
Stjórnarháttayfirlýsing (óendurskoðað)
Einar Sigurðsson, stjórnarformaður.
Steinunn H. Marteinsdóttir, varaformaður stjórnar.
Guðbjörg Matthíasdóttir, stjórnarmaður.
Gunnar Sigvaldason, stjórnarmaður.
Skipuð hefur verið starfskjaranefnd. Hlutverk nefndarinnar er að vera leiðbeinandi fyrir stjórn um starfskjör
stjórnarmanna og stjórnenda félagsins og ráðgefandi um starfskjarastefnu, sem tekin er til endurskoðunar ár
hvert og lögð fyrir aðalfund félagsins. Skal nefndin jafnframt fylgjast með að starfskjör æðstu stjórnenda séu
innan ramma starfskjarastefnu félagsins og gefa stjórn skýrslu þar um árlega í tengslum við aðalfund. Stjórn
félagsins skal skipa þrjá aðila til setu í starfskjaranefnd og skulu þeir vera óháðir félaginu. Í starfskjaranefnd má
hvorki forstjóri né annar starfsmaður eiga sæti. Stjórn hefur sett starfskjaranefnd starfsreglur í samræmi við efni
starfskjarastefnu félagsins. Í starfskjaranefnd sitja Guðbjörg Matthíasdóttir stjórnarmaður, Steinunn Marteinsdóttir
stjórnarmaður og Gunnar Sigvaldason, stjórnarmaður, sem er formaður nefndarinnar.
Einar er fæddur árið 1977 í Reykjavík. Einar tók sæti í stjórn félagsins árið 2013. Einar hefur lokið BA prófi í
stjórnmálafræði frá Háskóla Ísland og MBA námi. Einar starfar fyrir Kristinn ehf. og tengd félög. Einar er
stjórnarformaður Korputorgs ehf. og Myllunnar-Ora ehf. Einar á engan beinan hlut í félaginu sjálfur, en á 22,12%
eignarhlut í Fram ehf. sem er eini hluthafi ÍV fjárfestingafélags ehf., sem á 49,13% í félaginu. Einar er jafnframt
þriðjungseigandi í MKE ehf. sem á um 0,26% af hlutafé í Ísfélaginu. Byggt á leiðbeiningum um stjórnarhætti telst
Einar háður félaginu og daglegum stjórnendum þess og stórum hluthafa.
Guðbjörg er fædd árið 1952 í Reykjavík. Guðbjörg hefur setið í stjórn félagsins frá árinu 2001. Hún lauk prófi frá
Kennaraháskólanum árið 1976. Guðbjörg situr í stjórn Fastus ehf. og ÓJ&K-Ísam ehf. Guðbjörg á beint 43.623
hluti í félaginu og á 11,29% eignarhlut í fjölskyldufyrirtækinu Fram ehf. sem er eini hluthafi ÍV fjárfestingafélags
ehf., sem á um 49,13% af skráðu hlutafé þess. Byggt á leiðbeiningum um stjórnarhætti er Guðbjörg óháð
félaginu og daglegum stjórnendum þess, en telst háð stórum hluthafa.
Gunnar Sigvaldason er fæddur 1938. Hann er með verslunarpróf frá Verzlunarskóla Íslands. Hann var
framkvæmdastjóri Valbergs ehf. frá árinu 1961 til 2000 og framkvæmdastjóri Sæbergs hf. frá 1974 til 1997.
Gunnar var stjórnarformaður Ramma hf. frá árinu 2009 og var framkvæmdastjóri félagsins frá 1997 til 2009. Hann
situr í stjórn Sölku fiskmiðlunar hf. og, Atlas hf. Gunnar hefur engin hagsmunatengsl hvorki við helstu
viðskiptaaðila né samkeppnisaðila félagsins. Gunnar er eigandi 51.827.700 hluta í félaginu eða sem nemur
6,28%. Byggt á leiðbeiningum um stjórnarhætti telst Gunnar óháður félaginu, daglegum stjórnendum þess sem
Steinunn H. Marteinsdóttir, stjórnarmaður, er fædd 1966. Hún er hárgreiðslumeistari að mennt og með
diplomanám í ferðamálafræði. Steinunn starfar nú hjá Premium ehf. lífeyrisþjónustu eða frá árinu 2012. Hún vann
við hárgreiðslustörf frá árunum 1990 til 2002 þar sem hún átti og rak um tíma hárgreiðslustofu. Á árunum 2004 til
2012 vann hún hjá Sparisjóðnum Afl/Arion banka. Steinunn situr í stjórn Þjóðlagaseturs séra Bjarna
Þorsteinssonar. Steinunn á engan hlut í félaginu en aðilar sem Steinunn tengist fjölskylduböndum eiga
93.494.071 hluti í útgefanda, eða sem nemur 11,42%, í gegnum Martein Haraldsson ehf. Byggt á leiðbeiningum
um stjórnarhætti telst Steinunn háð félaginu, daglegum stjórnendum þess sem og háð stórum hluthöfum.
Endurskoðunarnefnd er starfandi og henni settar starfsreglur. Nefndin skal meðal annars hafa eftirlit með gerð
reikningsskila, eftirlit með fyrirkomulagi og virkni innra eftirlits og áhættustýringar auk þess að hafa eftirlit með
endurskoðun ársreiknings. Endurskoðunarnefndin gefur stjórn álit sitt á reikningsskilunum áður en þau eru lögð
fram til samþykktar stjórnar. Þá skal endurskoðunarnefnd setja fram tillögur til stjórnar um val á ytri
endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki. Hún skal einnig meta óhæði endurskoðanda eða
endurskoðunarfyrirtækis og hafa eftirlit með öðrum störfum ytri endurskoðenda. Í nefndinni sitja Einar
Sigurðsson, stjórnarformaður, Gunnar Svavarsson, ráðgjafi og Lárus Finnbogason, endurskoðandi, sem er
Ársreikningur Ísfélags hf. 2025
39