.
Við endurskoðun viðskiptavildar fórum við ásamt
verðmatssérfræðingum okkar yfir virðisrýrnunarpróf
stjórnenda félagsins. Við fórum yfir þá aðferðafræði sem
beitt er við framkvæmd virðisrýrnunarprófsins og hvort
breytingar hafi orðið á henni á milli ára. Við yfirferð okkar
á virðisrýrnunarprófinu framkvæmdum við m.a.
eftirfarandi vinnu:
Áritun óháðra endurskoðenda, frh.:
Ábyrgð stjórnar og forstjóra á samstæðuársreikningnum
Stjórn og forstjóri eru ábyrg fyrir gerð og framsetningu samstæðuársreikningsins í samræmi við alþjóðlega
reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu og viðbótar kröfur í lögum um
ársreikninga. Stjórn og forstjóri eru einnig ábyrg fyrir því innra eftirliti sem nauðsynlegt er varðandi gerð og
framsetningu samstæðuársreikningsins, þannig að hann sé án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi
eða mistaka.
Ábyrgð endurskoðenda á endurskoðun samstæðuársreiknings
Markmið okkar er að afla nægjanlegrar vissu um að samstæðuársreikningurinn sé án verulegra annmarka, hvort
sem er af völdum sviksemi eða mistaka og að gefa út áritun sem felur í sér álit okkar.
Nægjanlega vissa er þó ekki trygging þess að endurskoðun sem er framkvæmd í samræmi við alþjóðlega
endurskoðunarstaðla muni uppgötva allar verulegar skekkjur séu þær til staðar. Skekkjur geta orðið vegna
mistaka eða sviksemi og eru álitnar verulegar ef þær gætu haft áhrif á fjárhagslega ákvarðanatöku notenda
samstæðuársreikningsins, einar og sér eða samanlagðar.
Við gerð samstæðuársreikningsins eru stjórn og forstjóri ábyrg fyrir því að meta rekstrarhæfi Sýnar hf. Ef við á,
skulu stjórn og forstjóri setja fram viðeigandi skýringar um rekstrarhæfi og hvers vegna þau ákváðu að beita
forsendunni um rekstrarhæfi við gerð og framsetningu samstæðuársreikningsins, nema stjórn og forstjóri hafi
ákveðið að leysa félagið upp eða hætta starfsemi, eða hafa enga aðra raunhæfa möguleika en að gera það.
Viðskiptavild félagsins nemur 8,9 milljörðum króna
í árslok.
Virði viðskiptavildar er háð mati stjórnenda á
forsendum um áætlað framtíðarsjóðstreymi
sjóðskapandi einingar og öðrum forsendum sem
notaðar eru við núvirðingu áætlaðs sjóðstreymis.
Þar sem viðskiptavild er verulegur liður í
efnahagsreikningi félagsins og háð mati
stjórnenda teljum við mat hennar eina af
megináherslum við endurskoðunina.
Nánari umfjöllun um viðskiptavildina er að finna í
skýringu 12 með samstæðuársreikningnum.
Aðrar upplýsingar
Í tengslum við endurskoðun okkar, berum við ábyrgð á að lesa ofangreindar aðrar upplýsingar og skoða hvort
þær séu í verulegu ósamræmi við samstæðuársreikninginn eða þá þekkingu sem við höfum aflað við
endurskoðunina. Ef við komumst að þeirri niðurstöðu, byggt á þeirri vinnu sem við höfum framkvæmt, að það
séu verulegar skekkjur í öðrum upplýsingum sem við fengum fyrir áritunardag ber okkur að skýra frá því. Það
er ekkert sem við þurfum að skýra frá hvað þetta varðar.
Í samræmi við ákvæði 2. mgr. 104 gr. laga nr. 3/2006 um ársreikninga staðfestum við samkvæmt okkar bestu
vitund að í skýrslu stjórnar sem fylgir samstæðuársreikningi þessum eru veittar þær upplýsingar sem þar ber að
veita í samræmi við lög um ársreikninga og koma ekki fram í skýringum.
Stjórn og forstjóri bera ábyrgð á öðrum upplýsingum. Aðrar upplýsingar samanstanda af skýrslu stjórnar,
stjórnarháttayfirlýsingu, ófjárhagslegum upplýsingum og ársfjórðungsyfirliti.
Álit okkar á samstæðuársreikningnum nær ekki yfir aðrar upplýsingar og við látum ekki í ljós staðfestingu eða
ályktun, í neinu formi, vegna þeirra ef frá er talin sú staðfesting varðandi skýrslu stjórnar sem fram kemur hér
fyrir neðan.
Yfirferð á forsendum í áætlunum stjórnenda sem eru til
grundvallar á núvirtu framtíðarsjóðstreymi og hvort þær
séu raunhæfar.
Yfirferð yfir ávöxtunarkröfu (WACC) og samanburður á
ávöxtunarkröfu við markaðsforsendur.
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 9 Fjárhæðir eru í millj. kr.
Jafnframt því að sinna skyldum okkar sem kjörnir endurskoðendur félagsins hefur Deloitte veitt félaginu ýmsa
aðra heimilaða þjónustu svo sem könnun árshlutareiknings, aðra staðfestingarvinnu og skattaráðgjöf. Deloitte
hefur til staðar innri ferla til að tryggja óhæði sitt áður en við tökum að okkur önnur verkefni. Deloitte hefur
staðfest skriflega við endurskoðunarnefndina að við erum óháð Sýn hf.
Við höfum einnig lýst því yfir við stjórn og endurskoðunarnefnd að við höfum uppfyllt skyldur siðareglna um
óhæði og höfum miðlað til þeirra upplýsingum um tengsl eða önnur atriði sem gætu mögulega haft áhrif á
óhæði okkar og þar sem viðeigandi er, hvaða varnir við höfum sett til að tryggja óhæði okkar.
Metum hvort reikningsskilaaðferðir sem notaðar eru, og tengdar skýringar, séu viðeigandi og hvort
reikningshaldslegt mat stjórnenda sé raunhæft.
Ályktum um notkun stjórnenda á forsendunni um rekstrarhæfi og metum á grundvelli endurskoðunarinnar
hvort verulegur vafi leiki á rekstrarhæfi eða hvort aðstæður séu til staðar sem gætu valdið verulegum
efasemdum um rekstrarhæfi. Ef við teljum að verulegur vafi leiki á rekstrarhæfi ber okkur að vekja sérstaka
athygli á viðeigandi skýringum samstæðuársreikningsins í áritun okkar. Ef slíkar skýringar eru ófullnægjandi
þurfum við að víkja frá fyrirvaralausri áritun. Niðurstaða okkar byggir á endurskoðunargögnum sem aflað er
fram að dagsetningu áritunar okkar. Engu að síður geta atburðir eða aðstæður í framtíðinni valdið óvissu um
rekstrarhæfi félagsins.
Ábyrgð endurskoðenda á endurskoðun samstæðuársreiknings, frh:
Endurskoðun okkar í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla byggir á faglegri dómgreind og beitum við
faglegri tortryggni í gegnum endurskoðunina. Við framkvæmum einnig eftirfarandi:
Greinum og metum hættuna á verulegri skekkju í samstæðuársreikningnum, hvort sem er vegna mistaka eða
sviksemi, hönnum og framkvæmum endurskoðunaraðgerðir til að bregðast við þeim hættum og öflum
endurskoðunargagna sem eru nægjanleg og viðeigandi til að byggja álit okkar á. Hættan á að uppgötva ekki
verulega skekkju vegna sviksemi er meiri en að uppgötva ekki skekkju vegna mistaka, þar sem sviksemi getur
falið í sér samsæri, skjalafals, misvísandi framsetningu samstæðuársreiknings, að einhverju sé viljandi sleppt eða
að farið sé framhjá innri eftirlitsaðgerðum.
Öflum skilnings á innra eftirliti, sem snertir endurskoðunina, í þeim tilgangi að hanna viðeigandi
endurskoðunaraðgerðir, en ekki í þeim tilgangi að veita álit á virkni innra eftirlits félagsins.
Metum í heild sinni hvort samstæðuársreikningurinn gefi glögga mynd af undirliggjandi viðskiptum og
atburðum, metum framsetningu, uppbyggingu, innihald og þar með talið skýringar við samstæðuársreikninginn
með tilliti til glöggrar myndar.
Okkur ber skylda til að upplýsa stjórn og endurskoðunarnefnd meðal annars um áætlað umfang og
tímasetningu endurskoðunarinnar og veruleg atriði sem komu upp í endurskoðun okkar, þar á meðal verulega
annmarka á innra eftirlit sem komu fram í endurskoðuninni, ef við á.
Af þeim atriðum sem við höfum upplýst stjórn og endurskoðunarnefnd um, lögðum við mat á hvaða atriði höfðu
mesta þýðingu í endurskoðuninni á yfirstandandi ári og eru það megináherslur í endurskoðuninni. Við lýsum
þessum atriðum í áritun okkar nema lög og reglur leyfi ekki að upplýst sé um slík atriði eða í
undantekningartilfellum þegar endurskoðandinn metur að ekki skuli upplýsa um viðkomandi atriði þar sem
neikvæðar afleiðingar upplýsinganna eru taldar vega þyngra en almannahagsmunir.
Öflum fullnægjandi endurskoðunargagna, vegna fjárhagsupplýsinga eininga innan samstæðunnar, til að geta
látið í ljós álit á samstæðuársreikningi. Við erum ábyrg fyrir skipulagi, umsjón og framgangi endurskoðunar
samstæðunnar. Við berum ein ábyrgð á áliti okkar.
Áritun óháðra endurskoðenda, frh.:
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 10 Fjárhæðir eru í millj. kr.
Steina Dröfn Snorradóttir
endurskoðandi
Kópavogur, 15. febrúar 2023
Deloitte ehf.
endurskoðandi
Jóhann Óskar Haraldsson
Stjórn og forstjóri eru ábyrg fyrir gerð samstæðuársreikningsins í samræmi við lög um upplýsingaskyldu
útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu nr. 20/2021. Í því felst meðal annars að útbúa samstæðuársreikninginn
á XHTML formi í samræmi við ákvæði reglugerðar Evrópusambandsins EU 2019/815, um sameiginleg rafræn
skýrslusnið.
Ábyrgð okkar er að afla hæfilegrar vissu um hvort samstæðuársreikningurinn, byggt á þeim gögnum sem við
höfum aflað, sé í öllum meginatriðum gerður í samræmi við ESEF reglur og gefa út áritun með áliti okkar. Eðli,
tímasetning og umfang vinnunnar byggja á mati endurskoðandans, þar á meðal mati á áhættunni að vikið sé í
verulegum atriðum frá kröfum sem fram koma í ESEF reglunum, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.
Það er álit okkar að samstæðuársreikningur Sýnar hf. fyrir árið 2022 með skráarheitið 635400KNUVGJX3I1S518-
2022-12-31-is.zip hafi í öllum meginatriðum verið gerður í samræmi við kröfur laga um upplýsingaskyldu
útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu um sameiginlegt rafrænt skýrslusnið (ESEF reglur).
Deloitte var kjörið endurskoðandi Sýnar hf. á aðalfundi félagsins þann 18. mars 2022. Deloitte hefur verið
endurskoðandi Sýnar hf. síðan á aðalfundi félagsins árið 2016.
Áritun óháðra endurskoðenda, frh.:
Önnur atriði samkvæmt ákvæðum laga og reglna
Áritun vegna sameiginlegs rafræns skýrslusniðs (ESEF reglur)
Í tengslum við endurskoðun okkar á samstæðuársreikningi Sýnar hf. framkvæmdum við aðgerðir til að geta
gefið álit á því hvort samstæðuársreikningur Sýnar hf. fyrir árið 2022 með skráarheitið á zip
hafi í öllum meginatriðum verið gerður í samræmi við kröfur laga um upplýsingaskyldu útgefenda
verðbréfa og flöggunarskyldu nr. 20/2021 um sameiginleg rafræn skýrslusnið (e. European Single Electronic
Format), ESEF reglur EU 2019/815 sem innihalda skilyrði sem tengjast gerð samstæðuársreikningsins á XHTML
formi og iXBRL merkingum samstæðuársreikningsins.
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 11 Fjárhæðir eru í millj. kr.
Skýr.
2022 2021
3 22.983 21.765
4 ( 14.966) ( 14.672)
8.017 7.093
0 2.552
5 ( 6.425) ( 6.359)
1.592
3.286
222 22
( 998) ( 613)
Gengismunur ( 70) 18
7 ( 846) ( 573)
13 0 ( 251)
746 2.462
16 142 ( 362)
888 2.100
21 3,3 7,1
2022 2021
888 2.100
Þýðingarmunur 1 ( 114)
Heildarafkoma ársins 889 1.986
* Þynntur hagnaður á hlut er það sama og hagnaður á hlut.
Rekstrarreikningur
Seldar vörur og þjónusta
Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu
Hagnaður fyrir tekjuskatt
Framlegð
Hagnaður af sölu óvirkra innviða
Rekstrarhagnaður
Fjármunatekjur
Hrein fjármagnsgjöld
Rekstrarkostnaður
Fjármagnsgjöld
Tekjuskattur
Hagnaður ársins
Áhrif hlutdeildarfélaga
Hagnaður á hlut*
Yfirlit um heildarafkomu
Hagnaður ársins
Liðir sem gætu síðar verið færðir í rekstrarreikning
Skýringar á bls. 16-37 eru óaðskiljanlegur hluti ársreiknings samstæðunnar.
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 12 Fjárhæðir eru í millj. kr.
Skýr.
31.12.2022 31.12.2021
Leigueignir 8 8.620 8.049
9 2.866 3.212
157 166
Viðskiptavild 12 8.906 8.888
Aðrar óefnislegar eignir 12 4.389 4.469
Eignahlutir í félögum 13 185 62
Tekjuskattsinneign 17 158 26
25.281 24.872
Sýningarréttir 14 1.809 1.762
18 559 356
19 3.650 5.297
2.063 4.214
8.081 11.629
28 564 -
33.926 36.501
2.668 2.964
806 2.465
129 69
5.866 5.037
20 9.469 10.535
22 4.801 4.965
8 11.820 11.393
0 180
17 0 19
16.621 16.557
22 373 723
Leiguskuldbindingar 8 1.295 1.206
23 6.168 7.480
Skammtímaskuldir samtals 7.836 9.409
24.457 25.966
33.926 36.501
Skýringar á bls. 16-37 eru óaðskiljanlegur hluti ársreiknings samstæðunnar.
Handbært fé
Tekjuskattsskuldbinding
Langtímaskuldir samtals
Skammtímaskuldir
Vaxtaberandi skuldir
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir
Skuldir samtals
Yfirverðsreikningur hlutafjár
Annað eigið fé
Óráðstafað eigið fé
Eigið fé
Langtímaskuldir
Vaxtaberandi skuldir
Eignir samtals
Eignir flokkaðar til sölu
Eigið fé
Hlutafé
Veltufjármunir samtals
Birgðir
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur
Eigið fé og skuldir samtals
Efnahagsreikningur
Fastafjármunir
Fastafjármunir samtals
Veltufjármunir
Rekstrarfjármunir
Leiguskuldbindingar
Aðrar langtímaskuldir
Langtímaleigukröfur
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 13 Fjárhæðir eru í millj. kr.
Þýðingar- Bundinn
Óráðstafað
Eigið fé
Hlutafé Yfirverð munur reikningur eigið fé samtals
Eigið fé 1.1.2021 2.964 2.465 163 147 2.810 8.549
Hagnaður ársins - - - - 2.100 2.100
Þýðingarmunur - - ( 114) - - ( 114)
Heildarafkoma ársins 0 0 ( 114) 0 2.100 1.986
Hagnaður hlutd.fél. og dótturfél.
umfram arðgr.
- - - ( 127) 127 0
Eigið fé 31.12.2021 2.964 2.465 49 20 5.037 10.535
Eigið fé 1.1.2022 2.964 2.465 49 20 5.037 10.535
Hagnaður ársins - - - - 888 888
Þýðingarmunur - - 1 - - 1
Heildarafkoma ársins 0 0 1 0 888 889
Keypt eigin bréf
( 296)
( 1.659) 0 0 0 ( 1.955)
Hagnaður hlutd.fél. og dótturfél.
umfram arðgr.
- - - 59 ( 59) 0
Eigið fé 31.12.2022 2.668 806 50 79 5.866 9.469
Skýringar á bls. 16-37 eru óaðskiljanlegur hluti ársreiknings samstæðunnar
2022
Eiginfjáryfirlit
2021
Annað eigið fé
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 14 Fjárhæðir eru í millj. kr.
Skýr. 2022
2021
888 2.100
10 5.053 5.698
Söluhagnaður ( 2) ( 2.552)
*
7 846 573
Áhrif hlutdeildarfélaga 13 0 251
16 ( 142) 362
6.643 6.432
18 ( 193) ( 117)
19 1.577 ( 653)
23 ( 1.542) ( 65)
6.485 5.597
122 22
( 976) ( 602)
Greiddur tekjuskattur ( 3) -
5.628 5.017
- 6.946
Sala eignarhluta - 1.065
Keyptir eignarhlutir ( 22) ( 18)
9 ( 1.000) ( 400)
12 ( 681) ( 814)
Fjárfesting í sýningarrétti 14 ( 2.291) ( 2.541)
Sala rekstrarfjármuna 2 -
( 3.992) 4.238
( 474) ( 3.161)
( 40) ( 1.635)
( 1.326) ( 1.106)
( 1.955) -
( 3.795) ( 5.902)
( 2.159) 3.353
4.214 831
Gengisbreyting á handbæru fé og þýðingarmunur 8 29
2.063 4.214
* Söluhagnaður árið 2021 er vegna innviðasölu
Handbært fé í byrjun ársins
Handbært fé í lok ársins
Fjármögnunarhreyfingar
Breyting á handbæru fé
Afborganir vaxtaberandi skulda
Rekstrarlán, breyting
Fjármögnunarhreyfingar samtals
Afborgun leiguskuldbindinga
Keypt eigin bréf
Fjárfesting í rekstrarfjármunum
Fjárfesting í óefnislegum eignum
Fjárfestingahreyfingar samtals
Fjárfestingahreyfingar
Sala á óvirkum farsímainnviðum
Handbært fé frá rekstri
Innborgaðar vaxtatekjur
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir, breyting
Greidd vaxtagjöld
Sjóðstreymisyfirlit
Hagnaður ársins samkvæmt rekstrarreikningi
Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á sjóðstreymi:
Skýringar á bls. 16-37 eru óaðskiljanlegur hluti ársreiknings samstæðunnar
Tekjuskattur
Veltufé frá rekstri
Birgðir, breyting
Handbært fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt
Afskriftir
Hrein fjármagnsgjöld
Breyting á rekstrartengdum eignum og skuldum:
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur, breyting
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 15 Fjárhæðir eru í millj. kr.
1.
Félagið
2.
Reikningsskilin
a.
Grundvöllur reikningsskilanna
b.
Dótturfélög
2022 2021
Endor ehf.
100% 100% EUR
100% 100% SEK
100% 100% EUR
100% 0% ISK
c.
Sameiginlegur rekstur
Starfrækslu-
gjaldmiðill
Dótturfélög Sýnar hf. voru fjögur í árslok og eru eftirfarandi:
EC Germany GmbH
Pardus
Skýringar
Sýn hf. ("félagið") er íslenskt hlutafélag. Höfuðstöðvar félagsins eru að Suðurlandsbraut 8, Reykjavík,
Ísland. Sýn hf. veitir einstaklingum, fyrirtækjum og opinberum aðilum alhliða fjarskipta-, fjölmiðla- og
tækniþjónustu í gegnum vörumerkin Vodafone, Stöð 2, Stöð 2+, Stöð 2 Sport, Vísi, Bylgjuna, FM957,
X977 og dótturfélagið Endor ehf. Félagið á í fjölþættu alþjóðlegu samstarfi við Vodafone Group sem er
eitt stærsta og útbreiddasta fjarskiptafyrirtæki heims. Samstæðuársreikningur félagsins fyrir árið 2022
hefur að geyma ársreikning félagsins og dótturfélaga þess og hlutdeild í sameiginlegum rekstri í
Sendafélaginu ehf., sem vísað er til í heild sem ,,samstæðunnar".
Til að auka upplýsingagildi samstæðuársreikningsins eru skýringar við hann birtar á grundvelli þess
hversu viðeigandi og mikilvægar þær eru fyrir lesandann. Það þýðir að upplýsingar sem metnar eru
hvorki mikilvægar né viðeigandi fyrir notanda reikningsskilanna eru ekki birtar í skýringum.
Þessi hluti samstæðuársreikningsins inniheldur upplýsingar um grundvöll reikningsskila samstæðunnar.
Ítarlegri upplýsingar um reikningsskilaaðferðir samstæðunnar eru veittar undir hverjum lið í skýringum.
Ársreikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS), eins og þeir
hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur sem koma fram í íslenskum lögum og
reglum um ársreikninga skráðra félaga. Reikningsskilareglum samstæðunnar hefur verið beitt með
samræmdum hætti á milli ára. Samstæðuársreikningurinn hefur að geyma ársreikning Sýnar hf. og
dótturfélagsins Endor ehf. ásamt hlutdeild í sameiginlegum rekstri í Sendafélaginu ehf.
Dótturfélög eru þau félög sem félagið fer með yfirráð yfir. Félagið fer með yfirráð þegar það ber áhættu
eða hefur ávinning af breytilegri arðsemi af hlutdeild sinni í félaginu og getur haft áhrif á arðsemina
vegna yfirráða sinna. Reikningsskil dótturfélaga eru innifalin í samstæðuársreikningnum frá því að yfirráð
nást og þar til þeim lýkur.
EC Sweden AB.
Viðskipti milli félaga innan samstæðunnar, stöður milli þeirra og óinnleystar tekjur og gjöld sem myndast
hafa í viðskiptum milli félaganna eru felld út við gerð ársreiknings samstæðunnar.
Sendafélagið ehf. var stofnað um sameiginlegan rekstur á farsímadreifikerfum Sýn hf. og Nova hf. Hvort
félag um sig á 50% hlut í Sendafélaginu ehf. og er hlutur samstæðunnar í hverjum lið rekstrar og
efnahags í Sendafélaginu ehf. færður í ársreikning samstæðunnar línu fyrir línu.
Viðskipti í erlendum gjaldmiðlum eru færð í starfrækslugjaldmiðla einstakra samstæðufélaga á gengi
viðskiptadags. Peningalegar eignir og skuldir í erlendum gjaldmiðlum eru færðar á gengi uppgjörsdags.
Gengismunur sem myndast vegna viðskipta í erlendum gjaldmiðlum er færður í rekstrarreikning.
Eignir og skuldir erlendrar starfsemi eru umreiknaðar í íslenskar krónur miðað við gengi uppgjörsdags.
Tekjur og gjöld erlendu starfseminnar eru umreiknuð í íslenskar krónur á meðalgengi ársins.
Gengismunur sem myndast við yfirfærslu í íslenskar krónur er færður á sérstakan lið í yfirliti um
heildarafkomu sem þýðingarmunur. Þegar erlend starfsemi er seld, að hluta til eða öllu leyti, er tengdur
þýðingarmunur fluttur í rekstrarreikning.
Eignarhlutur
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 16 Fjárhæðir eru í millj. kr.
Skýringar, frh.:
2. Reikningsskilin frh.:
d.
Mat stjórnenda í reikningsskilum
e.
Starfrækslu- og framsetningargjaldmiðill
f.
Ákvörðun gangvirðis
Hluti af reikningsskilaaðferðum og skýringum samstæðunnar krefjast ákvörðunar á gangvirði, bæði
vegna fjármálagerninga og annarra eigna og skulda.
Að svo miklu leyti sem hægt er, notar samstæðan markaðsupplýsingar við ákvörðun gangvirðis en liggi
slíkar upplýsingar ekki fyrir er byggt á mati stjórnenda.
Ársreikningur samstæðunnar er birtur í íslenskum krónum, sem er framsetningargjaldmiðill
samstæðunnar. Allar fjárhæðir eru birtar í milljónum króna nema annað sé tekið fram.
Gerð samstæðuársreiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að stjórnendur taki
ákvarðanir, meti og dragi ályktanir sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaaðferða og birtar fjárhæðir
eigna og skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að vera frábrugðnar þessu mati.
Mat og forsendur þess eru í stöðugri endurskoðun. Breytingar á reikningshaldslegu mati eru færðar á því
tímabili sem breytingin á sér stað og þeim framtíðartímabilum sem breytingarnar hafa áhrif á.
Upplýsingar um beitingu reikningsskilaaðferða þar sem mat stjórnenda hefur mest áhrif á skráðar
fjárhæðir eigna og skulda í ársreikningi er að finna í skýringu 12 um mat á endurheimtanlegum fjárhæðum
sjóðskapandi eininga sem innihalda viðskiptavild og skýringu 8 um mat á leigutíma og innbyggðum
vöxtum leigusamnings.
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 17 Fjárhæðir eru í millj. kr.
3.
Seldar vörur og þjónusta greinast þannig:
2022 2021
1.267 1.267
21.716 20.498
22.983 21.765
Tekjustraumar
Skýringar, frh.:
Seldar vörur og þjónusta
Vörusala
Seld þjónusta
Seldar vörur og þjónusta samtals
Tekjustraumar eru birtir eftir eðli rekstrar og byggja á skipulagi og innri upplýsingagjöf samstæðunnar.
Samstæðan skiptist í sjö tekjustrauma sem eru mismunandi í eðli sínu. Tekjustraumarnir eru:
Fjölmiðlun samanstendur af tekjum af starfsemi ljósvakamiðla, áskriftartekjum og tekjum af auglýsingasölu,
tekjum af dreifingu á báðum sjónvarpsdreifikerfum félagsins, leigutekjum af myndlyklum og tekjum af leigu
einstakra kvikmynda og þátta (TVOD), tekjum af streymisveitu (SVOD), tekjum af áskriftum að línulegum
stöðvum, áskriftartekjum hlaðvarpsveitu og tekjum af sölu einstaka sjónvarpsviðburða.
Frammistöðuskuldbindingar vegna áskriftatekna og leigu á efni eru uppfylltar yfir tímabil þar sem
viðskiptavinurinn nýtur þjónustunnar samhliða því að hún er veitt, tekjur eru færðar samkvæmt því. Tekjur
af auglýsingasölu eru færðar þegar félagið hefur uppfyllt skuldbindingu sína gagnvart viðskiptavinum um
birtingu. Tekjur af leigu á einstaka kvikmyndum, þáttum og sýningu viðburða eru færðar eftir að
sýningartíma viðkomandi efnis lýkur sem er almennt 48 klukkustundum eftir kaup. Tekjur af leigu á búnaði,
s.s. myndlyklum, eru færðar mánaðarlega samkvæmt samningum.
Internet samanstendur af tekjum af netþjónustu í fastlínukerfum, þ.m.t. á ljósleiðara, xDSL þjónustu og
öðrum gagnatengingum, internetþjónustu, aðgangsgjöldum og leigu á netbeinum.
Frammistöðuskuldbinding vegna internetþjónustu er uppfyllt yfir tímabil þar sem viðskiptavinurinn nýtur
þjónustunnar samhliða því að samstæðan veitir hana. Tekjur eru færðar mánaðarlega samkvæmt uppgjöri á
föstu gjaldi að viðbættu breytilegu gjaldi vegna notkunar þegar það á við. Tekjur af leigu á búnaði, s.s.
netbeinum, eru færðar mánaðarlega samkvæmt samningum.
Farsími samanstendur af öllum tekjum vegna notkunar á farsímum, þ.m.t. gagnaflutningum í farsímakerfinu,
áskriftartekjum frá einstaklingum og fyrirtækjum, seldum frelsisinneignum, reikitekjum frá ferðamönnum og
samtengitekjum í farsíma. Viðskiptavinir geta keypt farsímaþjónustu í gegnum áskrift þar sem fast gjald að
viðbættum notkunartengdum gjöldum er gert upp mánaðarlega miðað við notkun eða fyrirframgreitt frelsi.
Frammistöðuskuldbindingar samstæðunnar vegna farsímaþjónustu eru uppfylltar yfir tímabil þar sem
viðskiptavinur nýtur þjónustunnar samhliða því að hún er veitt.
Samstæðan skilgreinir starfsþætti eftir innri upplýsingagjöf til stjórnenda og telst samstæðan í heild vera
einn starfsþáttur.
8.607
4.422
5.165
484
2.261
1.267
777
8.372
4.463
4.616
535
1.676
1.267
836
Fjölmiðlun Internet Farsími Fastlína Hýsingar-
og
rekstrausnir
Vörusala Aðrar tekjur
Tekjustraumar
2022 2021
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 18 Fjárhæðir eru í millj. kr.
3.
Aðrar tekjur samanstanda af þjónustutekjum, tekjum af hugbúnaði, útseldri vinnu og öðrum tilfallandi
tekjum.
Vörusala samanstendur af sölu á búnaði og fylgihlutum. Tekjur af vörusölu eru færðar á þeim tímapunkti
þegar yfirráð yfir vörunni flytjast til viðskiptavinar, sem er við afhendingu vörunnar.
Hýsingar- og rekstrarlausnir samanstanda af tekjum og þjónustu við skýjalausnir og sérhæfðri sölu
miðlægra lausna við gagnaverstengda starfsemi ásamt aðfangastjórnun og ráðgjöf við gagnaverstengda
þjónustu. Frammistöðuskuldbindingar vegna rekstrar og þjónustu eru uppfylltar yfir tímabil þar sem
viðskiptavinur nýtur þjónustunnar samhliða því sem hún er veitt. Tekjur af sölu búnaðar eru færðar á þeim
tímapunkti þegar yfirráð yfir vörunni flytjast til viðskiptavinar, sem er við afhendingu vörunnar.
Skýringar, frh.:
Fastlína samanstendur af tekjum vegna notkunar á heimasíma, fyrirtækjasíma í fastlínu og samtengitekjum
í fastlínu. Samningar eru til mánaðar í senn og fast gjald að viðbættu breytilegu gjaldi fyrir notkun er gert
upp mánaðarlega. Frammistöðuskuldbinding vegna fastlínu er uppfyllt yfir tímabil þar sem viðskiptavinur
nýtur þjónustunnar samhliða því að hún er veitt.
Seldar vörur og þjónusta frh.:
Tekjur af sölu á vöru og þjónustu eru metnar á gangvirði greiðslunnar sem er móttekin eða innheimtanleg,
að frádregnum afsláttum og öðrum endurgreiðslum. Tekjur eru færðar í rekstrarreikning þegar samstæðan
hefur uppfyllt samningsskyldu sína sem er yfirleitt við afhendingu, líklegt er að endurgjaldið verði innheimt
og unnt er að meta kostnað vegna sölunnar og möguleg skil á vörum á áreiðanlegan hátt.
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 19 Fjárhæðir eru í millj. kr.
4.
Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu greinist þannig:
2022 2021
Kostnaðarverð þjónustu 7.616 6.876
Kostnaðarverð seldra vara 1.198 1.168
Laun og launatengd gjöld 2.442 2.208
Eignfærð laun ( 207) ( 128)
3.917 4.548
Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu samtals 14.966 14.672
5.
Rekstrarkostnaður greinist þannig:
2022 2021
Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður 1.575 1.384
Sölu- og markaðskostnaður 415 568
Laun og launatengd gjöld 3.760 3.521
Eignfærð laun ( 321) ( 264)
Afskriftir 1.136 1.150
Gangvirðisbreytingar vegna kaupa á dótturfélagi ( 140)
-
6.425 6.359
6.
Laun og launatengd gjöld greinast þannig:
2022 2021
5.032 4.783
Lífeyrisiðgjöld 668 615
502 426
-
( 95)
6.202 5.729
Stöðugildi að meðaltali á árinu 460 462
7.
Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld greinast þannig: 2022 2021
Vaxtatekjur af handbæru fé og kröfum 111 18
Gangvirðisbreytingar 102 0
Aðrar vaxtatekjur 9 4
Fjármunatekjur samtals 222 22
Vaxtagjöld og önnur þjónustugjöld ( 348) ( 299)
Vaxtagjöld leiguskuldar ( 650) ( 314)
Hreinn gengishagnaður (tap) ( 70) 18
Hrein fjármagnsgjöld samtals ( 846) ( 573)
Fjármunatekjur samanstanda af vaxtatekjum af handbæru fé og kröfum samstæðunnar. Vaxtatekjur eru
færðar í rekstrarreikning eftir því sem þær falla til. Fjármagnsgjöld samanstanda af vaxtakostnaði af lántökum
og leiguskuldbindingum samstæðunnar og þjónustugjöldum. Vaxtagjöld vegna lána eru færð miðað við
aðferð virkra vaxta. Hagnaði og tapi vegna gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla er jafnað saman.
Skýringar, frh.:
Rekstrarkostnaður samtals
Rekstrarkostnaður
Afskriftir
Hrein fjármagnsgjöld
Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu
Laun
Launakostnaður vegna innviðasölu
Laun og launatengd gjöld
Laun og launatengd gjöld samtals
Samstæðan greiðir iðgjöld vegna starfsmanna sinna til lífeyrissjóða. Samstæðan ber enga ábyrgð á
skuldbindingum sjóðanna. Iðgjöld eru gjaldfærð í rekstrarreikningi á sama tíma og vinnuframlag starfsmanns
fellur til.
Önnur launatengd gjöld
Í árslok 2022 voru 60% af stjórnendum samstæðunnar karlar og 40% konur (2021: 60% / 40%).
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 20 Fjárhæðir eru í millj. kr.
8.
Leigusamningar
Fasteignir Bifreiðar Hýsingar Klasar Samtals
2.268 50 800 2.109 5.227
80 2 13 - 95
- - 1 ( 111) ( 110)
66 - 212 - 278
- 26 3.740 47 3.813
Samningar niðurlagðir - ( 3) ( 81) - ( 84)
( 229) ( 37) ( 157) ( 747) ( 1.169)
Staða 31.12.2021 2.185 38 4.528 1.298 8.049
211 5 808 - 1.024
- - ( 4) ( 33) ( 37)
- - - - 0
83 44 134 649 910
Samningar niðurlagðir ( 61) - - - ( 61)
( 241) ( 45) ( 273) ( 706) ( 1.265)
Staða 31.12.2022 2.177 42 5.193 1.208 8.620
2022 2021
1.265 1.169
650 314
( 37) 1
( 10) ( 8)
1.868 1.476
31.12.2022 31.12.2021
1.295 1.206
2.244 2.282
9.576 9.111
Samtals
13.115 12.599
Endurmat líftíma samninga
Innan árs
Heildarleigugreiðslur sem tengjast þeim leigusamningum sem færðir eru samkvæmt leigustaðli IFRS 16 námu
1.976 millj. kr. (2021: 1.420 millj. kr.).
Skýringar, frh.:
Áhrif gengisbreytinga erlendra
gjaldmiðla
Afskriftir
Áhrif gengisbreytinga erlendra
gjaldmiðla
Vaxtagjöld af leiguskuldbindingu
Vaxtatekjur af leigukröfu
Samtals fært í rekstrarreikning á árinu
Leiguskuldbinding
Áhrif gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla
Eftir ár eða innan 5 ára
5 ár og síðar
Leigueignir greinast þannig:
Staða 1.1.2021
Verðbætur
Endurmat líftíma samninga
Viðbætur vegna nýrra samninga
Afskriftir
Upphæðir færðar í rekstrarreikning greinast þannig:
Afskriftir af leigueignum
Viðbætur vegna nýrra samninga
Samstæðan færir eignir og skuldir vegna leigusamninga um skrifstofuhúsnæði, lagerhúsnæði, bifreiðar,
hýsingar og klasa.
Samstæðan færir leigueign og leiguskuld á upphafsdegi leigusamnings. Leigueign er upphaflega metin á
kostnaðarverði og eftir það á kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum og virðisrýrnun og
leiðrétt vegna viss endurmats á leiguskuldinni (verðbólgubreytingum).
Leiguskuldin er upphaflega metin miðað við núvirði leigugreiðslna sem eru ógreiddar á upphafsdegi
leigusamningsins, þar sem leigugreiðslur eru núvirtar með innbyggðum vöxtum í leigusamningnum, eða ef það
er ekki hægt að ákvarða þá vexti, með vöxtum samstæðunnar á nýju lánsfé. Að jafnaði notar samstæðan sína
vexti á nýju lánsfé við núvirðingu leigugreiðslna af húsnæði en fyrir aðra vísitölutengda leigusamninga notast
samstæðan við vexti samstæðunnar af nýju lánsfé að viðbætu álagi sem endurspeglar tímalengd samninga,
undirliggjandi veð og ábyrgðir. Vegið meðaltal vaxta er 5,13%.
Verðbætur
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 21 Fjárhæðir eru í millj. kr.
9. Rekstrarfjármunir
Rekstrarfjármunir og afskriftir greinast þannig:
Fjarskipta- Áhöld, tæki
og ljósvaka bifreiðar og
Fasteignir búnaður innréttingar Samtals
Kostnaðarverð
Kostnaðarverð 1.1.2021 35 9.589 1.888 11.511
Viðbætur á árinu - 331 89 421
Selt og niðurlagt á árinu ( 35) ( 313) ( 10) ( 358)
Áhrif gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla - - ( 1) ( 1)
Kostnaðarverð 31.12.2021 0 9.607 1.967 11.574
Viðbætur á árinu - 927 73 1.000
Áhrif gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla - - ( 1) ( 1)
Eignir flokkaðar til sölu færðar út - ( 564) - ( 564)
Kostnaðarverð 31.12.2022 0 9.970 2.039 12.009
Afskriftir og virðisrýrnun
Afskriftir 1.1.2021 15 6.542 1.137 7.693
Afskrift ársins - 825 152 977
Selt og niðurlagt á árinu ( 15) ( 285) ( 10) ( 311)
Áhrif gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla - - 2 2
Afskrifað alls 31.12.2021 0 7.082 1.280 8.361
Afskrift ársins 0 651 132 783
Afskrifað alls 31.12.2022 0 7.733 1.412 9.144
Bókfært verð
31.12.2021 0 2.525 687 3.212
31.12.2022 0 2.237 627 2.866
Afskriftarhlutföll 3% 5-33% 15-33%
Rekstrarfjármunir eru færðir til eignar á kostnaðarverði, að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum og
virðisrýrnun. Kostnaðarverð samanstendur af beinum kostnaði sem fellur til við kaupin og við að koma
eigninni í notkun. Aðkeyptur hugbúnaður sem er nauðsynlegur hluti til að starfrækja ákveðinn búnað er færður
til eignar sem hluti af þeim búnaði.
Þegar rekstrarfjármunir eru samsettir úr einingum með ólíkan nýtingartíma eru einingarnar aðgreindar og
afskrifaðar miðað við nýtingartímann. Hagnaður eða tap af sölu rekstrarfjármuna er munurinn á söluverði og
bókfærðu verði eignarinnar og er fært í rekstrarreikning meðal annarra tekna eða rekstrarkostnaðar.
Kostnaður við að endurnýja einstaka hluta rekstarfjármuna er færður til eignar ef líklegt er talið að ávinningur
sem felst í eigninni muni renna til samstæðunnar og hægt er að meta kostnaðinn á áreiðanlegan hátt. Allur
annar kostnaður er gjaldfærður í rekstrarreikningi þegar til hans er stofnað.
Skýringar, frh.:
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 22 Fjárhæðir eru í millj. kr.
10. Afskriftir
33 ár
3 til 20 ár
4 til 7 ár
Áhöld, tæki, bifreiðar og innréttingar 3 til 7 ár
3-10 ár
10 til 33 ár
Afskriftir og virðisrýrnun í rekstrarreikningi greinast þannig: 2022 2021
Afskriftir rekstrarfjármuna, sbr. skýringu 9 783 977
Afskriftir óefnislegra eigna, sbr. skýringu 12 761 747
Afskriftir leigueigna, sbr. skýringu 8 1.265 1.169
Afskriftir sýningarétta, sbr. skýringu 14 2.244 2.805
Fært í rekstrarreikning sem afskriftir 5.053 5.698
Afskriftir á rekstrarliði
Afskriftir á rekstrarliði greinast þannig: 2022 2021
Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu, sbr. skýringu 4 3.917 4.548
Rekstrarkostnaður, sbr. skýringu 5 1.136 1.150
Fært í rekstrarreikning sem virðisrýrnun og afskriftir 5.053 5.698
11.
Endurheimtanleg fjárhæð eigna eða fjárskapandi einingar er nýtingarvirði eða gangvirði að frádregnum
sölukostnaði, hvort sem hærra reynist. Nýtingarvirði er fundið með því að núvirða áætlað
framtíðarsjóðstreymi. Við útreikninginn er miðað við afvöxtunarhlutfall fyrir skatta sem endurspeglar
núgildandi mat markaðar á tímavirði peninga og þeirri sérstöku áhættu sem eignin felur í sér.
Á hverjum uppgjörsdegi er lagt mat á hvort vísbendingar séu til staðar um að virðisrýrnun, sem færð hefur
verið vegna annarra eigna en viðskiptavildar, eigi ekki lengur við. Virðisrýrnun er bakfærð ef breyting hefur
orðið á því mati sem lá til grundvallar við ákvörðun endurheimtanlegrar fjárhæðar. Virðisrýrnun er aðeins
bakfærð að því marki að bókfært verð eignar verði ekki hærra en það hefði verið á þeim degi sem bakfærsla
er gerð ef engin virðisrýrnun hefði átt sér stað. Áætlaður nýtingartími greinist þannig:
Ljósvakabúnaður
Afskriftir eru reiknaðar og færðar í rekstarreikning línulega miðað við áætlaðan nýtingartíma einstakra hluta
rekstrarfjármuna. Afskriftartími hefst þegar eignirnar eru tilbúnar til notkunar.
Áætlaður nýtingartími greinist þannig:
Vörumerki og viðskiptasambönd
Á hverjum uppgjörsdegi er lagt mat á hvort eignir samstæðunnar sem ekki teljast til fjáreigna, kunni að hafa
orðið fyrir virðisrýrnun. Ef vísbendingar eru til staðar um að virðisrýrnun hafi átt sér stað, er lagt mat á
endurheimtanlega fjárhæð viðkomandi eigna.
Virðisrýrnun er færð þegar bókfært verð eignar, eða fjárskapandi einingar sem hún tilheyrir, er hærra en
endurheimtanleg fjárhæð. Fjárskapandi eining er minnsti aðgreinanlegi flokkur eigna sem skapar sjóðstreymi
sem að mestu er óháð öðrum eignum og eignaflokkum. Virðisrýrnun er færð í rekstrarreikning. Virðisrýrnun
fjárskapandi einingar er fyrst færð til lækkunar á bókfærðu verði viðskiptavildar sem til staðar er innan
viðkomandi einingar. Virðisrýrnun umfram viðskiptavild er svo hlutfölluð með hliðsjón af bókfærðu verði
einstakra eigna hinnar fjárskapandi einingar og færð til lækkunar á þeim.
Fasteignamat og vátryggingarverðmæti
Afskriftir óefnislegra eigna, annarra en viðskiptavildar, eru færðar línulega í rekstrarreikning miðað við
áætlaðan nýtingartíma þeirra. Afskriftartími hefst þegar eignirnar eru tilbúnar til notkunar.
Hugbúnaður
Fasteignamat tækja- og fjarskiptahúsa nam 97 millj kr. í árslok 2022 (2021: 86 millj. kr.) og brunabótamat 154
millj. kr. (2021: 131 millj. kr.). Vátryggingarverðmæti annarra eigna nam 6.397 millj. kr. í árslok (2021: 7.106 millj.
kr.).
Skýringar, frh.:
Fjarskiptabúnaður
Fasteignir
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 23 Fjárhæðir eru í millj. kr.
12. Óefnislegar eignir
Óefnislegar eignir greinast þannig:
Vörumerki
Viðskipta - og viðskipta - Hug-
vild sambönd búnaður Samtals
Kostnaðarverð
Kostnaðarverð 1.1.2021 14.223 3.293 4.163 21.679
Viðbætur á árinu - - 814 814
( 44) - - ( 45)
Kostnaðarverð 31.12.2021 14.179 3.293 4.977 22.448
Viðbætur á árinu - - 681 681
Áhrif gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla 18 - - 18
Kostnaðarverð 31.12.2022 14.197 3.293 5.658 23.148
Afskriftir og virðisrýrnun
Afskriftir og virðisrýrnun 1.1.2021 5.291 613 2.440 8.344
Afskrift ársins - 199 549 747
Áhrif gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla - - - 0
Afskrifað alls 31.12.2021 5.291 812 2.989 9.091
Afskrift ársins - 204 557 761
Áhrif gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla - - - 0
Afskrifað alls 31.12.2022 5.291 1.016 3.546 9.853
Bókfært verð
31.12.2021 8.888 2.481 1.988 13.357
31.12.2022 8.906 2.277 2.112 13.295
Afskriftarhlutföll
-
3-11% 10-33%
Viðskiptavild sem myndast við sameiningu er færð til eignar þann dag sem félagið nær yfirráðum í keyptu
félagi eða rekstri. Viðskiptavild er mismunur á kaupverði og hlutdeilda í hreinni eign hins keypta eftir að eignir
og skuldir hafa verið metnar til gangvirðis á kaupdegi.
Viðskiptavild er ekki afskrifuð heldur metin árlega með tilliti til virðisrýrnunar eða oftar ef vísbending um
virðisrýrnun er til staðar. Ef bókfært verð sjóðskapandi einingar er hærra en endurheimtanlegt virði hefur
virðisrýrnun átt sér stað. Hafi virðisrýrnun átt sér stað er viðskiptavild fyrst færð niður og síðar aðrar eignir
sem tilheyra viðkomandi sjóðskapandi einingu. Óheimilt er að bakfæra áður færða virðisrýrnun viðskiptavildar
á síðari tímabilum.
Aðrar óefnislegar eignir sem samstæðan hefur keypt og hafa takmarkaðan nýtingartíma eru færðar á
kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum og virðisrýrnun þar sem við á.
Kostnaður sem fellur til síðar er einungis eignfærður ef hann eykur efnahagslegan framtíðarávinning sem felst
í eign sem kostnaðurinn varðar. Annar kostnaður, þar á meðal vegna viðskiptavildar og vörumerkja, sem
myndast hefur innan samstæðunnar er færður í rekstrarreikning þegar til hans er stofnað.
Skýringar, frh.:
Áhrif gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 24 Fjárhæðir eru í millj. kr.
12. Óefnislegar eignir, frh.:
Virðisrýrnunarpróf vegna sjóðskapandi eininga sem innihalda viðskiptavild
2022 2021
Viðskiptavild Sýn hf. 8.194 8.194
Viðskiptavild Endor ehf. 712 694
Viðskiptavild samtals 8.906 8.888
2022 2021
Nafnvöxtur tekna 2022 / 2021 2,9% 8,5%
Meðalvöxtur tekna 2023 til 2027 / 2022 til 2026 4,2% 6,0%
Framtíðarvöxtur að teknu tilliti til verðlagsþróunar 4,2% 3,0%
EBITDA meðalvöxtur 2023 til 2027 / 2022 til 2026 7,5% 9,5%
Ávöxtunarkrafa, WACC 11,9% 10,0%
2022 2021
Nafnvöxtur tekna 2022 / 2021 38,1% (30,5%)
Meðalvöxtur tekna 2023 til 2027 / 2022 til 2026 1,0% 13,3%
Framtíðarvöxtur að teknu tilliti til verðlagsþróunar 2,5% 2,5%
EBITDA meðalvöxtur 2023 til 2027 / 2022 til 2026 17,6% 18,7%
Ávöxtunarkrafa, WACC 9,6% 8,3%
Stuðst var við eftirfarandi forsendur við mat á nýtingarvirði viðskiptavildar Sýn hf.:
Bókfært verð viðskiptavildar greinist þannig:
Viðskiptavild hefur verið úthlutað á sjóðskapandi einingar fyrir framkvæmd virðisrýrnunarprófs, eins og fram
kemur hér að neðan.
Stjórnendur telja að raunhæfar breytingar á lykilforsendum myndu ekki leiða til þess að endurheimtanlegt
virði viðskiptavildarinnar yrði lægra en bókfært verð hennar.
Skýringar, frh.:
Stuðst var við eftirfarandi forsendur við mat á nýtingarvirði viðskiptavildar Endor ehf.:
Endurheimtanleg fjárhæð sjóðskapandi eininga var metin út frá nýtingarvirði. Nýtingarvirði var ákvarðað á
þann hátt að núvirða áætlað framtíðarfjárstreymi miðað við áframhaldandi nýtingu eininganna. Fjárstreymi var
byggt á rekstraráætlun næstu fimm ára. Samkvæmt uppfærðum framtíðaráætlunum félagsins stenst
sjóðskapandi eign Sýnar hf., sem inniheldur fjarskipta- og fjölmiðlarekstur samstæðunnar, virðisrýrnunarpróf.
Það sama á við um Endor hf. sem innheldur hýsingar- og rekstrarlausnir samstæðunnar.
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 25 Fjárhæðir eru í millj. kr.
Skýringar, frh.:
13.
Eignarhlutir í félögum
2022 2021
Bókfært verð 1.1. 39 1.375
Seldir eignahlutir - ( 1.103)
Áhrif hlutdeildarfélaga - ( 251)
Þýðingarmunur - -
Fjárfesting á árinu
17 18
Móttekinn arður
- -
Bókfært verð 31.12. 56 39
129 23
Bókfært verð eignarhluta í félögum 31.12. 185 62
14.
Sýningarréttir
Sýningarréttir greinast þannig: 2022 2021
Bókfært verð 1.1. 1.762 1.876
Keyptir erlendir sýningarréttir 1.500 1.924
Keypt innlent efni 791 766
Afskrift ársins ( 2.244) ( 2.805)
Bókfært verð 31.12. 1.809 1.762
15.
Veitt þjónusta skiptist með eftirfarandi hætti: 2022 2021 2022 2021
Endurskoðun og könnun 19 -
Önnur þjónusta 5 3
Þóknun til endurskoðendafyrirtækja samtals 24 3
-
Sýningarréttir samanstanda af eigin framleiðslu og aðkeyptum sýningarréttum. Sýningarréttir eru færðir á
kostnaðarverði að viðbættum beinum kostnaði við að koma eigninni í nýtingarhæft form. Innlendir og erlendir
sýningarréttir eru afskrifaðir miðað við metinn nýtingartíma þeirra. Nýtingartími er metinn út frá eðli
réttindanna (línuleg og/eða SVOD) og samningstíma. Við það mat er horft á þann tíma sem rétturinn er talinn
skila félaginu efnahagslegum ávinningi. Afskrift á sýningarréttum hefst þegar félagið hefur fengið efni afhent
til sýninga. Sýningarréttir vegna íþróttaefnis eru afskrifaðir yfir þann tíma sem viðburðurinn er sýndur.
Í árslok 2022 nam skuldbinding vegna sýningarrétta utan efnahags 1.692 millj. kr. (2021: 2.046 millj. kr.).
Eignarhlutir í öðrum félögum
Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum eru færðir með hlutdeildaraðferð. Hlutdeildarfélög eru þau félög þar sem
félagið hefur veruleg áhrif á fjárhags- og rekstrarstefnu, en ekki yfirráð. Hlutdeildarfélög eru upphaflega færð á
kostnaðarverði sem innifelur viðskiptakostnað. Eftir upphaflega skráningu er hlutdeild samstæðunnar í afkomu
og heildarafkomu hlutdeildarfélaga færð í samstæðureikninginn þar til verulegum áhrifum eða sameiginlegum
yfirráðum lýkur.
Eignahlutir í öðrum félögum eru færðir á gangvirði ef til eru áreiðanlegar upplýsingar um gangvirði, en annars
á kostnaðarverði.
Endurskoðendur samstæðunnar
Aðrir endurskoðendur
26
11
5
5
Þóknun til endurskoðunarfyrirtækja
37
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 26 Fjárhæðir eru í millj. kr.
Skýringar, frh.:
16. Tekjuskattur
Virkur tekjuskattur greinist þannig
Hagnaður fyrir tekjuskatt 746 2.462
Tekjuskattur samkvæmt gildandi skatthlutfalli (20,0%) ( 149) 20,0%) ( ( 492)
Áhrif hlutdeildarfélaga 2,1% 16 (2,3%) ( 56)
Skattaleg afskrift viðskiptavildar 26,4% 197 8,0% 197
Gangvirðisbreytingar 6,4% 48 - -
Aðrir liðir 4,0% 30 (0,4%) ( 11)
Virkur tekjuskattur 19,0% 142 (14,7%) ( 362)
17. Tekjuskattsinneign (skuldbinding)
Skatteign
Skatt-
skuldb.
Skatteign
Skatt-
skuldb.
Staða 1.1 7 - ( 16) 383
Tekjuskattur í rekstrarreikningi 142 - 8 ( 370)
Aðrir liðir 9 - 34 ( 32)
Staða 31.12 158 0 26 ( 19)
Frestaður tekjuskattur greinist þannig á einstaka liði:
Rekstrarfjármunir ( 1.128) - 6 ( 979)
Veltufjármunir 76 - 3 101
Leigusamningar 864 - - 845
Aðrir liðir 7 - 17 14
Yfirfæranlegt skattalegt tap 339
-
- - -
Frestaður tekjuskattur í árslok 158 0 26 ( 19)
2022
2022
Gjaldfærður tekjuskattur af afkomu ársins skiptist í frestaðan tekjuskatt og skatt til greiðslu. Tekjuskattur er
færður í rekstrarreikning nema þegar hann tengist liðum sem eru færðir beint á eigið fé.
Frestaður tekjuskattur er færður vegna tímabundins mismunar á bókfærðu verði eigna og skulda í
ársreikningnum annars vegar og skattverði þeirra hins vegar. Útreikningur á frestuðum skatti byggist á því
skatthlutfalli sem vænst er að verði í gildi þegar tímabundinn mismunur kemur til með að snúast við, miðað við
gildandi lög á uppgjörsdegi. Frestaður tekjuskattur er ekki færður vegna fjárfestinga í dótturfélögum eða
keyptum rekstri.
Skatteign er einungis færð að því marki sem líklegt er talið að skattskyldur hagnaður verði til ráðstöfunar í
framtíðinni sem unnt verður að nýta eignina á móti. Skatteign er metin á hverjum uppgjörsdegi og lækkuð að
því marki sem talið er líklegt að hún nýtist ekki.
2021
2021
2022
2021
Frestaður tekjuskattur samstæðunnar greinist
þannig:
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 27 Fjárhæðir eru í millj. kr.
Skýringar, frh.:
18.
Birgðir
Birgðir greinast þannig: 2022 2021
Fjarskiptabúnaður til endursölu 544 286
Aðrar rekstrarvörubirgðir 15 70
Birgðir í árslok 559 356
19. Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur greinast þannig: 2022 2021
Viðskiptakröfur 3.314 3.326
Viðskiptakrafa vegna innviðasölu - 1.649
Aðrar skammtímakröfur 401 392
Leigukröfur 24 21
Niðurfærsla viðskiptakrafna 89)( ( 91)
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur samtals 3.650 5.297
Breyting á niðurfærslu viðskiptakrafna greinist þannig: 2022 2021
Staða 1.1. ( 91) ( 99)
Breyting á niðurfærslu vegna krafna sem kunna að tapast ( 35) ( 46)
Tapaðar viðskiptakröfur á árinu 37 54
Staða niðurfærslu viðskiptakrafna 31.12. ( 89) ( 91)
Á hverjum uppgjörsdegi er kannað hvort til staðar sé hlutlæg vísbending um virðisrýrnun viðskiptakrafna og
annarra skammtímakrafna. Eignirnar hafa orðið fyrir virðisrýrnun ef hlutlægar vísbendingar eru um að einn eða
fleiri atburðir sem hafa orðið benda til þess að vænt framtíðarsjóðsstreymi eignarinnar sé lægra en áður var
talið.
Virðisrýrnun er mismunurinn á bókfærðu verði annars vegar og núvirtu væntu framtíðarsjóðstreymi, miðað við
upphaflega virka vexti, hins vegar. Metin virðisrýrnun er færð sem hluti af niðurfærslu viðskiptakrafna og
gjaldfærð í rekstrarreikning. Virðisrýrnun er aðeins bakfærð ef hægt er að tengja bakfærsluna á hlutlægan hátt
við atburði sem átti sér stað eftir að virðisrýrnun er færð.
Birgðir eru færðar á kostnaðarverði eða hreinu söluverði, hvoru sem lægra reynist. Kostnaðarverð birgða er
byggt á inn - fyrst reglunni og tekur til kostnaðar sem stofnað hefur verið til við kaup birgðanna og
við að koma þeim á núverandi stað og í núverandi ástand. Hreint söluvirði er áætlað söluverð í venjulegum
viðskiptum að frádregnum áætluðum kostnaði við að selja vöru.
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur eru upphaflega færðar á gangvirði á þeim degi sem félagið gerist
aðili að samningsbundnum ákvæðum fjármálagerningsins. Eftir upphaflega skráningu eru þessar fjáreignir
metnar á afskrifuðu kostnaðarverði miðað við virka vexti, að frádreginni virðisrýrnun. Fjáreignirnar eru
afskráðar ef samningsbundinn réttur félagsins að sjóðstreymi vegna fjáreignanna rennur út. Viðskiptakröfur og
aðrar kröfur í erlendum gjaldmiðlum eru færðar á gengi uppgjörsdags.
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 28 Fjárhæðir eru í millj. kr.
Skýringar, frh.:
20.
Eigið fé
Hlutafé
Yfirverðsreikningur hlutafjár
Þýðingarmunur
Arður
Bundinn reikningur
21. Hagnaður á hlut
Hagnaður á hlut greinist þannig: 2022 2021
Hagnaður ársins 888 2.100
Hlutafé í ársbyrjun 2.964 2.964
Vegið meðaltal útistandandi hluta á árinu 2.687 2.964
Hagnaður á hlut og þynntur hagnaður á hlut 3,3 7,1
Hagnaður og þynntur hagnaður á hverja krónu hlutafjár 0,33 0,71
Samtals útgefið hlutafé félagsins samkvæmt samþykktum þess er 2.684 millj. kr. (2021: 2.964 millj. kr.). Hver
hlutur er 10 krónur að nafnverði. Eigendur hluta í félaginu eiga rétt til arðs í hlutfalli við eign sína við
arðsúthlutun. Samkvæmt samþykktum eru engar hömlur lagðar á sölu eða framsal hlutabréfa í félaginu.
Félagið á eigin hluti að nafnverði 16,1 millj. kr. í lok reikningsárs eða samtals 0,6% af útgefnu hlutafé.
Þýðingarmunur sem verður til við umreikning reikningsskila erlends hlutdeildarfélags og dótturfélags með
erlendan starfsrækslugjaldmiðil í íslenskar krónur er færður á sérstakan lið meðal eigin fjár. Ef erlend starfsemi
er seld eða lögð niður, að hluta eða öllu leyti, er eiginfjárliðurinn leystur upp og færður í rekstrarreikning.
Samkvæmt 41. gr. ársreikningalaga ber félögum að færa hlutdeild í rekstri dóttur- og hlutdeildarfélaga umfram
það sem nemur mótteknum arði eða þeim arði sem ákveðið hefur verið að úthluta á bundinn reikning á meðal
eigin fjár. Miðað er við að kröfur um bindingu gilda fyrir reikningsskilatímabil sem hófust 1. janúar 2016 og
síðar.
Hagnaður á hlut er hlutfall af hagnaði sem tilheyrir hluthöfum í félaginu og vegins meðalfjölda virkra hluta á
árinu. Þynntur hagnaður á hlut miðar við hagnað sem ráðstafað er til hluthafa í félaginu og vegins meðalfjölda
virkra hluta að teknu tilliti til þynningaráhrifa væntra útgefinna hluta vegna kauprétta starfsmanna. Þynntur
hagnaður á hlut er jafnt hagnaði á hlut, þar sem félagið hefur hvorki tekið lán sem eru breytanleg í hlutafé né
gert kaupréttarsamninga.
Yfirverðsreikningur hlutafjár sýnir það sem hluthafar félagsins hafa greitt umfram nafnverð hlutafjár sem
félagið hefur selt. Samkvæmt lögum um hlutafélög skal félagið binda 25% af nafnverði hlutafjár í varasjóði sem
ekki má nota til að greiða hluthöfum arð. Lögbundinn varasjóður er færður sem hluti af yfirverðsreikningi.
Stjórn leggur til að greiddur verði arður til hluthafa að fjárhæð 300 millj. kr. vegna rekstrarársins 2022. Ekki
var greiddur út arður vegna rekstrarársins 2021.
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 29 Fjárhæðir eru í millj. kr.
Skýringar, frh.:
22. Vaxtaberandi skuldir
Vaxtaberandi langtímaskuldir greinast þannig: 2022 2021
Skuldir við lánastofnanir 5.174 5.688
Næsta árs afborganir ( 373) ( 723)
Vaxtaberandi langtímaskuldir samtals 4.801 4.965
Hreyfingar vaxtaberandi langtímaskulda 2022 2021
Staða 1.1. 5.688 10.484
Afborganir ( 474) ( 3.161)
Breytingar á rekstrarlánalínu ( 40) ( 1.635)
Staða 31.12. 5.174 5.688
Afborganir af vaxtaberandi langtímaskuldum greinast þannig á næstu ár: 2022 2021
Afborganir 2022 - 723
Afborganir 2023 373 4.965
Afborganir 2024 338 -
Afborganir 2025 338 -
Afborganir 2026 338 -
Síðar 3.787 -
Samtals 5.174 5.688
Veðsetningar
23. Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir greinast þannig: 2022 2021
Viðskiptaskuldir 4.241 3.867
Ógreiddur virðisaukaskattur 319 360
Ógreiddur virðisaukaskattur vegna sölu óvirkra innviða - 1.649
Fyrirfram innheimtar tekjur 560 485
Ógreiddur áfallinn kostnaður og aðrar skammtímaskuldir 1.048 1.119
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir samtals 6.168 7.480
Fyrirframinnheimtar tekjur
Á eignum samstæðunnar hvílir tryggingarbréf að fjárhæð 6.287 millj kr. (2021: 6.287 millj kr.) til tryggingar
öllum skuldum og skuldbindingum félagsins við Landsbankann í árslok 2022. Tryggingin nær til alls lausafjár,
þ.m.t. veð í rekstrarfjármunum, óefnislegum eignum, leigueignum, birgðum, viðskiptakröfum og vörumerkjum.
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir eru færðar á þeim degi þegar samstæðan gerist aðili að
samningsbundnum ákvæðum fjármálagerningsins. Slíkar skuldir eru upphaflega færðar á gangvirði að
viðbættum tengdum viðskiptakostnaði. Eftir upphaflega skráningu eru þessar fjárskuldir metnar á afskrifuðu
kostnaðarverði miðað við virka vexti.
Vaxtaberandi langtímaskuldir í árslok eru óverðtryggðar í íslenskum krónum og vegið meðaltal vaxta er 7,79%
(2021: 3,59%)
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir í erlendum gjaldmiðlum eru færðar á gengi uppgjörsdags.
Í lánasamningum félagsins eru til staðar kvaðir sem félagið þarf að uppfylla. Kvaðirnar snúa bæði að ákveðnum
hömlum á aðgerðir félagsins án fyrirfram samþykkis lánveitanda sem og fjármálahlutföllum sem félagið þarf
að uppfylla. Í árslok uppfyllti félagið allar kvaðir lánasamnings sem og þá lánaskilmála sem snúa að
fjármálahlutföllum í rekstri þess.
Vaxtaberandi skuldir eru færðar á þeim degi þegar samstæðan gerist aðili að samningsbundnum ákvæðum
fjármálagerningsins. Vaxtaberandi skuldir eru upprunalega færðar á gangvirði að viðbættum tengdum
viðskiptakostnaði. Eftir upphaflega skráningu eru þessar fjárskuldir metnar á afskrifuðu kostnaðarverði miðað
við virka vexti.
Samstæðan afskráir fjárskuld þegar samningsbundnum skyldum vegna skuldagerningsins er lokið, þær felldar
niður eða falla úr gildi.
Fyrirframinnheimtar tekjur eru vegna fyrirframgreiddrar áskrifta og annarra fyrirframgreiðslna frá
viðskiptavinum. Þær eru að mestu leyti innleystar mánuði seinna.
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 30 Fjárhæðir eru í millj. kr.
Skýringar, frh.:
24. Áhættustýring
a. Yfirlit
b. Lánsáhætta
Mesta mögulega tap vegna lánsáhættu
Skýr. 2022 2021
Viðskiptakröfur og aðrar kröfur 19 3.650 3.648
Viðskiptakrafa vegna innviðasölu - 1.649
Handbært fé 2.063 4.214
Samtals 5.713 9.511
Virðisrýrnun viðskiptakrafna
2022 2021 2022
2021
Ógjaldfallið 3.493 5.173 ( 34) ( 33)
Gjaldfallið innan 90 daga 123 63 ( 12) ( 9)
Gjaldfallið fyrir meira en 90 dögum 123 152 ( 43) ( 48)
Heildarstaða viðskiptakrafna í árslok 3.739 5.388 ( 89) ( 91)
Samstæðan hefur sett reglur þar sem greiðsluhæfi nýrra viðskiptavina er kannað áður en þeim er veittur
gjaldfrestur. Innheimtuferli hefur verið skilgreint fyrir alla flokka viðskiptakrafna.
Hér á eftir eru veittar upplýsingar um framangreinda áhættu og markmið, stefnu og aðferðir samstæðunnar
við að meta og draga úr áhættunni. Að auki eru veittar tölulegar upplýsingar víða í ársreikningnum.
Aldur viðskiptakrafna var eftirfarandi í árslok:
Eftirfarandi áhætta fylgir fjármálagerningum samstæðunnar:
Lánsáhætta
Lausafjáráhætta
Markaðsáhætta
Í árslok námu viðskiptakröfur á fimm stærstu viðskiptamenn samstæðunnar 597 millj. kr. ( 2021: 921 millj. kr.)
Markmið samstæðunnar með áhættustýringu er að uppgötva og greina áhættu sem hún býr við, setja viðmið
um áhættutöku og hafa eftirlit með henni. Áhættustefna samstæðunnar og aðferðir eru yfirfarnar reglulega til
að greina breytingar á áhættu tengdri markaði og starfsemi samstæðunnar.
Mesta mögulega tap samstæðunnar vegna fjáreigna er bókfært verð þeirra sem var eftirfarandi í árslok:
Aldursgreining viðskiptakrafna er yfirfarin mánaðarlega og mynduð niðurfærsla vegna áætlaðrar
virðisrýrnunar þeirra. Niðurfærslan er reiknuð hlutfallslega miðað við aldur viðskiptakrafna, innheimtusögu og
framtíðarhorfur í efnahagsumhverfi viðskiptamanna. Lagt er mat á áhættukröfur og ef ástæða þykir til, er færð
sérstök niðurfærsla.
Lánsáhætta er hættan á fjárhagslegu tapi samstæðunnar ef viðskiptamaður eða annar mótaðili í
fjármálagerningi getur ekki staðið við umsamdar skuldbindingar sínar. Lánsáhætta samstæðunnar er einkum
vegna viðskiptakrafna og ræðst af fjárhagsstöðu og starfsemi einstakra viðskiptamanna. Stjórnendur hafa
innleitt stefnu vegna innheimtu og mánaðarlega er fylgst með áhættu vegna hennar. Mat á innheimtu er unnið
reglulega og nauðsynlegar niðurfærslur gerðar.
Niðurfærsla
Nafnverð kröfu
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 31 Fjárhæðir eru í millj. kr.
Skýringar, frh.:
24. Áhættustýring frh.:
c. Lausafjáráhætta
31. desember 2022
Fjárskuldir:
Vaxtaberandi skuldir 5.174 6.933 762 701 1.322 4.148
6.168 6.168 6.168 - - -
Leiguskuldbindingar
13.115 24.453 1.779 1.779 2.567 18.329
Samtals 24.457 37.554 8.709 2.480 3.889 22.477
31. desember 2021
Fjárskuldir:
Vaxtaberandi skuldir 5.688 6.049 714 5.335 - -
7.480 7.480 7.480 - - -
Leiguskuldbindingar
12.599 23.423 1.694 1.694 2.525 17.510
Samtals 25.767 36.952 9.888 7.029 2.525 17.510
d. Markaðsáhætta
Bókfært
verð
Umsamið
sjóð-
sreymi
Félagið hefur sett sér fjárstýringarstefnu þar sem skilgreind er stefna varðandi lausafjárstýringu. Stefnan er til
grundvallar meðhöndlunar á handbæru fé og ráðstöfun þess og segir til um hvernig skuli lágmarka áhættu og
tryggja handbært fé til að standa skil á skuldbindingum félagsins. Sjóðstreymisáætlanir eru gerðar
mánaðarlega og spáð fyrir um lausafjárþörf. Samstæðan felldi niður lánaheimild vegna rekstrarlánalínu en
ónýtt lánaheimild vegna yfirdráttar var 200 millj. kr. í árslok. (2021: 1.810 millj. kr.)
Lausafjáráhætta er hættan á því að samstæðan geti ekki staðið við fjárhagsskuldbindingar sínar eftir því sem
þær gjaldfalla. Markmið samstæðunnar er að stýra lausafé þannig að tryggt sé að hún hafi alltaf nægt laust fé
til að mæta skuldbindingum sínum eftir því sem þær gjaldfalla og forðast þannig að skaða orðspor
samstæðunnar.
2 til 5 ár
1 til 2 ár
Viðskiptaskuldir og aðrar
skammtímaskuldir
Viðskiptaskuldir og aðrar
skammtímaskuldir
Innan árs
Meira en 5
ár
Markaðsáhætta er hættan á því að breytingar á markaðsverði erlendra gjaldmiðla, vaxta og gengi hlutabréfa
hafi áhrif á afkomu samstæðunnar eða virði fjárfestinga hennar í fjármálagerningum. Markmið með stýringu
markaðsáhættu er að stýra og takmarka áhættu við skilgreind mörk, jafnframt því sem ábati er hámarkaður.
Samningsbundnar afborganir af fjárskuldum, að meðtöldum áætluðum vaxtagreiðslum, greinast þannig
(fjárhæðirnar eru ekki núvirtar):
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 32 Fjárhæðir eru í millj. kr.
Skýringar, frh.:
24.
Áhættustýring frh.:
e. Gjaldmiðlagengisáhætta
31. desember 2022 EUR USD GBP SDR
Viðskiptakröfur 279 4 0 73
Handbært fé 191 401 1 0
Viðskiptaskuldir ( 1.586) ( 1.391) ( 43) ( 18)
Áhætta í efnahagsreikningi ( 1.117) ( 986) ( 42) 56
31. desember 2021 EUR USD GBP SDR
Viðskiptakröfur 333 3 - 31
Handbært fé 101 47 - -
Viðskiptaskuldir ( 1.398) ( 899) ( 9) ( 52)
Áhætta í efnahagsreikningi ( 964) ( 850) ( 9) ( 21)
2022 2021 2022
2021
EUR 142,33 154,52 151,50 147,60
USD 135,46 135,27 142,04 130,38
GBP 181,00 188,52 189,68 182,50
SDR 166,90 173,59 170,81 175,73
Næmnigreining
f. Vaxtaáhætta
2022 2021
Fjárskuldir með breytilega vexti 5.174 5.688
g. Gangvirði
25. Eiginfjárstýring
Hækkun á vöxtum um 100 punkta hefði lækkað afkomu og eigið fé um 51,7 millj. kr. fyrir tekjuskatt (2021: 56,8
millj. kr.), lækkun á vöxtum um 100 punkta hefði haft áhrif í gagnstæða átt. Samstæðan er hvorki með
fjáreignir né fjárskuldir á föstum vöxtum.
Lántökur samstæðunnar eru allar með breytilegum vöxtum.
Gengi helstu gjaldmiðla á árinu var sem hér segir:
Meðalgengi
Árslokagengi
Framsetningargjaldmiðill samstæðunnar er íslenskar krónur, en hluti tekna og innkaupa samstæðunnar er í
öðrum gjaldmiðlum. Þeir gjaldmiðlar sem einkum skapa gengisáhættu eru evrur (EUR), dollar (USD),
sterlingspund (GBP) og SDR (uppgjörsgjaldmiðill vegna reikis). Fjármálasvið er ábyrgt fyrir að fylgjast með
gengisþróun helstu gjaldmiðla með tilliti til áhrifa fjáreigna og fjárskulda í erlendum gjaldmiðli á reikningsskilin.
Vaxtaberandi fjárskuldir samstæðunnar greinast með eftirfarandi hætti í lok
ársins:
Áhætta samstæðunnar vegna erlendra gjaldmiðla var sem hér segir í nafnverðsfjárhæðum í millj. kr.
Það er mat stjórnenda að mismunur á gangvirði og bókfærðu verði fjáreigna og fjárskulda sé óverulegur.
10% styrking íslensku krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum í árslok myndi hækka eigið fé og afkomu
samstæðunnar um 209 millj. kr. fyrir tekjuskatt, (2021: hækkun 184 millj. kr.). Greiningin byggir á að allar aðrar
breytur, þ.m.t. vextir, haldist óbreyttar. Greiningin var unnin með sama hætti fyrir árið 2021.
10% veiking íslenskrar krónu gagnvart framangreindum gjaldmiðlum hefði haft sömu áhrif en í gagnstæða átt,
að því gefnu að allar aðrar breytur hefðu haldist óbreyttar.
Það er markmið félagsins að eiginfjárstaða samstæðunnar sé sterk til að styðja við stöðugleika í
framtíðarþróun starfseminnar. Miðað er við að eiginfjárhlutfallið sé um 30%. Eiginfjárhlutfall í lok árs 2022 nam
27,9% (2021: 28,9%).
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 33 Fjárhæðir eru í millj. kr.
Skýringar, frh.:
26. Tengdir aðilar
Laun og eignarhald stjórnar og lykilstjórnenda
2022 2022 2021 2021
Föst kjör
Breytileg
kjör
Föst kjör
Breytileg
kjör
Stjórn:
Jón Skaftason, stjórnarform. 2,3 - - - 42.147.128
Hákon Stefánsson, stjórnarm. 1,0 - - - 51.397.128
Páll Óskar Gíslason, stjórnarm. 4,5 - 3,6 - -
Rannveig Eir Einarsdóttir, stjórnarm. 1,1 - - - 20.650.000
Sesselía Birgisdóttir, stjórnarm. 3,2 - - - 50.000
Hjörleifur Pálsson, fv. stjórnarform. 5,9 - 8,5 - -
Petrea I. Guðmundsdóttir, fv. stjórnarfm.
5,9 - 5,0 - -
Hilmar Þór Kristinsson, fv. stjórnarm. - - 0,7 - -
Jóhann Hjartarson, fv. stjórnarm. 2,4 - - - -
Sigríður V. Halldórsdóttir, fv. stjórnarm. 0,9 - 4,1 - -
Tanya Zharov, fv. stjórnarm. 1,5 - 5,5 - -
Lykilstjórnendur:
Yngvi Halldórsson, forstjóri 14,5 9,6 - - 334.000
Heiðar Guðjónsson, fyrrv. forstjóri 46,9 - 54,5 9,2 -
Framkvæmdastjórar 165 17,1 159 35,3 70.000
Viðskipti við tengda aðila
Önnur viðskipti við stjórn og lykilstjórnendur eru óveruleg. Skilmálar og skilyrði viðskipta við stjórn og
lykilstjórnendur eru sambærileg við það sem gerist í viðskiptum við ótengda aðila.
Með eignarhlutum eru taldir eignarhlutir maka og ófjárráða barna ásamt eignarhlutum í eigu félaga sem
stjórnendurnir ráða.
Laun stjórnenda skiptast á eftirfarandi
hátt í föst og breytileg starfskjör, án
launatengdra gjalda.
Aðilar teljast vera tengdir aðilar ef þeir fara með bein eða óbein yfirráð í félaginu eða hafa vald til að stjórna
fjárhags- og rekstrarstefnu þess. Meðal tengdra aðila samstæðunnar eru: Lykilstjórnendur, nánir
fjölskyldumeðlimir lykilstjórnenda og félög þar sem lykilstjórnendur eða nánir fjölskyldumeðlimir þeirra fara
með yfirráð í eða hafa veruleg áhrif á. Hluthafar sem fara með yfirráð eða hafa veruleg áhrif teljast einnig
tengdir aðilar.
Fjöldi virkra
hluta árslok
2022
Sala á vörum og þjónustu til tengdra aðila og félaga tengdum þeim nam 16 millj. kr. á árinu 2022 (2021: 75
millj. kr.), en kaup á vörum og þjónustu námu 100 millj. kr. (2021: 70 millj. kr.).
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 34 Fjárhæðir eru í millj. kr.
Skýringar, frh.:
27. Önnur mál
Sýn hf. gegn Fjarskiptastofu, Símanum hf., Mílu hf., Nova hf. og Ljósleiðaranum hf.
Skaðabótakröfur gegn Símanum hf.
Sýn hf. á í málarekstri við einstaklinga, önnur félög og eftirlitsstofnanir í íslenskum fjarskipta- og
fjölmiðlamarkaði. Félagið færir skuldbindingar og/eða kröfur vegna málarekstur þegar hægt er að meta
framtíðar greiðslur og ávinning með áþreifanlegum hætti. Vegna óvissu um framtíðarþróun málarekstrar,
niðurstöður dómsmála, úrskurði, áfrýjanir og sættir í málum geta niðurstöður mála leitt til viðbótar
skuldbindinga og kostnaðar fyrir félagið. Hér að neðan er gerð grein fyrir málarekstri þar sem Sýn á beinna
eða óbeinna hagsmuna að gæta:
Síminn gegn Póst- og fjarskiptastofnun, Sýn hf. og Gagnaveitu Reykjavíkur ehf., og gagnsök
Í Hæstaréttarmáli nr. 50/2022 (mál nr. 438/2020 fyrir Landsrétti og nr. E-3251/2018 í héraði) hafði stefnandi í
héraði, Síminn hf., gert kröfu aðallega um að ákvörðun Fjarskiptastofu nr. 10/2018 yrði felld úr gildi í heild sinni,
en til vara að 6. tl. ákvörðunarinnar, um álagningu stjórnvaldssektar á Símann hf., yrði felldur úr gildi eða
sektarfjárhæðin lækkuð.
Ágreiningur málsins lýtur að túlkun á ákvæði 5. mgr. 45. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011 og hvort Síminn hf.
hafi brotið gegn ákvæðinu með því að bjóða eingöngu upp á efnisveitu sína til þeirra sem keyptu
fjarskiptaþjónustu hjá samstæðu Símans hf., með það að markmiði að ná viðskiptavinum í fjarskiptaþjónustu.
Dómur féll í héraði 1. júlí 2020 þar sem stjórnvaldssekt skv. ákvörðun PFS var lækk en að öðru leyti var
kröfum Símans hf. hafnað. Félagið áfrýjaði málinu og gerði kröfu um sýknu og um greiðslu málskostnaðar.
Dómur féll í Landsrétti 24. júní sl. þar sem félagið var sýknað af öllum kröfum Símans hf., en málskostnaður var
felldur niður. Síminn hf. fékk leyfi Hæstaréttar til að áfrýja málinu, en það er ekki komið á dagskrá hjá
dóminum.
Í máli nr. E-1846/2021 hefur félagið gert kröfu um að felldur verði úr gildi með dómi úrskurður
úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála í máli nr. 7/2019. Með úrskurði sínum felldi úrskurðarnefndin úr gildi
ákvörðun Fjarskiptastofnunar í máli nr. 27/2019, en með þeirri ákvörðun hafði stofnunin lagt stjórnvaldssekt á
Símann hf. vegna þess sem stofnunin taldi vera brot á 5. mgr. 45. gr. laga nr. 38/2011 um fjölmiðla sem bannar
fjölmiðlaveitu fortakslaust að beina viðskiptum viðskiptamanna sinna að tengdu fjarskiptafyrirtæki. Taldi
stofnunin Símann hf. hafa gerst sekan um þetta með markaðsaðgerðum sínum allt fram til 1. okt. 2019. Hinn
umþrætti úrskurður byggði einkum á þeirri forsendu að formlegir annmarkar væru á ákvörðun
Fjarskiptastofnunar. Félagið taldi forsendur úrskurðarins ekki standast þar sem aðgerðir Símans hf. hafi falið í
sér brot gegn 5. mgr. 45. gr. laga nr. 38/2011 og höfðaði því mál til ógildingar hans. Rétt er að halda því til
haga að Fjarskiptastofnun höfðaði einnig mál í þessum sama tilgangi og hafa málin nú verið sameinuð. Málið
er í óákveðnum fresti meðan beðið er dóms í máli um ákvörðun Fjarskiptastofu nr. 10/2018.
Í máli nr. E-5072/2022 hefur félagið gert skaðabótakröfu á hendur Símanum hf. vegna fjártjóns sem Síminn hf.
hafi valdið félaginu í tengslum við brot gegn 5. mgr. 45. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011, samkeppnislögum nr.
44/2005 eða gegn tilteknum ákvæðum skilyrða sátta sem Síminn hf. hafi gert við samkeppnisyfirvöld, vegna
tímabilsins 2. des. 2017 til 31. des. 2019. Byggir félagið á því að brot Símans hf. hafi skilað Símanum hf. miklum
ávinningi í formi aukinna fjarskiptaviðskipta og valdið félaginu samsvarandi tjóni. Háttsemi Símans hf. hafi
verið saknæm og ólögmæt og tjón félagsins sé sennileg afleiðing hennar. Dómkrafan í málinu byggir á
matsgerð dómkvaddra matsmanna, dags. 3. ágúst 2022, sbr. matsmál nr. M-3261/2021. Aðalkrafa félagsins er
um greiðslu á 270.027.938 krónum auk vaxta og dráttarvaxta, 1. varakrafa um greiðslu á 216.022.351 krónu auk
vaxta og dráttarvaxta, 2. varakrafa um greiðslu á 162.016.763 krónum auk vaxta og dráttarvaxta, og 3.
varakrafa um greiðslu bóta að álitum skv. mati dómsins auk dráttarvaxta, allt eins og nánar er rakið í stefnu
málsins. Þá er gerð krafa um málskostnað úr hendi Símans hf. Síminn hf. hefur skilað greinargerð og krafist
frávísunar og málskostnaðar. Málið verður flutt um þá kröfu 9. mars nk.
Í máli nr. E-2362/2020 hefur félagið gert skaðabótakröfu á hendur Símanum hf. vegna fjártjóns sem Síminn hf.
olli félaginu í tengslum við brot gegn 5. mgr. 45. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011 vegna tímabilsins 1. okt. 2015
til 1. des. 2017. Byggir félagið á því að brot Símans hf. gegn framangreindu lagaákvæði hafi skilað Símanum hf.
miklum ávinningi í formi aukinna fjarskiptaviðskipta og valdið félaginu samsvarandi tjóni. Háttsemi Símans hf.
hafi verið saknæm og ólögmæt og tjón félagsins sé sennileg afleiðing hennar. Dómkrafan í málinu byggir á
matsgerð dómkvaddra matsmanna, dags. 17. mars 2020, sbr. matsmál nr. M-2957/2019. Aðalkrafa félagsins er
um greiðslu á 125.084.713 krónum auk vaxta og dráttarvaxta, 1. varakrafa um greiðslu á 100.067.773 krónum
auk vaxta og dráttarvaxta, 2. varakrafa um greiðslu á 75.050.829 krónum auk vaxta og dráttarvaxta og 3.
varakrafa um greiðslu bóta að álitum skv. mati dómsins auk dráttarvaxta, allt eins og nánar er rakið í stefnu
málsins. Þá er gerð krafa um málskostnað úr hendi Símans hf. Síminn hf. hefur skilað greinargerð og krafist
sýknu auk málskostnaðar úr hendi félagsins. Málið er í óákveðnum fresti meðan beðið er dóms í máli um
ákvörðun Fjarskiptastofu nr. 10/2018.
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 35 Fjárhæðir eru í millj. kr.
27. Önnur mál frh.:
Krafa á Ingibjörgu Pálmadóttur, Jón Ásgeir Jóhannesson og 365 hf.
Mál fyrir eftirlitsstofunun
Framtíðar skuldbindingar eða kröfur
Skýringar, frh.:
Í máli nr. 512/2022 fyrir Landsrétti (mál nr. E-2982/2020 í héraði) hefur félagið gert fjárkröfu á hendur 365 hf.,
Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Ingibjörgu Stefaníu Pálmadóttur. Aðilar gerðu með sér samning um kaup
félagsins á umfangsmikilli starfsemi stefnda 365 hf. Í samningnum var að finna ákvæði um hömlur á samkeppni
af hálfu stefndu og jafnframt ákvæði um dagsektir/févíti yrði brotið gegn samkeppnisákvæðum. Undirgengust
bæði 365 hf. og svo þeir sem stóðu að hinum keypta rekstri persónulega skuldbindingar hvað þetta varðaði.
Dómkrafan byggði á því að brotið hefði verið gegn samkeppnisákvæðunum og að stefndu beri sameiginlega
ábyrgð á þeim brotum. Gerði félagið kröfu um greiðslu dagsekta/févítis skv. fortakslausum ákvæðum í
samningi aðila og nemur dómkrafan 1.698.810.718 krónum auk vaxta og dráttarvaxta eins og greinir í stefnu
málsins. Þá gerði félagið kröfu um málskostnað in solidum úr hendi stefndu. Dómur féll í héraði 14. júlí 2022
þar sem stefndu voru dæmd sýkn af öllum kröfum félagsins og félagið var dæmt til að greiða hverju þeirra
eina milljón króna í málskostnað. Félagið áfrýjaði málinu til Landsréttar með sömu dómkröfum og í héraði.
Málið er ekki komið á dagskrá hjá Landsrétti.
Kvörtun til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) vegna ólögmætrar ríkisaðstoðar
Þann 23. febrúar 2021 sendi félagið kvörtun til ESA vegna ólögmætrar ríkisaðstoðar til handa Farice ehf. sem
hvorki hafði verið tilkynnt eða samþykkt af stofnuninni. Ríkisaðstoðin varðaði greiðslur á grundvelli
þjónustusamnings sem ekki voru í samræmi við efni þjónustusamningsins og aðra fjármuni sem höfðu runnið
til Farice ehf. vegna undirbúningar á lagningu nýs fjarskiptasæstrengs. Kvörtunin er enn til athugunar hjá
Eftirlitsstofnun ESA.
Á hverjum tíma kunna ýmis mál rekin fyrir hinum ýmsu innlendu eftirlitsaðilum. Í engu tilviki hafa verið
boðaðar sektarákvarðanir eða aðrar mjög íþyngjandi aðgerðir.
Kvörtun til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) vegna ólögmætrar ríkisaðstoðar
Fallist Eftirlitsstofnun EFTA á röksemdir Sýnar og staðfesti að um ólögmæta ríkisaðstoð hafi verið að ræða
gæti slík niðurstaða haft jákvæð áhrif á fjárhagstöðu Sýn ef til kæmu breytingar á rekstri og gjaldskrá Farice.
Þá gæti Sýn krafist skaðabóta vegna ólögmætrar háttsemi.
Þann 26. mars 2021 samþykkti Eftirlitsstofnun EFTA að aukning hlutafjár í Farice ehf. um 50 milljónir evra, til
að fjármagna megi sæstreng milli Íslands og Írlands, samræmdist ríkisaðstoðarreglum EES samningsins, sbr.
sbr. ákvörðun nr. 023/21/COL frá 26. mars 2021.
Sýn telur að ákvörðun ríkisins um að fela Farice lagningu sæstrengsins feli hins vegar í sér ólögmæta
ríkisaðstoð og hefur skotið ákvörðuninni til EFTA-dómstólsins. Munnlegur málflutningur er fyrirhugaður 10.
febrúar nk.
Sýn taldi að ákvörðun ríkisins um að fela Farice lagningu sæstrengsins feli hins vegar í sér ólögmæta
ríkisaðstoð og skaut ákvörðuninni til EFTA-dómstólsins.
Með dómi EFTA dómstólsins, sem kveðinn var upp 1. júní 2022, féllst EFTA dómstóllinn á kröfu Sýnar hf. um
ógildingu ákvörðunar í máli nr. E4/21. Jafnframt var ESA dæmd til greiðslu málskostnaðar. Af þessu leiðir að
Eftirlitsstofnun EFTA ber að taka ákvörðun um rannsókn á málinu þar sem hagsmunaaðilum gefist tækifæri á
að tjá sig um aðstoðina. Slík rannsókn getur því leitt til þess að ríkisaðstoð teljist ólögmæt eða að skilyrði verði
sett fyrir framkvæmd hennar. Niðurstaða rannsóknarinnar gæti því haft í för með sér breytingar á rekstri og
Ógilding ákvörðunar Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) í máli frá 26. mars 2021 vegna ríkisaðstoðar til Farice
ehf. fyrir þriðja fjarskiptasæstrenginn milli Íslands og Evrópu og ný rannsókn
Á þessum tímapunkti getur félagið ekki metið framtíðar skuldbindingar eða kröfur sem leiða af niðurstöðum
þeirra mála sem tilgreind eru hér að ofan meðal annars vegna þess að það getur tekið langan tíma að fá
niðurstöðu í mál, ásamt því að mál geta þróast í ólíkar áttir. Vegna þess hefur engin skuldbinding né krafa
verið færð í árshlutareikning félagsins.
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 36 Fjárhæðir eru í millj. kr.
28.
Þann 20. desember 2022 undirrituðu Sýn hf. og Ljósleiðarinn ehf. kaupsamning um kaup Ljósleiðarans á
stofnneti Sýnar og langtíma þjónustusamning milli félaganna. Umsamið kaupverð er 3.000 m.kr.
Kaupsamningsgreiðsla verður innt af hendi í áföngum og verður kaupverðið að fullu greitt eigi síðar en 12
mánuðum frá afhendingu hinna seldu eigna. Hinar seldu eignir eru bókfærðar á 564 m.kr. og nemur
söluhagnaður því 2.436 m.kr. og mun bókfærast að fullu við afhendingu.
Samhliða kaupsamningi hefur verið gerður þjónustusamningur milli félaganna til 12 ára um heildsöluaðgang og
þjónustu yfir burðar- og aðgangsnet Ljósleiðarans, sem og þjónustu um internettengingar til útlanda.
Gert er ráð fyrir að viðskiptin hafi jákvæð áhrif á rekstrarkostnað Sýnar um 100 m.kr. nettó á ári. Þá lækki árleg
fjárfestingaþörf í kringum 120 m.kr. yfir samningstímann.
Viðskiptin eru með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins en samrunatilkynning verður send
Samkeppniseftirlitinu innan skamms.
Skýringar, frh.:
Atburðir eftir lok reikningsskiladags
Heimild til kaupa á eigin hlutum
Félagið hefur heimild til að kaupa allt að 10% af eigin hlutum í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti
í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun. Þann 7. nóvember hófst endurkaupaáætlun
sem stendur enn yfir. Endurkaupin munu að hámarki nema 4.958.678 hlutum, eða um 1,85% af útgefnum
hlutum félagsins, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna fari ekki yfir 300 millj. kr.
Sala burðarnets
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 37 Fjárhæðir eru í millj. kr.
2022 2022 2022 2022
1F 2F 3F 4F
Samtals
5.682 6.009 5.501 5.791 22.983
( 3.666) ( 4.124) ( 3.480) ( 3.696) ( 14.966)
2.016 1.885 2.021 2.095 8.017
( 1.615) ( 1.563) ( 1.535) ( 1.712) ( 6.425)
401 322 486 383 1.592
21 9 56 136 222
( 221) ( 248) ( 262) ( 267) ( 998)
Gengismunur 58 13 ( 66) ( 75) ( 70)
( 142) ( 226) ( 272) ( 206) ( 846)
0 0 0 0 0
259 96 214 177 746
( 52) ( 30) ( 33) 257 142
207 66 181 434 888
Þýðingarmunur ( 26) ( 35) 10 52 1
Heildarafkoma tímabilsins 181 31 191 486 889
1.710 1.607 1.799 1.528 6.644
30,1% 26,7% 32,7% 26,4% 28,9%
1.107 1.580 1.249 1.692 5.628
( 819) ( 1.010) ( 842) ( 1.321) ( 3.992)
( 2.402) ( 407) ( 467) ( 519) ( 3.795)
*Ársfjórðungslegar upplýsingar hafa ekki verið endurskoðaðar af endurskoðendum.
Fjármagnsgjöld
Hagnaður tímabilsins
Rekstrarhagnaður
Fjármunatekjur
Hrein fjármagnsgjöld
Ársfjórðungsyfirlit*
Hagnaður fyrir tekjuskatt
Tekjuskattur
Seldar vörur og þjónusta
Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu
Framlegð
Rekstur samstæðunnar greinist þannig á ársfjórðunga
Áhrif hlutdeildarfélaga
Rekstrarkostnaður
EBITDA
EBITDA %
Handbært fé frá rekstri
Fjárfestingarhreyfingar
Fjármögnunarhreyfingar
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 38 Fjárhæðir eru í millj. kr.
2021 2021 2021 2021
1F 2F 3F 4F
Samtals
5.000 5.289 5.533 5.943 21.765
( 3.375) ( 3.759) ( 3.654) ( 3.884) ( 14.672)
1.625 1.530 1.879 2.059 7.093
Hagnaður af sölu óvirkra innviða 2.552 2.552
( 1.583) ( 1.588) ( 1.457) ( 1.731) ( 6.359)
42 ( 58) 422 2.880 3.286
5 6 5 6 22
( 144) ( 145) ( 146) ( 178) ( 613)
Gengismunur 46 22 ( 70) 20 18
( 93) ( 117) ( 211) ( 152) ( 573)
( 193) 20 - ( 78) ( 251)
( 244) ( 155) 211 2.650 2.462
13 38 ( 39) ( 374) ( 362)
( 231) ( 117) 172 2.276 2.100
Þýðingarmunur ( 37) ( 7) 19 ( 89) ( 114)
Heildarafkoma tímabilsins ( 268) ( 124) 191 2.187 1.986
1.388 1.488 1.886 1.670 6.432
1.388 1.488 1.886 4.222 8.984
27,8% 28,1% 34,1% 71,0% 41,3%
542 1.432 1.756 1.287 5.017
( 807) 164 ( 1.043) 5.924 4.238
( 320) ( 1.428) ( 691) ( 3.463) ( 5.902)
*Ársfjórðungslegar upplýsingar hafa ekki verið endurskoðaðar af endurskoðendum.
Seldar vörur og þjónusta
Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu
Framlegð
Ársfjórðungsyfirlit*
Rekstur samstæðunnar greinist þannig á ársfjórðunga
Áhrif hlutdeildarfélaga
Rekstrarkostnaður
Fjármagnsgjöld
Rekstrarhagnaður (tap)
Hrein fjármagnsgjöld
Fjármunatekjur
Fjárfestingarhreyfingar
Fjármögnunarhreyfingar
Hagnaður (tap) fyrir tekjuskatt
Tekjuskattur
Hagnaður (tap) tímabilsins
Handbært fé frá rekstri
EBITDA
EBITDA %
EBITDA aðlöguð fyrir sölu óvirkra innviða
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 39 Fjárhæðir eru í millj. kr.
Ófjárhagslegar upplýsingar
Viðskiptalíkan
Sýn hf. er alhliða þjónustufyrirtæki sem býður einstaklingum, fyrirtækjum og opinberum aðilum upp á
fjarskipta-, fjölmiðla- og tækniþjónustu í gegnum vörumerkin Vodafone, Stöð 2, Stöð 2+, Stöð 2 Vísi,
Stöð 2 Sport, Vísi, Bylgjuna, FM957, X977 og dótturfélagið Endor ehf.
Stefna félagsins er að vera nútímalegt þjónustufyrirtæki þar sem viðskiptavinurinn er í fyrirrúmi. Við
leggjum áherslu á að rækta langtímaviðskiptasamband sem byggist á virðingu og trausti.
Megináhersla er lögð á að stuðla að nýsköpun og framþróun fyrirtækisins með sjálfbærni og hagsmuni
hagaðila í fyrirrúmi.   
Kjarninn í stefnunni er upplifun viðskiptavina okkar og er einfaldleikinn í fyrirrúmi. Við einföldum
einnig reksturinn ásamt ferlum og kerfum innanhúss. Við höfum stóran og tryggan hóp viðskiptavina
sem okkur er annt um og leggjum okkar fram við að sinna. Stefna félagsins endurspeglast í nálgun
okkar í sjálfbærni í rekstri, ríkri áherslu á umhverfis- og félagsþættir í starfseminni, góðum
stjórnarháttum, áhættustýringu, ánægju starfsmanna og menningu. Markmið okkar er að vaxa með
því að koma til móts við þarfir viðskiptavina okkar og rækta langtímasamband við þá. Ánægja
viðskiptavina er í fyrsta sæti.
Við bætum rekstrarmódelið okkar stöðugt með því að sjálfvirknivæða ferla, þróa öflugar stafrænar
lausnir og nýta okkur tækniþróun viðskiptavinum okkar til góðs. Við ræktum nýsköpun sem skilar
okkur í nýjum tekjustoðum ásamt vörum og þjónustu við viðskiptavini. Við leitum stöðugt tækifæra til
að auka sveigjanleika í rekstri með sölu eigna og úthýsingu á þjónustu. Með slíkum breytingum getum
við betur veitt viðskiptavinum góða og gagnsæja upplifun af viðskiptasambandinu og aukið ánægju
þeirra.
Grunnkerfin okkar tengja saman fjölskyldur, vini, fyrirtæki og stjórnvöld. Við teljum að tækni og
samskipti séu framtíðarmáttarstólpar samfélagsins, þættir sem munu hafa mikil áhrif á líf fólks og
auðvelda það. Við ætlum að vera mikilvægur þátttakandi í þeirri vegferð.
Bætt kerfi og betri þjónusta 
Sýn hefur markvisst verið í kerfisuppbyggingu og útskiptingu eldri kerfa yfir í nútímalegra
kerfislandslag með það eitt að markmiði að auka upplifun viðskiptavina. Dæmi má nefna getu til
sjálfsafgreiðslu, að félagið geti verið sveigjanlegt í vörum og þjónustum og mætt betur þörfum
viðskiptavina. Sýn styður við nýsköpun og tækniframfarir á fjölmiðla- og fjarskiptamarkaði sem tryggir
að við getum verið leiðandi.
Áhættustefna
Áhættustýring er samofin ábyrgð við daglegan rekstur félagsins sem felst í því að hafa eftirlit með
helstu þáttum í starfsemi fyrirtækisins og tryggja þannig samfellu í rekstri og lágmörkun áhættu. Í
áhættustefnu félagsins eru rammaðar inn áherslur stjórnar á meðhöndlun áhættu og umfangs
áhættustjórnunar hjá félaginu. Heilt yfir er rekstur félagsins frekar áhættufælinn. Það þýðir að félagið
bregst almennt við áhættum með því að meðhöndla þær til áhættulækkunar. Afgangsáhætta ætti þó
aldrei að fara upp fyrir 5% af metnum áhættum. Félagið er mjög áhættufælið varðandi ákveðna
starfsemi, má þar til dæmis nefna heilsu og öryggi stafsfólks, vinnslu upplýsinga, hvort sem það eru
persónuupplýsingar viðskiptavina eða viðkvæmar upplýsingar um starfsfólk eða reksturinn og
rekstraröryggi kjarnakerfa fjarskiptaþjónustunnar. Í ofangreindum rekstrarþáttum hefur félagið mjög
lítið áhættuþol og þar sem að þær eru síbreytilegar leggur félagið áherslu á að fyrirbyggjandi- og
neyðarráðstafanir séu uppfærðar og skjalfestar. Félagið sættir sig ekki við gáleysi eða værukærð
þegar kemur að því að vernda öryggi upplýsinga á öllum líftíma þeirra. Stefnt skal að því að uppitími
kjarnakerfa fjarskiptaþjónustu sé að lágmarki 99.9% (niðritími utan skipulagðra útfalla að hámarki 5
mín á ári) og uppitími framlínukerfa sé að lágmarki 99.9% milli kl. 8-21 alla daga vikunnar.
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 40 .
Árás illvilja aðila er áhætta sem getur haft alvarleg áhrif á kerfi og tiltækileika þeirra auk öryggis þeirra
upplýsinga sem þau geyma. Líkurnar á að framkvæmd sé netárás á fjarskiptabúnað, upplýsingakerfi
eða viðskiptavini eru miklar og geta áhrifin varað frá nokkrum mínútum og upp í nokkra daga.
Netógnin virðist ekki hafa nein takmörk og eru aðilar stöðugt að finna nýjar leiðir til að valda skaða, ná
sér í peninga eða koma boðskap á framfæri. Félagið bregst við þessari áhættu með því að vera
stöðugt að fylgjast með og byggja upp netvarnir félagsins þannig að skaðinn sem netárásir geta
valdið sé lágmarkaður. Samstarf félagsins við Vodafone Group gerir félaginu kleift að samþætta
tækni, högun og þekkingu á netvörnum. Vöktun er til staðar á umferð mikilvægra neta og kerfa.
Gerðar eru reglulegar úttektir og veikleika kannanir af netöryggissérfræðingum á tölvukerfum og
netum samkvæmt þjónustusamningum við slíka aðila. Regluleg fræðsla til starfsmanna er til staðar
um netógnir og félagið er í samstarfi við Cert-IS netöryggissveit Fjarskiptastofnunar.
Ófjárhagslegar upplýsingar frh.:
Ófyrirséð náttúruvá:
Eldgos, flóð, snjóflóð, aurskriður, eldingar og almennt óveður eru allt hluti af því að búa á Íslandi. Allir
þessir atburðir geta haft áhrif á þjónustu Sýnar og valda því að álag á þjónustuna eykst. Slíkir atburðir
geta valdið þjónusturofi á ákveðnum svæðum í ákveðinn tíma. Félagið bregst við þessari áhættu með
því að hafa starfsfólk á bakvöktum sem er tilbúið að bregðast við ef á þarf að halda. Vaktir á
fjarskiptakerfinu eru til staðar allan sólarhringinn alla daga ársins. Varaafl og varaleiðir eru til staðar á
lykilstöðum. Unnið er náið með Almannavörnum og Neyðaröryggisfjarskiptum þegar um alvarlega
atburði er að ræða.
Netógnir:
Truflun á starfsemi vegna starfsmannaveltu, veikinda, álags, þekkingarleysis eða slysa:
Sterk liðsheild, ástríða fyrir starfinu, metnaður og fagmennska er forsenda góðs árangurs í starfi. Að
fólki líði vel í vinnunni, það fái útrás fyrir sköpunarþörf sína og takist á við verkefni sem þroska það í
leik og starfi. Truflanir geta hins vegar orðið á starfseminni ef starfsmannavelta, veikindi, álag eða
þekkingarleysi verða of mikil. Óhöpp og slys geta einnig haft neikvæð áhrif á starfsemina. Félagið
bregst við þessari áhættu með því að rækta sterka menningu meðal starfsmanna, tryggja að
starfsfólki líði vel, það þróist í starfi og sé metið að verðleikum. Haldið er úti skipulögðu fræðslustarfi
til að auka hæfni starfsfólks og viðhalda markvisst þekkingu innan félagsins. Stuðlað er að jafnrétti og
jafnvægi milli vinnu og einkalífs auk þess að undirgangast þær skyldur sem lagðar eru á fyrirtækið.
Áföll í fjarskiptaneti, fjarskipta- og/eða upplýsingakerfum:
Upplifun viðskiptavina af þjónustu félagsins skiptir máli. Mikilvægi þjónustunnar eykst sífellt og
viðskiptavinir treysta á áhyggjulausa notkun og að starfsemin uppfylli þeirra væntingar. Einstaklingar
og fyrirtæki treysta því að kerfin veiti þeim umsamda þjónustu og öll áföll sem leiða til neikvæðrar
þjónustuupplifunar geta skaðað orðspor og jafnvel aukið brottfall. Mistök starfsmanna eða
þjónustuaðila geta valdið óþarfa álagi og rekstrartruflunum. Áhættan getur hlutgerst á öllum þeim
stöðum sem félagið hefur starfsemi, hvort sem er tækjarými, hýsingarsalir, verslanir, þjónustuver,
sendastaðir eða skrifstofur. Skilvirkir innri ferlar félagsins geta dregið úr hættunni á því að rangar
ákvarðanir um innkaup og jafnvel högun kerfa og uppbyggingu til framtíðar séu teknar. Áhættan
hefur meiriháttar staðbundin áhrif ef hún hlutgerist, en getur í verstu útföllunum valdið sambandsleysi
á landsvísu. Félagið bregst við þessari áhættu með því að skilgreina öll fjarskiptakerfi innan umfangs
upplýsingaöryggisvottunar ISO 27001. Kröfur um afritun og afkastagetur kerfa er innbyggt í kerfislega
högum. Varaleiðir sambanda eru hluti af uppbyggingu netkerfa auka þess sem vöktun er til staða allan
sólarhringinn alla daga ársins. Mikilvægustu innviðir starfseminnar eru varðir fyrir óheimiluðum
raunlægum aðgangi. Öll netkerfi, kjarnabúnaður og stoðeiningar eru tengd áætlunum um
rekstrarsamfellu.
Ófullnægjandi ráðstafanir við vinnslu persónuupplýsinga:
Það er mikilvægur hluti af starfsemi félagsins að vernda persónuupplýsingar viðskiptavina. Félagið er í
ábyrgðarstöðu þar sem kerfi þess vinna með og miðla persónuupplýsingum. Ef miðlun og varsla er
ófullnægjandi getur það haft veruleg áhrif á ímynd félagsins. Félagið bregst við þessari áhættu með
því að tryggja að geymsla fjarskiptaumferðargagna sé í samræmi við lög og reglur sem þar eiga við.
Reglulega eru framkvæmdar innri úttektir á hlítni við þær reglur. Skýrt verklag er til staðar varðandi
vinnslu persónuupplýsinga og undir eftirliti persónuverndarfulltrúa. Sett hefur verið saman vinnsluskrá
sem rammar inn allar vinnslur félagsins með persónugreinanlegar upplýsingar. Fræðsla til starfsfólks
um persónuvernd og vinnslu upplýsinga er hluti af skyldufræðslu.
Áhættustefna, frh:
Lykiláhættur félagsins hafa m.a. verið skilgreindar á eftirfarandi hátt (áhættur ekki settar fram í neinni
sérstakri röð):
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 41 .
Á sviði upplýsingaöryggis leitast félagið einnig við að sækja sér þekkingu þar sem hún er best. Við
höfum árum saman unnið með helstu sérfræðingum landsins í upplýsingaöryggi ásamt því að njóta
góðs af samstarfinu við Vodafone Group. Sérfræðingar félagsins hafa unnið náið með samstarfsaðilum
á sviði upplýsingaöryggis með það fyrir augum að þróa öryggismál þess áfram og samkvæmt bestu
aðferðum. Gott samstarf er með netöryggissveit Fjarskiptastofu CERT-IS, fjarskiptafélaga og
fjármálafyrirtækja um upplýsingaöryggi. Samstarfið gerir okkur kleift að hafa viðtækari sýn á þær
ógnir sem eru í gangi á hverjum tíma og um leið styttir viðbragðstíma við þeim. Unnið er eftir
ákveðnu verklagi við viðbrögðum við atburðum, s.s. svika tölvupóstum og sms en mikil aukning hefur
verið á slíkum árásum undanfarin misseri.   
Ófjárhagslegar upplýsingar frh.:
Áherslur í upplýsingaöryggi
Félagið hefur frá upphafi lagt áherslu á að allt rekstrar- og þjónustuumhverfi þess sé öruggt og að
þekking, hæfi og fagmennska starfsmanna sé til fyrirmyndar þegar kemur að upplýsingaöryggi og
persónuvernd. Meðal starfsmanna eru sérfræðingar í upplýsingaöryggi sem hlotið hafa sértæka
öryggisþjálfun, bæði hvað varðar rekstur upplýsingatæknikerfa og ferla upplýsingaöryggis. Félagið
notar við það viðurkenndar og vottaðar aðferðir við að lágmarka ógnir og áhættu sem kann að steðja
að upplýsingatæknikerfum þess. Á hverju ári er gerður fjöldi prófana sem snúa að öryggi innviða en
einnig eru gerðar prófanir á þeim innviðum, umhverfi og kerfum sem félagið á, þjónustar og rekur.
Samvinna á sviði upplýsingaöryggis
Stefna félagsins í mannréttindamálum
Félagið hefur sett sér jafnréttisáætlun og tekur hún meðal annars til mannréttinda samkvæmt þeim
þáttum sem tilgreindir eru í lögum og stjórnarskrá. Félagið er með birgjastefnu í tengslum við öryggis-
, heilbrigðis-, og vinnuumhverfisstefnu félagsins. Undir þá stefnu falla allir miðlægir
innkaupasamningar við birgja. Sömu kröfur eru gerðar til birgja og til félagsins sjálfs. Í stefnu kemur
m.a. fram að birgjar félagsins skulu ganga vel um náttúruna. Þeir skulu almennt hirða eftir sig rusl,
ganga vel um, valda ekki spjöllum við framkvæmdir eins og línulagningar, uppgræðslur, húsbyggingar,
jarðboranir og slíkt. Birgjar skulu viðurkenna og virða rétt starfsmanna til félagafrelsis og að þeir eigi
rétt á því að semja um kaup og kjör sameiginlega. Birgjar skulu jafnframt tryggja að starfsmenn þeirra
gegni starfi sínu án valds eða nauðungar og að þeim sé frjálst að hætta með hæfilegum og
lögbundnum fyrirvara. Birgjum er óheimilt að ráða ólögráða börn til að framkvæma vinnu sem er
hættuleg eða skaðleg heilsu þeirra og öryggi. Birgi skal virða rétt barna til menntunar og almennrar
heilsuverndar. Birgjar skulu í það minnsta virða reglur Alþjóðavinnumálastofnunar um lágmarks aldur
barna sem starfsmanna. Birgjar skulu tryggja að starfsmenn þeirra hafi jöfn tækifæri og jafnan rétt á
vinnustað og til starfa án mismununar á grundvelli til dæmis kyns, kynþáttar, trúarbragða, aldurs,
fötlunar, kynhneigðar, þjóðernis, skoðana, efnahagslegrar stöðu eða félagslegs bakgrunns. Birgjar
skulu skapa vinnuumhverfi sem einkennist af jafnrétti, umburðarlyndi og gagnkvæmri virðingu.
Stefna um mútur og peningaþvætti
Félagið leggur ríka áherslu á að stunda ábyrga viðskiptahætti, starfa af heilindum og sanngirni í
samskiptum við starfsfólk, viðskiptavini og aðra sem tengjast fyrirtækinu á einhvern hátt. Í ljósi þess
hefur fyrirtækið markað sér skýra stefnu gegn hverskyns spillingu eða mútugreiðslum. Stefna
félagsins byggir á stefnu Vodafone Group um málaflokkinn og tekur til allrar starfsemi fyrirtækisins.
Samkvæmt stefnunni er starfsfólki fyrirtækisins með öllu óheimilt að veita eða þiggja mútur, með
beinum eða óbeinum hætti og ber að tilkynna um allt mögulegt misferli.
Starfsmannastefna
Hjá Sýn leggjum við áherslu á að starfsfólk upplifi vellíðan í vinnu. Það gerum við með því að búa
starfsfólki framúrskarandi vinnuaðstöðu, huga að líkamlegri og andlegri heilsu þess og gefa því
möguleika á sveigjanleika í vinnu. Við viljum að fólki líði vel í vinnunni, upplifi sig sem hluta af sterkri
liðsheild, fái útrás fyrir sköpunarþörf sína og tækifæri til að takast á við verkefni þar sem styrkleikar
þeirra fá helst notið sín. Sýn vill þannig stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og góðu sjálfstrausti starfsfólks
og að starfsfólk sýni frumkvæði í starfi. Við trúum því að fyrirtækinu gangi best þegar starfsfólkið er
upp á sitt BESTA.
Í upphafi árs 2022 sögðum við skilið við fjöldatakmarkanir og gátum loks komið öll saman á
vinnustaðnum að nýju. Eftir rúm tvö ár í skrítnu ástandi var gott að hitta alla vinnufélagana loks augliti
til auglitis og má með sanni segja að mikill metnaður og kraftur hafi fylgt í kjölfarið.
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 42 .
Árið reyndist ár talsverðra breytinga fyrir félagið en um mitt ár sagði Heiðar Guðjónsson upp störfum
og tók Yngvi Halldórsson við forstjórastólnum á haustmánuðum. Yngvi er öllum hnútum kunnugur
eftir að hafa setið í framkvæmdastjórn fyrirtækisins síðustu þrjú ár og þar áður í stjórn félagsins. Undir
lok árs urðu svo talsverðar skipulagsbreytingar innan félagsins sem miðuðu að því að bæta arðsemi
og einfalda starfsemina. Samhliða skipulagsbreytingunum voru þær Alda Sigurðardóttir og Hulda
Hallgrímsdóttir ráðnar inn í framkvæmdastjórn félagsins og í byrjun janúar 2023 var einnig gengið frá
ráðningu á Sesselíu Birgisdóttur í framkvæmdastjórnina. Í fyrsta skipti í sögu félagsins sitja því nú fleiri
konur en karlar í framkvæmdastjórn.
Ófjárhagslegar upplýsingar frh.:
Starfsmannastefna frh.
Lögð var rík áhersla á að styrkja tengslin og eiga virkt samtal við hvern og einn starfsmann. Þannig
stóðu Heiðar Guðjónsson, fyrrverandi forstjóri, og Alda Sigurðardóttir, mannauðsstjóri, til að mynda
fyrir fundarröð á vormánuðum þar sem allt starfsfólk var hvatt til að greina frá sinni sýn á félagið,
þjónustuna og fyrirtækjamenninguna. Fundunum var svo fylgt eftir með viðhorfskönnun þar sem þeir
sem ekki komust á fundina gátu komið sínum hugleiðingum á framfæri. Fundirnir mæltust vel fyrir hjá
starfsfólki og var strax farið að vinna úr hugmyndum og ábendingum sem komu fram. Það var
ánægjulegt að heyra samhljóminn innan fyrirtækisins en almennt ríkir mikil ánægja og virðing á meðal
starfsfólks, það telur vinnuumhverfið gott og er ánægt með þann sveigjanleika sem í boði er. Auk
fundanna voru regluleg starfsmannasamtöl tekin upp að nýju. Þá voru framkvæmdar reglulegar
púlsmælingar á meðal starfsfólks í gegnum HR Monitor sem heilt yfir komu vel út og í samanburði við
önnur fyrirtæki sem nýta sér þá þjónustu mældist Sýn yfir meðallagi þegar kemur að starfsánægju.
Út frá þessu virka samtali við starfsfólk í gegnum árið er svo verið að vinna aðgerðaráætlun til þess að
skapa framúrskarandi fyrirtækjamenningu innan félagsins til framtíðar.
Heilsuefling starfsfólks
Hjá Sýn er okkur umhugað um heilsu starfsfólks og leggjum ríka áherslu á að huga að andlegri og
líkamlegri heilsu starfsfólks. Árlega veitir félagið hverjum starfsmanni heilsustyrk sem ætlað er að
hvetja starfsfólk til heilsueflingar. Þá veitir félagið einnig samgöngustyrk hverjum þeim sem nýtir sér
vistvænar samgöngur til og frá vinnu en samgöngustefna félagsins miðar meðal annars að því að
stuðla að heilbrigðari lífsháttum starfsmanna auk þess að draga úr mengun og minnka umferðarálag.
Við höfuðstöðvarnar er einnig upphituð hjólageymsla, góð búningsaðstaða og núvitundarherbergi
sem starfsfólk getur nýtt við hverskyns heilsueflingu.
Félagið er einnig í samstarfi við fjölmarga aðila sem veita starfsfólki sérsniðna þjónustu eftir þörfum.
Þar má til dæmis nefna sálfræðiþjónustu, markþjálfun og almenna heilbrigðisþjónustu. Félagið hefur
þannig milligöngu um að koma starfsfólki fljótt og örugglega að hjá sérfræðingum á hverju sviði eftir
því sem við á og/eða niðurgreiðir þjónustuna.
Jafnréttismál
Sýn metur alla starfsmenn að verðleikum og leggur sig fram við að allir njóti jafnra tækifæra á
vinnustaðnum. Mikil áhersla er lögð á að auka hlut kynjanna í þeim störfum þar sem kynjaskekkja er
ráðandi. Fyrirtækið hefur áður hlotið Hvatningarverðlaun jafnréttismála. Þá stenst það einnig
ströngustu kröfur jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012 og er því jafnlaunavottað fyrirtæki.
Venju samkvæmt fór félagið í gegnum endurvottun á jafnlaunakerfinu á vormánuðum þar sem
óútskýrður launamunur á milli kynja var kannaður. Niðurstöðurnar voru afar ánægjulegar en
óútskýrður launamunur var aðeins 0,6% konum í vil en var 0,6% körlum í vil árið 2021. Markmið
félagsins er áfram að vera með 0% launamun og verður haldið áfram að vinna að því marki árið 2023.
1,6
1,9
0,6 0,6
2019 2020 2021 2022
Niðurstaða jafnlaunavottunar
(Launamunur kynjanna)
Körlum í vil Konum í vil
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 43 .
UNI er regnhlífarhugtak sem nær yfir allt fræðslustarf innan Sýnar. Með UNI viljum við tryggja góða og
samræmda grunnþjálfun starfsmanna um leið og við veitum starfsfólki sérhæfða þjálfun og fræðslu
sem hentar starfi hvers og eins.
Ófjárhagslegar upplýsingar frh.:
Jafnréttismál frh.
Kynjahlutföll starfsmanna eru 66% karlar og 34% konur.
Kynjahlutfall stjórnar er 60% karlar og 40% konur.
UNI
Því til viðbótar býður UNI reglulega upp á gagnleg námskeið og fyrirlestra sem eflir starfsfólk bæði í
leik og starfi.
Á árinu var rík áhersla lögð á stjórnendaþjálfun með það að markmiði að efla hvern og einn
stjórnanda, veita þeim góð og gagnleg verkfæri til að takast á við þá ábyrgð og verkefni sem standa
frammi fyrir hverjum stjórnanda og samhæfa vinnubrögð þvert á félagið.
Félagslífið
Mikið er lagt upp úr góðum anda á vinnustaðnum, jákvæðum samskiptum og því að hafa gaman í
vinnunni. Boðleiðir eru stuttar og við hjálpumst öll að við að ná settum markmiðum.
Innan fyrirtækisins starfar öflugt starfsmannafélag sem stendur reglulega fyrir viðburðum fyrir
starfsfólk og fjölskyldur þeirra en auk þess eru fjölmargir klúbbar starfræktir á meðal starfsfólks t.d.
hjólahópur, hlaupahópur, royalistafélag og gönguhópur svo fátt eitt sé nefnt.
Eftir rúm tvö ár af takmörkuðu félagslífi innan félagsins blómstraði það að nýju árið 2022.
Starfsmannafélagið var mjög virkt og stóð fyrir fjölmörgum skemmtilegum viðburðum yfir árið bæði
fyrir starfsfólk og fjölskyldur þeirra. Félagið hélt svo glæsilega árshátíð í Valsheimilinu með Idol þema
sem heppnaðist einstaklega vel. Þá var ánægjulegt að sjá innri hvata hjá starfsfólki til að standa sjálft
fyrir ýmiskonar viðburðum og má þar til dæmis nefna göngu á Sólheimajökul í vor og að Grænahrygg
í lok sumars.
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 44 .
Sýn hf. telur mikilvægt að ganga fram með góðu fordæmi og fylgir eftir Heimsmarkmiðum Sameinuðu
þjóðanna um sjálfbæra þróun þar sem hliðsjón er tekin af starfsemi og markmiðum félagsins. Félagið
fylgir eftir fimm Heimsmarkmiðum; markmiði 5 um jafnrétti kynjanna, markmiði 8 um góða atvinnu og
hagvöxt, markmiði 9 sem snýr að nýsköpun og uppbyggingu, markmiði 12 um ábyrga neyslu og
framleiðslu og markmiði 13 um aðgerðir í loftslagsmálum. 
Ófjárhagslegar upplýsingar frh.:
Sjálfbærni
Sýn hf. sýnir samfélagslega ábyrgð í verki með því að sinna hlutverki sínu sem fjarskipta- og
fjölmiðlafyrirtæki af fagmennsku og ábyrgð. Félagið leggur megináherslu á að stuðla að nýsköpun og
framþróun fyrirtækisins með sjálfbærni og hagsmuni hagaðila í fyrirrúmi.   
Meginstoðir samfélagsábyrgðar félagsins eru þrjár: Hlítni, sjálfbærni og sameiginlegt virði. Undir hlítni
falla lög, reglur, staðlar og vottanir, undir sjálfbærni falla mannauður, umhverfi, virðiskeðja og
efnahagur og undir sameiginlegt virði falla nýsköpun, öryggi og innviðir og samskipti og fræðsla.  Sýn
hefur sett skýr markmið í umhverfis- og loftslagsmálum sem eru til þess fallin að draga úr neikvæðum
umhverfisáhrifum og hafa þannig jákvæð áhrif á vistspor félagsins. Sýn hf. hefur skrifað undir
loftslagsyfirlýsingu FESTU og Reykjavíkurborgar um markmið og aðgerðir í loftslagsmálum.  
Megináherslur Sýnar hf. á sviði sjálfbærni er að auka verðmætasköpun innan sem utan félagsins og
draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum starfseminnar. Stjórn og stjórnendur leggja höfuðáherslu á að
hún sé í samræmi við alþjóðamælikvarða á sviði sjálfbærniupplýsingagjafar og meginmarkmiða
félagsins til framtíðar. Félagið styður við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og
hefur hafið innleiðingu á sjálfbærnistaðlinum Global Reporting Initiative (GRI) þar sem horft er til
hagsmuna lykil haghafa. Stjórn og stjórnendur bera ábyrgð á innleiðingu sjálfbærnistaðalsins og
skuldbindur félagið sig að miðla upplýsingum um starfsemina og starfshætti eftir meginviðmiðum GRI
sjálfbærnistaðalsins og gefur út árlega sameiginlega árs- og sjálfbærniskýrslu. 
Umhverfisþættir(U)
Sýn hf. hefur sett stefnu og ákveðin markmið í umhverfis- og loftslagsmálum sem eru til þess fallin að
draga úr mengun og hafa þannig jákvæð áhrif á vistspor félagsins.  
Félagið er staðráðið í því að vernda umhverfið og hefur einsett sér að efla vistvænar samgöngur,
draga úr myndun úrgangs og stuðla að betri orkunýtingu. Félagið ætlar að ganga um landið af
virðingu, með umhverfisvernd að leiðarljósi. Þannig er ávallt leitast við að framkvæmdir á vegum þess
valdi sem minnstu umhverfisraski. Félagið hefur sett sér það markmið að flokka allt sorp sem fellur til í
starfseminni, auka þannig endurvinnslu og draga úr ónauðsynlegri urðun á sorpi. Félagið leitast við að
lágmarka notkun á óendurnýjanlegum auðlindum og losun skaðlegra efna út í umhverfið eins og
kostur er.  Þá vinnur það með viðskiptavinum, birgjum og verktökum að því að þróa vörur og þjónustu
til að lágmarka áhrifin sem það hefur á umhverfið. 
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 45 .
Ófjárhagslegar upplýsingar frh.:
Umhverfismarkmið
Minnkun eldsneytisnotkunar
Eldsneytisnotkun hefur minnkað um 23% frá 2019. Aftur á móti hefur hún hækkað frá árinu 2021 og
segja má að hún hafi lækkað óvenju mikið frá 2019-2021 þar sem Covid hafði mikil áhrif á
eldsneytisnotkun.
Samdráttur í prentun á pappír á milli ára
Umhverfisþættir(U) frh.
Heildarþyngd prentaðs pappírs hefur minnkað um 49% frá árinu 2019.
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 46 .
Ófjárhagslegar upplýsingar frh.:
Umhverfisþættir(U) frh.
Félagið tekur hlutverk sitt alvarlega og leggur sig fram um að vera fyrirmynd annarra í ýmsum
samfélagsmálum. Það fylgir í hvívetna lögum og reglum og einsetur sér að vernda umhverfið og sýna
starfsfólki sínu, birgjum og viðskiptavinum virðingu í öllum samskiptum.
Félagið hefur skýra stefnu og viðbragðsáætlun gegn einelti, áreitni og ofbeldi á vinnustaðnum. Gerð
er krafa um að starfsmenn sýni samstarfsfólki alltaf kurteisi og virðingu í samskiptum. Einelti,
kynferðisleg áreitni, kynbundin áreitni og ofbeldi er ekki undir nokkrum kringumstæðum umborið.
Stjórnarhættir(S)
Stjórn Sýnar leitast við að viðhalda góðum stjórnarháttum og fylgir þeim viðurkenndu leiðbeiningum
um stjórnarhætti fyrirtækja sem gefnar eru út af Viðskiptaráði Íslands í samstarfi við Samtök
atvinnulífsins og Nasdaq Iceland með það að markmiði að styrkja innviði Sýnar hf. og auka gagnsæi.
Í stjórn Sýnar sitja fimm manns, tvær konur og þrír karlar.
Nánari umfjöllun um þessi málefni ásamt tölulegum upplýsingum og ítarlegu umhverfisuppgjöri er að
finna í árs-sjálfbærniskýrslu félagsins.
Hlutfall flokkaðs úrgagns verði 70%
Félagslegir þættir(F)
Félagið leggur ríka áherslu á félagsleg málefni og veitir víðtæka þjónustu sem skiptir miklu máli fyrir
innviði samfélagsins, samskipti fólks og rekstur fyrirtækja og stofnana.
Samstæðuársreikningur Sýnar hf. 2022 47 .
Stjórnarhættir Sýnar hf. taka mið af lögum nr. 2/1995 um hlutafélög, lögum nr. 3/2006 um
ársreikninga, lögum nr.60/2021 um aðgerðir gagn markaðssvikum, lögum nr. 70/2022 um fjarskipti,
lögum nr. 38/2011 um fjölmiðla og öðrum almennum lögum sem gilda um starfsemina, reglum um
útgefendur fjármálagerninga, samþykktum félagsins, starfsreglum stjórnar og einstakra undirnefnda
stjórnar. Lögin má nálgast á vef Alþingis, www.althingi.is, en samþykktir og reglur félagsins á
www.syn.is.
Með yfirlýsingu þessari um stjórnarhætti Sýnar hf. er félagið að fylgja þeim viðurkenndu leiðbeiningum
um stjórnarhætti fyrirtækja sem gefnar eru út af Viðskiptaráði Íslands í samstarfi við Samtök
atvinnulífsins og Nasdaq Iceland (6. útgáfa leiðbeininganna frá 2. febrúar 2021), með það að markmiði
að styrkja innviði Sýnar hf. og auka gagnsæi.
Stjórn Sýnar hf. 2022
Á árinu 2022 voru bókaðir 19 formlegir stjórnarfundir, sem eru fleiri fundir en alla jafna. Skýrist það m.a.
af hluthafafundum þar sem stjórnarkjör var á dagskrá og tilheyrandi breytingu á samsetningu stjórnar,
sbr. nánar að neðan. Góð mæting stjórnarmanna var á stjórnarfundi og var stjórn ákvörðunarbær á
öllum fundum ársins. Sama gildir almennt um mætingu og ákvörðunarbærni á fundum undirnefnda
stjórnar.
Síðar á árinu var boðað til tveggja hluthafafunda þar sem stjórnarkjör var á dagskrá, sem fram fóru 31.
ágúst og 20. október. Fyrir fyrri fundinn hafði Hjörleifur Pálsson, stjórnarformaður, tilkynnt að hann
yrði ekki í framboði. Á fundinum kom Jón Skaftason inn sem nýr stjórnarmaður og Daði Kristjánsson
sem varastjórnarmaður í stað Óla Rúnars Jónssonar.
Fyrir síðari fundinn hafði Petrea I. Guðmundsdóttir, sem þá var stjórnarformaður félagsins, tilkynnt að
hún yrði ekki í framboði til stjórnar. Á fundinum urðu enn frekari breytingar á stjórn félagsins. Komu
þau Hákon Stefánsson og Rannveig Eir Einarsdóttir inn sem nýir stjórnarmenn og Jóhann Hjartarson
vék úr stjórn félagsins.
Jón Skaftason, stjórnarformaður félagsins, er fæddur árið 1983. Hann er lögfræðingur frá Háskóla
Íslands og sérhæfði sig þá í skyldum stjórnarmanna í hlutafélögum, sem hann skrifaði lokaritgerð um.
Enn fremur er Jón LL.M í Corporate Law frá University College London. Hann hefur réttindi til
málflutnings fyrir Héraðsdómi og hefur sinnt stundakennslu í félagarétti við Háskólann í Reykjavík og
kennt þar um skyldur stjórnarmanna. Milli áranna 2020 og 2022 var Jón framkvæmdastjóri Strengs
Holding ehf. Þar stýrði hann fjárfestingum Strengs í Skeljungi hf. og Kaldalóni hf.. Á árunum 2012 til
2020 var Jón framkvæmdastjóri fjárfestinga 365 hf., lengst af með aðsetur í London og vann hann m.a.
að sölu á fjölmiðla- og fjarskiptarekstri 365 miðla til Sýnar hf. (þá Fjarskipti). Jón starfaði sem
lögmaður á skrifstofu Logos Legal Services í London á árunum 2007 til 2012. Jón er fyrrverandi
stjórnarformaður Norr 11 Aps og 101 Copenhagen Apps (Danmörk), Kaldalóns (2021-2022), Sleep
Solutions Ltd (Bretland) árin 2018-2021 og Murduck London Ltd (Bretland) árin 2012-2014.
Í samræmi við meginreglu leiðbeininga um góða stjórnarhætti um að fylgja leiðbeiningum eða skýra
frá frávikum, skal tekið fram að í aðdraganda síðari hluthafafundar tók þáverandi stjórn félagsins þá
ákvörðun að tilnefningarnefnd félagsins skyldi ekki virkjuð til starfa. Er þar um frávik að ræða frá
leiðbeiningunum, en stjórnin rökstuddi ákvörðun sína með vísan til þess hve skammur tími hafði liðið
frá fyrri hluthafafundi eða einungis um sex vikur og af þeim sökum var mjög nýleg skýrsla
tilnefningarnefndar þegar fyrirliggjandi. Verður því að gera ráð fyrir að einungis hafi verið um að ræða
tímabundið frávik frá leiðbeiningunum.
Í stjórn Sýnar sitja öllu jöfnu fimm aðalmenn og tveir varamenn og eru þeir allir kosnir á aðalfundi
félagsins til eins árs í senn. Forstjóri situr stjórnarfundi, auk lögmanns félagsins sem er ritari stjórnar. Þá
er framkvæmdastjóri fjármálasviðs reglulegur þátttakandi á stjórnarfundum. Stjórn félagsins ásamt
forstjóra fer með æðsta vald í málefnum félagsins milli hluthafafunda og ber meginábyrgð á rekstri
þess. Stjórnin hefur lögbundnu hlutverki að gegna sem henni ber sjálfri að annast nema heimild sé veitt
í lögum til að framselja valdið með umboði.
Félagið er vottað fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum og fylgir leiðbeiningum um
stjórnarhætti fyrirtækja sem hægt er að nálgast á slóðinni www.leidbeiningar.is. Sýn hf. hefur einnig
fengið vottað og staðfest að stjórnkerfi fyrirtækisins fyrir upplýsingaöryggi samræmist alþjóðlega
upplýsingaöryggisstaðlinum ISO 27001, og íslenska jafnlaunastaðlinum ÍST 85. Þá hefur fyrirtækið
fengið Hvatningarverðlaun jafnréttismála.
Stjórnarháttayfirlýsing
Lög og reglur
Á aðalfundi 18. mars 2022 var kosið í aðal- og varastjórn félagsins. Á aðalfundi voru þau: Hjörleifur
Pálsson, Jóhann Hjartarson, Páll Gíslason, Petrea Ingileif Guðmundsdóttir og Sesselía Birgisdóttir kjörin
í stjórn félagsins. Óli Rúnar Jónsson og Salóme Guðmundsdóttir voru kjörin varamenn.
Við árslok 2022 var stjórn Sýnar hf. skipuð eftirfarandi aðilum:
Samstæðureikningur Sýnar hf. 2022 48
þess að skipulag félagsins og starfsemi sé jafnan í góðu horfi, t.d. hvað varðar reikningsskil,
innra eftirlit og fjárhagsáætlanir.
Sesselía Birgisdóttir er fædd árið 1976. Hún lauk M.Sc. námi í stjórnun mannauðs, með áherslu á
þekkingar og breytingarstjórnun frá Lundar háskóla í Svíþjóð og M.Sc. námi í alþjóðlegri markaðsfræði
og vörumerkjastjórnun frá Lundar háskóla í Svíþjóð. Sesselía tók við sem framkvæmdastjóri sölu-,
markaðs og þjónustu Vodafone 1. febrúar 2023. Hún starfaði áður forstöðumaður nýsköpunar og
markaðsmála hjá Högum árin 2021-2023. Þar á undan starfaði Sesselía sem framkvæmdastjóri
þjónustu-, sölu- og markaðssviðs hjá Íslandspósti. Á árunum 2016 til 2019 starfaði hún sem sem
forstöðumaður stafrænna miðla og markaðsmála hjá Advania. Hún er aðalmaður í stjórn AGR
Dynamics frá árinu 2021. Sesselía á 50.000 hluti í félaginu.
stefnu.
Allir stjórnarmenn félagsins teljast vera óháðir félaginu, viðskiptaaðilum, og samkeppnisaðilum. Þau
Jón Skaftason, Rannveig Eir Einarsdóttir og Hákon Stefánsson teljast háð stórum hluthöfum félagsins í
skilningi leiðbeininga um góða stjórnarhætti. 
Helsta hlutverk stjórnar:
Meginhlutverk stjórnar Sýnar hf. er að marka félaginu stefnu og hafa eftirlit með framkvæmd hennar.
Kjarni stefnunnar er að hagsmunir viðskiptavina, eigenda og starfsmanna séu hafðir að leiðarljósi.
Áhersla er lögð á traustan og arðbæran rekstur og að rekstraráhætta sé lágmörkuð.
Rannveig Eir Einarsdóttir, er varaformaður stjórnar, fædd árið 1965. Hún er með MBA gráðu frá
Háskóla Íslands. Rannveig er forstjóri Reir Verk ehf., þróunar- og byggingarfélags. Frá árinu 2016 hefur
Rannveig starfað á sviði fasteignaþróunar og byggingarstarfsemi, sem forstjóri og meðeigandi að Reir
Verk ehf. Hún tók þátt í byggingu og stofnun Sandhótels við Laugaveg sem nú er rekið af KEA hotels.
Rannveig var stjórnarmaður í félaginu Heimavöllum hf. árin 2019 og 2020. Áður starfaði hún sem
stjórnandi hjá Icelandair frá árinu 2000 til ársins 2016 á sviði mannauðsmála og sem forstöðumaður
flugþjónustudeildar Icelandair. Undanfarin fimm ár, eða frá árinu 2017, hefur Rannveig verið í stjórn
Ölgerðarinnar og er enn stjórnarmaður í því félagi. Rannveig fer með 20.650.000 hluti í Sýn hf.
gegnum Fasta ehf.
Við árslok 2022 var stjórn Sýnar hf. skipuð eftirfarandi aðilum, frh.:
Hákon Stefánsson er fæddur árið 1972. Hann lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands 1998 og
er með réttindi til málflutnings fyrir Landsrétti. Hann hefur frá árinu 2019 starfað sem forstjóri
InfoCapital ehf. Áður var hann meðeigandi Lögmanna Mörkinni 2018-2019. Þá gegndi hann ýmsum
störfum á árunum 2006-2018 fyrir Creditinfo Group, svo sem starfi framkvæmdastjóra á Íslandi,
framkvæmdastjóra lögfræðisviðs og alþjóðamarkaða, sem og starfi aðstoðarforstjóra. Hann átti sæti í
framkvæmdastjórn Intrum Justitia á árunum 2002-2006, var bæjarlögmaður á Akureyri 2000-2002
og starfaði sem löglærður fulltrúi á Lögfræðistofu Reykjavíkur 1998-2000. Hákon situr og hefur setið í
stjórnum fjölmargra innlendra og erlenda fyrirtækja auk þess að sitja í stjórnum opinberra stofnana og
fyrirtækja. Félög tengd Hákoni, þ.e. InfoCapital ehf. og Gavia Invest ehf., fara með 51.397.128 hluti í Sýn
hf.
Páll Gíslason er fæddur árið 1976. Hann er rafmagns- og tölvuverkfræðingur sem hefur á rúmlega
tuttugu ára ferli starfað við nýsköpun á ýmsum sviðum tækni og vísinda. Páll tók nýverið við stöðu sem
Head of Trading hjá Jiko Group, sem er bandarískur fintec banki, en hann hefur undanfarin 15 ár starfað
við hátíðniviðskipti (High Frequency Trading, HFT) í kauphöllum víða um heim. Páll var meðstofnandi
og forstjóri World Financial Desk LLC (WFD), sem var stofnað í Los Angeles 2007 en flutti til New
York  2010. Félagið var með stærri viðskiptavökum á rafrænum mörkuðum með bandarísk
ríkisskuldabréf og vaxtaafleiður, og átti einnig mikil viðskipti í kauphöllum í Bretlandi, Ástralíu og
Þýskalandi. Áður en Páll snéri sér að fjármálamörkuðum hafði hann starfað fyrir þrjú sprotafyrirtæki.
Páll á ekki eignarhlut í félaginu.
Stjórnarháttayfirlýsing frh.
Varamenn stjórnar
Varamenn stjórnar eru þau Daði Kristjánsson og Salóme Guðmundsdóttir.
Jón var meðstjórnandi hjá Torgi ehf. útgáfufélagi Fréttablaðsins árin 2018-2019. Jón er stjórnarmaður
í Gavia Invest ehf., eins stærsta hluthafa Sýnar hf., og Pordoi ehf., sem heldur utan um eignarhlut hans í
Gavia. Félag tengt Jóni, Gavia Invest ehf., fer með samtals 42.147.128 hluti í Sýn hf.
Samstæðureikningur Sýnar hf. 2022 49
Árangursmat stjórnar
1.
2.
3.
Frammistaða stjórnarformanns og forstjóra.
4.
Undirnefndir stjórnar.
5. Þróun félagsins.
Undirnefndir stjórnar
1.
2.
3.
4.
5.
Stjórnarháttayfirlýsing frh.
Endurskoðunarnefnd yfirfer einnig stjórnarháttayfirlýsingu félagsins ár hvert. Endurskoðunarnefnd skal
skila skýrslu um störf sín til stjórnar árlega.
Í endurskoðunarnefnd Sýnar hf. sitja allt að þrír nefndarmenn skipaðir af stjórn félagsins til eins árs í
senn. Nefndin hefur sett sér starfsreglur sem yfirfarnar eru og bornar upp til staðfestingar í stjórn
árlega, síðast voru reglurnar staðfestar af stjórn 11. maí 2022. Nefndin skal m.a. hafa eftirfarandi
hlutverk án tillits til ábyrgðar stjórnar, stjórnenda eða annarra á þessu sviði:
Stjórn félagsins framkvæmdi formlegt árangursmat þann 16. febrúar 2022. Helstu þættir sem lagt var
mat á voru:
Störf stjórnar, verklag og starfshættir.
Virkni stjórnar.
Núgildandi starfsreglur stjórnar voru samþykktar af stjórn þann 1. apríl 2022. Starfsreglur stjórnar eru
aðgengilegar á vefsíðu félagsins, https://syn.is/fyrirtaekid/stjorn. Starfsreglurnar samræmast
leiðbeiningum um góða stjórnarhætti, að því undanskildu að í næstu útgáfu reglnanna verður skýrara
ákvæði um heimildir stjórnar til að leita óháðrar sérfræðiaðstoðar. Þá verður í næstu útgáfu
starfsreglnanna gert skýrara að tilnefningarnefnd heyri undir hluthafafund en telst ekki vera undirnefnd
stjórnar.
Við árslok 2022 voru í endurskoðunarnefnd Sýnar hf. Erik Ingvar Bjarnason, formaður, Páll Gíslason og
Jón Skaftason. Nefndin fundaði reglubundið á árinu í tengslum við árs- og árshlutareikninga. Allir
nefndarmenn eru óháðir endurskoðendum Sýnar hf. og daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum.
Jón Skaftason telst háður stórum hluthöfum í skilningi leiðbeininga um góða stjórnarhætti.
Í starfskjaranefnd Sýnar hf. sitja allt að þrír nefndarmenn og eru skipaðir af stjórn félagsins til eins árs í
senn. Starfskjaranefnd hefur sett sér starfsreglur og voru þær staðfestar óbreyttar á stjórnarfundi
félagsins 1. apríl 2022. Starfskjaranefnd útbýr starfskjarastefnu Sýnar hf. Hlutverk nefndarinnar er að
öðru leyti m.a. að undirbúa tillögur til stjórnar varðandi laun og aðrar greiðslur til forstjóra og annarra
æðstu stjórnenda og lykilstjórnenda félagsins, svo og stjórnarmanna þess. Nefndinni er ætlað að
tryggja að laun og önnur starfskjör séu í samræmi við lög, reglur og bestu framkvæmd hverju sinni. Þá
er henni ætlað að taka sjálfstæða afstöðu til áhrifa launa á áhættutöku og áhættustýringu félagsins í
samráði við endurskoðunarnefnd félagsins.
Við árslok 2022 var starfskjaranefnd Sýnar hf. skipuð þeim Hákoni Stefánssyni og Sesselíu Birgisdóttur.
Starfskjaranefnd félagsins leggur áherslu á að gagnsæi ríki um starfskjör hjá félaginu gagnvart
hluthöfum þess og hefur fylgst með óskum hluthafa um aukið gagnsæi og unnið í því að bæta
upplýsingar bæði í ársreikningi og í skýrslu starfskjaranefndar. Starfskjaranefnd fundaði með
óreglubundnum hætti á árinu 2022. Sesselía telst óháð félaginu og stjórum hluthöfum en Hákon telst
háður stórum hluthöfum í skilningi leiðbeininga um góða stjórnarhætti.
Tilnefningarnefnd Sýnar hf. hefur sett sér starfsreglur sem voru síðast staðfestar á fundi stjórnar Sýnar
hf. 1. apríl 2022. Þar er kveðið á um að stjórn Sýnar hf. skuli tilnefna einn nefndarmann en hina tvo
nefndarmennina skuli hluthafafundur Sýnar hf. kjósa ef stjórnarkjör er á dagskrá. Á aðalfundi félagsins
19. mars 2022 fór fram kjör tveggja nefndarmanna í samræmi við starfsreglurnar, en leiðbeiningar um
stjórnarhætti fyrirtækja sem gefnar eru út af Viðskiptaráði Íslands í samstarfi við Samtök atvinnulífsins
og Nasdaq Iceland, geyma tilmæli um starfsemi tilnefningarnefnda.
Eftirlit með vinnuferli við gerð reikningsskila
Eftirlit með fyrirkomulagi og virkni innra eftirlits félagsins, áhættustýringu og annarra
eftirlitsaðgerða er varðar fjármál ásamt því að fylgja eftir úrbótum vegna annmarka sem fram
koma.
Hafa eftirlit með og yfirfara endurskoðun ársreikninga, samstæðureikninga og annarra
fjárhagsupplýsinga félagsins.
Mat á óhæði ytri endurskoðenda og eftirlit með öðrum störfum ytri endurskoðenda.
Setja fram tillögu til stjórnar um val á ytri endurskoðendum.
Starfsreglur stjórnar
Samstæðureikningur Sýnar hf. 2022 50
Samfélagsleg ábyrgð og siðferðisleg viðmið
Reikningsár Sýnar hf. er almanaksárið. Ársreikningar félagsins fyrir árin 2012 til 2022 sem og
árshlutareikningar 2012 til 2022 eru aðgengilegir á vefsíðu félagsins.
Stjórnarháttayfirlýsing frh.
Undirnefndir stjórnar frh.
Tilnefningarnefnd er ætlað að auka líkur á því að stjórn félagsins endurspegli fjölbreytni og breidd í
hæfni, reynslu og þekkingu stjórnarmanna félagsins sem og að tryggja aukið gagnsæi í málefnum
varðandi tilnefningu stjórnarmanna.
Við árslok 2022 var tilnefningarnefnd Sýnar hf. skipuð Þresti Olaf Sigurjónssyni, formanni nefndarinnar,
Guðríði Sigurðardóttir og Rannveigu Eir Einarsdóttur, en sú síðast nefnda telst háð stórum hluthöfum í
skilningi leiðbeininga um góða stjórnarhætti. Tilnefningarnefnd hélt fjölda funda á starfsárinu, einkum
með hluthöfum en jafnframt með stjórnendum félagsins.
Starfsreglur undirnefnda eru aðgengilegar á vefsíðu félagsins, www.syn.is. Jafnframt er að finna
upplýsingar um skipan og hlutverk undirnefnda á vefsíðu félagsins.
Forstjóri Sýnar hf.
Forstjóraskipti urðu á árinu en Heiðar Guðjónsson sagði starfi sínu lausu af persónulegum ástæðum
þann 25. júlí 2022. Heiðar sinnti starfskyldum sínum á samningsbundnum uppsagnarfresti þar til Yngvi
Halldórsson var ráðinn í hans stað þann 27. september 2022.
Sýn hf. sýnir samfélagslega ábyrgð í verki með því að sinna hlutverki sínu sem fjarskipta- og
fjölmiðlafyrirtæki af fagmennsku og ábyrgð. Það er stefna Sýnar hf. að hafa jákvæð áhrif á umhverfið
og samfélagið í heild með því að vinna að stöðugum umbótum í rekstri félagsins. Þannig viljum við
stuðla að framþróun fyrirtækisins og lágmarka sóun sem fellur til í starfseminni.
Meginstoðir samfélagsábyrgðar félagsins eru þrjár: Hlítni, sjálfbærni og sameiginlegt virði. Undir hlítni
falla lög, reglur, staðlar og vottanir, undir sjálfbærni falla mannauður, umhverfi og efnahagur og undir
sameiginlegt virði falla nýsköpun, öryggi og innviðir og samskipti og fræðsla.
Sýn hf. hefur sett skýr markmið í umhverfis- og loftslagsmálum sem eru til þess fallin að draga úr
mengun og hafa þannig jákvæð áhrif á vistspor félagsins.
Sýn hf. hefur sett sér stefnu á sviði sjálfbærni og er áhersla lögð á að auka verðmætasköpun innan sem
utan félagsins og draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum starfseminnar. Stjórn og stjórnendur leggja
höfuðáherslu á að hún sé í samræmi við alþjóðamælikvarða á sviði sjálfbærniupplýsingagjafar og
meginmarkmið félagsins til framtíðar. Félagið styður við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um
sjálfbæra þróun og hefur hafið innleiðingu á sjálfbærnistaðlinum Global Reporting Initiative (GRI) þar
sem horft er til hagsmuna lykil haghafa. Stjórn og stjórnendur bera ábyrgð á innleiðingu
sjálfbærnistaðalsins og skuldbindur félagið sig að miðla upplýsingum um starfsemina og starfshætti
eftir meginviðmiðum GRI sjálfbærnistaðalsins og gefur út árlega sameiginlega árs- og
sjálfbærniskýrslu.
Yngvi Halldórsson er fæddur árið 1977. Hann er með B.S. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.
Yngvi starfaði áður sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Sýnar frá 2019-2022. Hann sat auk þess í
stjórn félagsins árin 2014-2019. Fyrst í varastjórn til 2017 þegar hann tók sæti í aðalstjórn. Í ársbyrjun
2018 varð Yngvi meðeigandi í fjárfestingarfélaginu Alfa Framtak ehf. sem rekur m.a. framtakssjóðinn
Umbreytingu. Hann starfaði hjá Össur hf. frá árinu 2008 til 2018 og gegndi þar ýmsum störfum, síðast
sem CIO og VP of Global Business Services. Árin 2006 til 2008 var Yngvi sjóðsstjóri erlendra
hlutabréfasjóða hjá Landsvaka ehf. Á árunum 2000 til 2005 starfaði Yngvi sem ERP ráðgjafi í
Dynamics Nav hjá Maritech ehf. Yngvi á 334.000 hluti í félaginu, ýmist með beinum hætti eða í
gegnum Transitus ehf.
Forstjóri og framkvæmdastjórar mynda framkvæmdastjórn félagsins og ber hún ábyrgð á daglegum
rekstri þess og fylgni við rekstraráætlanir. Framkvæmdastjórn hittist einu sinni í viku og oftar ef þurfa
þykir. Við árslok 2022 voru framkvæmdastjórar þessir, auk forstjóra félagsins:  
Kristín Friðgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Fjármála og stefnumótunar, Þórhallur Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Fjölmiðla, Páll Ásgrímsson, framkvæmdastjóri Lögfræðisviðs, sem jafnframt ritar
fundargerðir framkvæmdastjórnar, Alda Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs. Yngvi
Halldórsson forstjóri sinnti stöðu framkvæmdastjóra Nýsköpunar og rekstrar þar til Hulda
Hallgrímsdóttir tók við stöðunni í ársbyrjun 2023.
Framkvæmdastjórn Sýnar hf. 2022
Ársreikningar félagsins
Samstæðureikningur Sýnar hf. 2022 51
Samfélagsleg ábyrgð og siðferðisleg viðmið frh.
Fyrirtækið fylgir í hvívetna lögum og reglum og einsetur sér að sýna starfsfólki og viðskiptavinum
virðingu í öllum samskiptum. Félagið stuðlar að opnum og gagnsæjum samskiptum við alla
hagsmunaaðila og stendur vörð um þær trúnaðarupplýsingar sem falla til í starfseminni.
Sýn hf. tekur virkan þátt í margvíslegum samfélagsmálum með stuðningi af ýmsum toga. Fjöldi aðila
leitar til félagsins eftir stuðningi eða samstarfi ár hvert og eru ákvarðanir um styrki og samstarf teknar
út frá stefnu fyrirtækisins í styrktarmálum.
Siðferðissjónarmið eru kjarninn í starfsemi félagsins og eru höfð í huga við allar ákvarðanir. Félagið
hefur sett sér siðareglur og voru þær gefnar út í október 2012 og síðast uppfærðar í febrúar 2022.
Siðareglurnar eru birtar á vefsvæði félagsins, syn.is. Þar er m.a. að finna ákvæði sem sporna eiga við
spillingar- og mútumálum. Félagið stuðlar að opnum og gagnsæjum samskiptum við alla
hagsmunaaðila og stendur vörð um þær trúnaðarupplýsingar sem falla til í starfseminni.
Þá hefur félagið sett sér reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði fréttastofu, Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar,
auk þess sem miðlar félagsins starfa á grundvelli útgefinnar ritstjórnarstefnu.
Stjórnarháttayfirlýsing frh.
Sýn hf. skrifaði undir loftslagsyfirlýsingu FESTU og Reykjavíkurborgar um markmið í loftslagsmálum í
lok árs 2015 og hefur einsett sér að efla vistvænar samgöngur, draga úr myndun úrgangs og stuðla að
betri orkunýtingu fram til ársins 2030. Þá hefur félagið sett sér samgöngustefnu en markmið hennar er
að auðvelda starfsfólki að ferðast til og frá vinnu á hagkvæman og vistvænan máta, en jafnframt að
hvetja starfsfólk til að nota sjálfbæran ferðamáta við leik og störf.
Einblínt er á jafnvægi milli vinnu og einkalífs sem og öryggi og heilsu starfsmanna. Sýn hf. gætir
jafnréttis starfsmanna á öllum sviðum. Í jafnréttisstefnu félagsins kemur fram að leitast er við að gæta
fyllsta jafnréttis kynjanna og þess er gætt að starfsmönnum sé ekki mismunað. Lögð er áhersla á að
allir starfsmenn séu metnir að eigin verðleikum og umburðarlyndi sé ríkjandi þáttur í samskiptum.
Stuðlað er að fjölbreytileika í starfsmannahópi til að endurspegla stóran viðskiptavinahóp félagsins,
með það að markmiði að nýta sem best hæfileika hvers og eins. Sýn hf. hefur einnig sett sér
jafnréttisáætlun, sem tekur til áranna 2021-2023 og felur í sér tímasetta aðgerðaráætlun.
Sýn hlaut í ágúst 2019 formlega jafnlaunavottun á allt félagið en úttektin var framkvæmd af BSI á
Íslandi. Með vottuninni staðfestist að hjá Sýn er starfrækt jafnlaunakerfi sem stenst kröfur
jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012. Markmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun
innan fyrirtækja og styðja við jafnrétti kynjanna á vinnustaðnum. Með innleiðingu jafnlaunastaðalsins
hefur Sýn komið sér upp stjórnkerfi sem styður við faglegar launaákvarðanir, byggðar á málefnalegum
sjónarmiðum sem fela ekki í sér kynbundna mismunun. Jafnlaunaúttektin var síðan endurtekin á
árunum 2020 og 2021. Félagið hefur sett sér jafnréttisáætlun og tekur hún meðal annars til
mannréttinda samkvæmt þeim þáttum sem tilgreindir eru í lögum og stjórnarskrá.
Sýn hlaut í lok árs 2018 formlega vinnuverndarvottun samkvæmt alþjóðlega staðlinum ISO 45001 og
var á þeim tíma fyrst íslenskra fyrirtækja til að nota staðalinn til að votta stjórnskipulag vinnuverndar.
Tilgangurinn með vottuninni var að tryggja að ferlar og skipulag vinnuverndar styðji við markmið
Sýnar um öryggi, heilbrigði og vinnuumhverfi á vinnustaðnum.
Ítarlegri upplýsingar, markmið og áreiðanleikaferli vegna ófjárhagslegra upplýsinga er að finna í árs- og
sjálfbærniskýrslu Sýnar hf. 2023 vegna ársins 2022 sem birt er á vef félagsins
https://arsskyrsla2022.syn.is/
Upplýsingar um brot á reglum sem viðeigandi eftirlits- og/eða úrskurðaraðili hefur ákvarðað að
viðlögðum sektum
Félagið hlaut ekki dóm fyrir brot á reglum eða stjórnvaldssekt á árinu af hálfu dómstóla eða þar til
bærra eftirlitsaðila, að frátaldri ákvörðun fjölmiðlanefndar nr. 5/2022, en þar var lögð á 1.000.000 kr.
stjórnvaldssekt vegna viðskiptaboða í hlaðvarpinu Þungavigtin.
Samstæðureikningur Sýnar hf. 2022 52
Helstu þættir innra eftirlits og áhættustýring félagsins
Reglulegur hluti af starfsemi félagsins er að hafa eftirlit með helstu þáttum í rekstri fyrirtækisins og
tryggja þannig samfellu í rekstri og lágmörkun áhættu. Áhættustýring er samofin ábyrgð við daglegan
rekstur félagsins. Uppbygging fjarskiptakerfis tekur mið af þeirri áhættu sem felst í rekstri slíkra kerfa
og er sú áhætta lágmörkuð með viðeigandi ráðstöfunum, skilgreindri viðbragðsáætlun og varaleiðum.
Víðtækar úttektir eru gerðar á helstu þáttum í rekstri félagsins, t.d. á ytra og innra öryggi kerfa, getu
gagnaflutningsneta, upplýsingaöryggi, viðkvæmum ferlum sem og fjármálaferlum félagsins.
Framkvæmdastjórn ber ábyrgð á stefnumótun áhættustýringar en felur gæða- og öryggisráði að sjá
um framkvæmd stefnunnar, vöktun og eftirlit með breytingum á áhættuumhverfinu. Úttektir með
öryggismálum, hlítni við lög, meðferð trúnaðarupplýsinga, upplýsingaöryggi og raunlægu öryggi eru í
höndum gæða- og öryggisdeildar, sem upplýsir ráðið um niðurstöður úttekta. Skilgreindar hafa verið
boðleiðir til að tilkynna öll frávik og ábendingar frá starfsfólki er varða öryggisbrot, öryggisrof eða það
sem betur má fara. Í gæða- og öryggisráði situr öryggisstjóri, forstjóri og framkvæmdastjórar. Nefndin
fundar að jafnaði ársfjórðungslega.
Félagið er hlutafélag og upplýsingar um helstu eigendur þess er að finna á vefsíðu félagsins,
www.syn.is. Sýn hf. hefur sett sér upplýsingastefnu, sem sækir stoð í reglum fyrir útgefendur
fjármálagerninga á aðalmarkaði Nasdaq OMX Iceland, og var hún samþykkt af stjórn Sýnar hf. þann 18.
febrúar 2015. Félagið birtir reglulega á vefsíðu sinni fréttir af starfsemi félagsins sem ekki falla undir
upplýsingaskyldu þess og sendir eftir atvikum fréttatilkynningar þess efnis til fjölmiðla. Hluthafar sem
vilja beina fyrirspurnum til stjórnar eða gera grein fyrir viðhorfum sínum tengdum rekstri geta sent
tölvupóst á stjorn@syn.is eða beint fyrirspurnum til stjórnarformanns. Skal stjórnarformaður í slíkum
tilvikum annast samskipti við hluthafa f.h. stjórnar og upplýsa stjórn um slík samskipti.
Endurskoðunarnefnd fór yfir yfirlýsinguna og er hún kynnt í drögum á fundi í stjórn Sýnar hf. 25. janúar
2023 og staðfest á stjórnarfundi 15. febrúar 2023.
Stjórnarháttayfirlýsing frh.
Stjórn fer a.m.k. einu sinni á starfsári yfir helstu þætti innra eftirlits og áhættustýringar félagsins og
skilgreinir þá áhættuþætti sem félagið þarf að takast á við. Stjórn sér einnig til þess að til staðar sé
fullnægjandi kerfi innra eftirlits, sem er formlegt og skjalfest.
Hluthafar félagsins og samskipti
Samstæðureikningur Sýnar hf. 2022 53
635400KNUVGJX3I1S5182022-01-012022-12-31635400KNUVGJX3I1S5182021-01-012021-12-31635400KNUVGJX3I1S5182022-12-31635400KNUVGJX3I1S5182021-12-31635400KNUVGJX3I1S5182020-12-31ifrs-full:IssuedCapitalMemberifrs-full:PreviouslyStatedMember635400KNUVGJX3I1S5182021-01-012021-12-31ifrs-full:IssuedCapitalMember635400KNUVGJX3I1S5182021-12-31ifrs-full:IssuedCapitalMember635400KNUVGJX3I1S5182020-12-31ifrs-full:StatutoryReserveMemberifrs-full:PreviouslyStatedMember635400KNUVGJX3I1S5182021-01-012021-12-31ifrs-full:StatutoryReserveMember635400KNUVGJX3I1S5182021-12-31ifrs-full:StatutoryReserveMember635400KNUVGJX3I1S5182020-12-31ifrs-full:ReserveOfExchangeDifferencesOnTranslationMemberifrs-full:PreviouslyStatedMember635400KNUVGJX3I1S5182021-01-012021-12-31ifrs-full:ReserveOfExchangeDifferencesOnTranslationMember635400KNUVGJX3I1S5182021-12-31ifrs-full:ReserveOfExchangeDifferencesOnTranslationMember635400KNUVGJX3I1S5182020-12-31ifrs-full:MiscellaneousOtherReservesMemberifrs-full:PreviouslyStatedMember635400KNUVGJX3I1S5182021-01-012021-12-31ifrs-full:MiscellaneousOtherReservesMember635400KNUVGJX3I1S5182021-12-31ifrs-full:MiscellaneousOtherReservesMember635400KNUVGJX3I1S5182020-12-31ifrs-full:RetainedEarningsMemberifrs-full:PreviouslyStatedMember635400KNUVGJX3I1S5182021-01-012021-12-31ifrs-full:RetainedEarningsMember635400KNUVGJX3I1S5182021-12-31ifrs-full:RetainedEarningsMember635400KNUVGJX3I1S5182020-12-31ifrs-full:PreviouslyStatedMember635400KNUVGJX3I1S5182022-01-012022-12-31ifrs-full:IssuedCapitalMember635400KNUVGJX3I1S5182022-12-31ifrs-full:IssuedCapitalMember635400KNUVGJX3I1S5182022-01-012022-12-31ifrs-full:StatutoryReserveMember635400KNUVGJX3I1S5182022-12-31ifrs-full:StatutoryReserveMember635400KNUVGJX3I1S5182022-01-012022-12-31ifrs-full:ReserveOfExchangeDifferencesOnTranslationMember635400KNUVGJX3I1S5182022-12-31ifrs-full:ReserveOfExchangeDifferencesOnTranslationMember635400KNUVGJX3I1S5182022-01-012022-12-31ifrs-full:MiscellaneousOtherReservesMember635400KNUVGJX3I1S5182022-12-31ifrs-full:MiscellaneousOtherReservesMember635400KNUVGJX3I1S5182022-01-012022-12-31ifrs-full:RetainedEarningsMember635400KNUVGJX3I1S5182022-12-31ifrs-full:RetainedEarningsMember635400KNUVGJX3I1S5182020-12-31iso4217:ISKiso4217:ISKxbrli:shares