
1. Grundvöllur reikningsskila
2. Mat og ákvarðani
Nýjir og breyttir staðlar sem hafa ekki tekið gildi
Samstæðuársreikningur
Ársreikningurinn nær til Ölgerðarinnar og dótturfélaga þess Danól ehf., kt 530802-2640 með lögheimili að Fosshálsi 17-25,
110 Reykjavík, G7-11 Fasteignafélag ehf., kt. 490911-2510 með aðsetur að Grjóthálsi 7-11, 110 Reykjavík, Iceland Spring
ehf. með aðsetur að Grjóthálsi 7-11, 110 Reykjavík, Collab ehf. með aðsetur að Grjóthálsi 7-11, 110 Reykjavík, Collab DK
ApS með aðsetur að Rådmandsgade 45, 2200 Kaupmannahöfn og KK6 fasteignafélag ehf. með aðsetur að
Köllunarklettsvegi 6, 104 Reykjavík. Í lok tímabilsins átti félagið 100% eignarhlut í öllum dótturfélögum nema í Iceland Spring
ehf. þar sem félagið á 51% hlut.
Dótturfélögunum Agla Gosgerð ehf., Borg Brugghús ehf., Sól ehf. og Kveldúlfur Distillery ehf. sem félagið á 100% er haldið
utan samstæðu þar sem þau samanlagt hafa óverulega þýðingu fyrir rekstur og efnahag samstæðunnar vegna smæðar þeirra.
Félögin eru færð á kostnaðarverði.
Dótturfélögin Collab ehf. og Collab DK ApS sem stofnuð voru á árinu 2023 eru á yfirstandandi fjárhagsári í fyrsta skipti hluti af
samstæðureikningsskilum Ölgerðarinnar, en þeim hefur á fyrri reikningsskilatímabilum verið haldið utan samstæðu þar sem
þau hafa haft óverulega þýðingu fyrir rekstur og efnahag samstæðunnar. Leiðrétting á eigin fé að fjárhæð 27,1 milljón króna
endurspeglar neikvætt eigið fé Collab samstæðunnar 1. mars 2024. Leiðrétting á eigin fé á samanburðartímabili er vegna
endurgreiðslu frá tollstjóra á álagi á endurákvarðaða tolla að fjárhæð 81 milljón króna.
Skýringar
Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf. (hér eftir Ölgerðin eða félagið) er hlutafélag og er megin starfsemi samstæðunnar fólgin í
framleiðslu, sölu og markaðssetningu á sviði matvæla, drykkjarvara og tengdra vara. Ölgerðin er með heimilisfesti á Íslandi.
Skráð aðsetur samstæðunnar er að Grjóthálsi 7-11, 110 Reykjavík.
Mikilvægar reikningsskilaaðferðir
Við
gerð samstæðuársreiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla þurfa stjórnendur að taka
ákvarðanir, meta og gefa sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaaðferða og birtar
fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að vera frábrugðnar þessu mati.
Upplýsingar um mikilvægar ákvarðanir þar sem reikningsskilaaðferðir hafa mest áhrif á skráðar
fjárhæðir eignar og skulda í ársreikningnum er að finna í eftirfarandi skýringum:
- Skýring 8, mat á nýtingartíma varanlegra rekstrarfjármuna og mat á endurheimtanlegum fjárhæðum
varanlegra rekstrarfjármuna með ótakmarkaðan líftíma.
- Skýring 9, mat á endurheimtanlegum fjárhæðum óefnislegra eigna með ótakmarkaðan líftíma.
- Skýring 11, mat á niðurfærslu birgða.
- Skýring 12, mat á niðurfærslu viðskiptakrafna.
- Skýring 17, mat á líftíma og ávöxtunarkröfu leigusamninga
Stjórnendur hafa metið möguleg áhrif loftlagsáhættu á reikningsskil samstæðunnar og ákvarðað að
áhrif loftslagstengdrar áhættu hafi ekki marktæk áhrif á mat og forsendur í reikningsskilunum.
Lýsing á reikningsskilaaðferðum samstæðunnar er að finna hér að neðan sem og innan hverrar skýringar þar sem tengt er við
fjárhæðir í meginyfirlitum. Til að auka upplýsingargildi ársreikningsins eru skýringar við hann birtar á grundvelli þess hversu
viðeigandi og mikilvægar þær eru fyrir lesandann. Það þýðir að upplýsingar sem metnar eru hvorki mikilvægar né viðeigandi
fyrir notanda reikningsskilanna eru ekki birtar í skýringum.
Stjórnendur hafa metið að áhrif nýrra, breyttra og endurskoðaðra alþjóðlegra reikningsskilastaðla sem hafa verið gefnir út og
samþykktir af Alþjóðlega reikningsskilaráðinu (IASB) og teknir upp af Evrópusambandinu (EU) með gildistökudag eftir
1.3.2025 hafi óveruleg áhrif á þennan samstæðuársreikning. Stjórnendur hafa einnig metið að þeir staðlar sem hafa ekki enn
tekið gildi en hafa verið samþykktir muni ekki hafa veruleg áhrif á framtíðarreikningsskil samstæðunnar ef undan er skilinn
IFRS 18 sem tekur gildi 1. janúar 2027, en áhrif af innleiðingu hans hafa ekki verið metin að fullu.
Ársreikningur samstæðu Ölgerðarinnar fyrir árið 2024-2025 er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og
þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu (EU) og viðbótarkröfur í lögum um ársreikninga nr. 3/2006.
Samstæðuársreikningurinn er gerður á grundvelli kostnaðarverðs að því undanskildu að kaupréttir eru metnir í samræmi við
IFRS 2 og fjárfesting í hlutdeildarfélagi er færð samkvæmt hlutdeildaraðferð. Samstæðureikningurinn hefur að geyma
ársreikning félagsins og dótturfélaga þess, sem vísað er til í heild sinni sem ,,samstæðunnar" og til einstakra félaga sem
,,samstæðufélaga". Ársreikningurinn er birtur í íslenskum krónum (ISK), sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins. Allar fjárhæðir
eru í íslenskum krónum (ISK) og þúsundum króna, nema annað sé tekið fram.
Dótturfélög eru þau félög þar sem samstæðan fer með yfirráð. Yfirráð grundvallast af því hvort fjárfestir
hefur ákvörðunarvald yfir fjárfestingunni, ber áhættu eða hefur réttinn til að njóta breytilegs ávinnings
vegna þátttöku í fjárfestingunni og getur með ákvörðunarvaldi haft áhrif á ávinning sinn af
fjárfestingunni. Dótturfélög eru að fullu hluti samstæðunnar frá þeim degi þegar yfirráð eru færð yfir til
samstæðunnar. Þau eru tekin út úr samstæðunni frá þeim degi þegar yfirráðum lýkur.
Markmið samstæðureikningsskilanna er að birta einungis tekjur, gjöld, eignir og skuldir samstæðunnar
út á við og er því viðskiptum innan hennar eytt út við gerð reikningsskilanna. Ef við á eru gerðar
leiðréttingar á reikningsskilum dótturfélaga til að samræma þau við reikningsskilaaðferðir
samstæðunnar.
Viðskipti í erlendum gjaldmiðlum eru færð á gildandi gengi þess dags sem viðskiptin fara fram.
Peningalegar eignir og skuldir í erlendum gjaldmiðlum eru færðar miðað við gengi í lok
reikningsskiladags. Gengismunur sem myndast er færður í rekstrarreikning. Þýðingarmunur
samanstendur af gengismun sem verður til vegna umreiknings reikningsskila dótturfélags sem birta
reikningsskil sín í bandaríkjadollar er færður á eigið fé.