
Stjórnarháttayfirlýsing 2021 Sjóvá-Almennar tryggingar hf.
_____________________________________________________________________________________________________________________________
Samstæðureikningur Sjóvá-Almennra trygginga hf. 49
endurskoðendum um áhættustýringu og innra eftirlit. Nefndin fundaði einnig með forstjóra. Helstu umfjöllunarefni nefndarinnar
voru yfirferð árshlutauppgjöra og ársreiknings, umfjöllun um áhættustringu og innra eftirlit, rýni starfsreglna, rýni verklags við
útreikning vátryggingaskuldar, rýni áhættuskýrslu, rýni ORSA ferlis, yfirferð skýrslu regluvörslu, yfirferð skýrslu
tryggingastærðfræðings, yfirferð skrslu ytri og innri endurskoðenda og eftirlit með viðbrögðum stjórnenda tengdum
athugasemdum þeirra. Endurskoðunar-nefnd endurskoðaði á árinu starfsreglur sínar, rýndi stefnu um innra eftirlit og innri
endurskoðun, kynnti sér útreikninga vátryggingaskuldar, svörun erinda og skýrsluskil til Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands og
tilhögun upplýsingagjafar stjórnenda til stjórnar, kynnti sér stöðu á gerð áhættukorts (e. Assurance map), setti starfsreglur um
aukaverk endurskoðenda og lagði mat á eigin störf. Áhersla innri endurskoðenda á árinu var á sviðum fjárfestinga,
stofnstýringar, sölu og ráðgjafar, útibúa og umboða, auk árlegrar úttektar á upplýsingatækni og stjórnarháttum.
Starfskjaranefnd
Starfskjaranefnd markar starfskjarastefnu sem miðar að því að félagið sé ávallt samkeppnishæft og geti ráðið til sín
framúrskarandi starfsfólk. Starfskjarastefnan nær yfir helstu atriði í starfs- og launakjörum forstjóra, stjórnenda og starfsmanna
félagsins og skal fylgja mannréttindastefnu félagsins ásamt því að taka afstöðu til áhrifa launa á áhættutöku og -stýringu
félagsins í samráði við endurskoðunarnefnd. Starfskjarastefnu skal endurskoða árlega og skal greiða atkvæði um hana á
hverjum aðalfundi. Starfskjaranefnd er skipuð öllum stjórnarmönnum og átti nefndin tvo fundi á árinu.
Tilnefningarnefnd
Hlutverk tilnefningarnefndar er að tilnefna einstaklinga til stjórnarsetu fyrir aðalfund félagsins. Skal nefndin vinna að
hagsmunum allra hluthafa og gæta þess að einstaklingar sem tilnefndir eru búi sem heild yfir nægilegri þekkingu og reynslu til
að rækja hlutverk sitt. Nefndinni ber einnig að leggja mat á hvort frambjóðendur séu óháðir félaginu eða hluthöfum sem eiga
10% hlut í félaginu eða meira. Tilnefningarnefnd er skipuð þremur nefndarmönnum sem fyrst voru kjörnir á hluthafafundi 26.
október 2018 og síðar endurkjörnir á aðalfundi 12. mars 2020. Nefndina skipa Katrín S. Óladóttir, formaður, Jón Birgir
Guðmundsson og Vilborg Lofts. Nefndin átti 8 fundi á árinu 2021.
Fjárfestinganefnd
Í reglum stjórnar Sjóvár um fjárfestingarstarfsemi félagsins eru skrðar heimildir forstjóra til ákvarðana um fjárfestingar án fyrir
fram ákveðins samþykkis stjórnar. Fjárfestinganefnd, sem skipuð er forstjóra, framkvæmdastjóra fjármálasviðs, forstöðumanni
fjárfestinga og staðgengli forstöðumanns fjárfestinga, fer sameiginlega með fjárfestingaumboð forstjóra. Hlutverk nefndarinnar
er að hafa yfirumsjón með fjárfestingum samstæðunnar og ber nefndin ábyrgð á að rýna fjárfestingastefnu og bera undir stjórn
til samþykktar að minnsta kosti einu sinni á ári.
Áhættu- og öryggisnefnd
Hlutverk nefndarinnar er að vera stjórn félagsins til stuðnings við greiningu og stýringu á þeim áhættum sem félagið stendur
frammi fyrir. Áhættu- og öryggisnefnd hefur einnig yfirumsjón með því að unnið sé að samhæfðri áhættustýringu. Nefndin skal
hafa yfirsýn yfir virkni gæðakerfis og að öryggismál séu ávallt í takti við þarfir félagsins og uppfylli lög og reglur. Nefndin rýnir
áhættustefnu, ORSA stefnu, upplýsingaöryggisstefnu, upplýsingatæknistefnu, stefnu um útvistun, stefnu um gæði gagna og
gæða- og öryggisstefnu áður en þær eru lagðar fyrir stjórn til samþykktar. Nefndin hefur eftirlit með og tekur ákvörðun um eigin
áhættu og endurtryggingavernd félagsins að tillögu fjármálasviðs. Í nefndinni sitja forstöðumaður áhættustýringar og gæðamála
sem er formaður nefndarinnar, forstjóri og framkvæmdastjórn.
Forstjóri
Forstjóri Sjóvár er Hermann Björnsson, fæddur 15. febrúar 1963, til heimilis í Reykjavík. Forstjóri ber ábyrgð á daglegum
rekstri félagsins samkvæmt stefnu og fyrirmælum stjórnar, sbr. 2 mgr. 68 gr., hlutafélagalaga. Hermann hefur verið forstjóri
Sjóvár frá október 2011 og framkvæmdastjóri dótturfélagsins, Sjóvá-Almennra líftrygginga hf. frá því í apríl 2021. Hermann
lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1990 og hóf þá störf hjá Íslandsbanka hf., fyrst í lögfræðideild og síðar
sem forstöðumaður rekstrardeildar. Árið 1999 varð Hermann forstöðumaður útibúasviðs Íslandsbanka og síðar
aðstoðarframkvæmdastjóri þess. Hermann starfaði sem aðstoðarframkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Kaupþings banka hf.
frá 2006 og var framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Arion banka hf. frá árinu 2009. Hermann hefur á síðustu árum gegnt
fjölmörgum trúnaðarstörfum, m.a. setið í stjórnum Viðskiptaráðs, Fjölgreiðslumiðlunar ehf., Kreditkorta hf., Lífeyrissjóðs
bankamanna, líftryggingafélagsins Okkar lífs hf. og Samtaka fjármálafyrirtækja. Hann situr í fulltrúaráði Samtaka atvinnulífsins.
Hermann á 0,044% eignarhlut í félaginu.
Skipurit samstæðu
Starfsemi félagsins er skipt upp í þrjú meginsvið, þ.e. fjármál og upplýsingatækni, sölu og ráðgjöf og tjón. Áhættustýring og
gæðamál, persónuvernd, regluvarsla, fjárfestingar, endurtryggingar, mannauður, stefnumótun og viðskiptaþróun og trygginga-
og tölfræðigreining heyra beint undir forstjóra. Allri daglegri starfsemi dótturfélagsins Sjóvár lífs er útvistað til móðurfélagsins.
Framkvæmdastjórn skipa forstjóri og framkvæmdastjórar þriggja meginsviða félagsins.
Framkvæmdastjórn